<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:01:22" skst="HildS" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:30:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:01:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég mun hér mæla fyrir máli sem getur skipt að mínu
    viti mjög miklu máli varðandi þá grafalvarlegu stöðu sem er nú á
    fjölmiðlamarkaði í okkar annars ágæta lýðræðisríki. Það hefur lengi verið
    alvarleg staða á þessum markaði en nú ber svo við að það eru hreint út
    sagt öll ljós rauðblikkandi. Við höfum vitað lengi að samkeppnisstaða
    allra á þessum markaði er mjög erfið í samkeppni við Ríkisútvarpið. Það er
    bara staðreynd sem hefur fengið að grassera mjög lengi og er bara ákveðin
    staðreynd varðandi almennan samkeppnisrekstur við ríkið en að
    samkeppnisstaðan versni ár frá ári er eitthvað sem er algerlega
    óásættanlegt. Um of langt skeið hefur pólitíkin ekki getað tekið á þeim
    grunnvanda og frekar horft til ýmissa plástra sem eðli máls samkvæmt gera
    lítið gagnvart því svöðusári sem þessi staða er og versnar með hverjum
    deginum. Til að mynda voru sett ný lög hér í vor sem að sögn
    stjórnarmeirihlutans áttu að bjarga málum og bjarga einkareknu miðlunum
    þótt það væri mörgum augljóst, t.d. þeirri sem hér stendur, að það myndi
    ekki skila tilætluðum árangri. Hvað gerðist svo, frú forseti? 80 dögum
    eftir lögfestingu nýrra laga um stuðning við einkarekna fjölmiðla sem áttu
    að sögn að bjarga þeim þurfti farsæl sjónvarpsfréttastöð til 40 ára að
    pakka saman. 80 dögum eftir að svokölluð líflína var lögfest þurfti eina
    óopinbera sjónvarpsfréttastöðin að loka. Líflínan reyndist kannski
    hengingaról eftir allt saman. Því miður var þessi staða um margt
    fyrirsjáanleg, frú forseti, hefur fengið að malla lengi og verður æ
    erfiðari.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er ónefnt, sem ég ætla þó aðeins að tæpa á, að það er ákveðið
    prinsipp í lýðræðisríkjum að fjölmiðlar séu sem allra minnst háðir
    opinberu fé. Af hverju? Því það er bara mannlegt í raunheimum að það er
    erfiðara og oft jafnvel óskynsamlegt að gagnrýna þann sem heldur þér á
    lífi. Við höfum vitað þetta lengi með Ríkisútvarpið. Við höfum vitað lengi
    að það nýtur auðvitað ríkulega af opinberu fé. En þegar allir einkareknir
    miðlar eru líka komnir á, hvað eigum við að segja, að hanga í þeirri
    líflínu, eins veikburða og hún þó er, þá erum við komin á hættulegan stað.
    Það er bara ákveðið prinsipp í því að það séu sem allra fæst huglæg áhrif
    gagnvart slíkum stuðningi. Það er óheppilegt að t.d. í þeim lögum sem voru
    lögfest í vor þá er ákveðin úthlutunarnefnd sem á að taka fyrir
    sérstaklega hverjir séu, nú man ég ekki alveg hvernig það er orðað,
    einhvern veginn alvörufjölmiðlar umfram einhverja aðra sem eru ekki
    almennir fjölmiðlar eða alvörufjölmiðlar eða hvernig svo sem það var nú
    orðað. Þetta eitt og sér er ekki nógu gott því hérna ertu kominn með
    huglægar skoðanir hins opinbera inn í ákvarðanir um hverjir fái fé til að
    flytja fréttir og hverjir ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Skemmst er að minnast, því miður, að það var bara í
    fyrra sem ég man eftir alla vega tveimur ef ekki fleirum úr hv.
    stjórnarmeirihluta sem sögðu upphátt og opinberlega að ákveðinn
    einkarekinn fjölmiðill ætti að fá minna af opinberu fé þegar viðkomandi
    ráðamönnum hugnaðist ekki fréttaflutningurinn. Bara það að þessum ágætu
    hv. stjórnarliðum hafi dottið í hug að það sé yfirhöfuð í lagi að segja
    svona hluti upphátt er áhyggjuefni og segir sitthvað um stöðuna sem við
    erum í. Þetta er nefnilega ekki í lagi og ég undirstrika að það er ekkert
    minna en grafalvarlegt að svo gott sem öll fjölmiðlun á Íslandi er háð
    hinu opinbera hverju sinni, duttlungum þess, skoðunum og völdum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef ég vind mér kannski að því frumvarpi sem ég mæli fyrir þá er
    það að taka á þessari samkeppnisstöðu RÚV. Ég vil byrja á að taka fram,
    frú forseti — svo það sé nú sagt alveg skýrt, ég veit að sitt sýnist
    hverjum um þá ágætu stofnun — að mér þykir um margt vænt um RÚV og tel að
    RÚV sinni ákveðnu mikilvægu hlutverki. Ég held reyndar að það hlutverk sé
    of víðfeðmt. Alla vega ef við horfum á hvernig nútíminn hefur kannski
    þróast þá held ég reyndar að það sé hægt að segja að það sé allt of
    umfangsmikið. En ég ætla ekki að gera lítið úr því að það er ákveðið
    hlutverk RÚV sem skiptir máli. Ég leyfi mér t.d. góðfúslega að segja
    hérna, og hef nú stundum sagt í kannski meira gríni en alvöru en samt
    ekki, að ég myndi helst vilja geta friðað dánarfregnir og jarðarfarir og
    öll þau börn, barnabörn og barnabarnabörn sem fá að senda sínum látna
    ástvini kveðju með þeim hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það breytir því hins vegar ekki að það er með öllu óeðlilegt
    hvernig er staðið að rekstri RÚV, sérstaklega þegar við sjáum hvaða áhrif
    það hefur á aðra miðla í landinu. Ég er því að leggja til ákveðnar
    breytingar á lögum um Ríkisútvarpið sem felast í formbreytingu á rekstri
    þess og fjármögnun starfseminnar og takmörkunum á fyrirkomulagi auglýsinga
    Ríkisútvarpsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Markmið frumvarpsins er að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna
    fjölmiðla og gera rekstrarumhverfi allra fjölmiðla heilbrigðara og
    einfalda rekstur og einfalda líka alla lagaumgjörð í kringum Ríkisútvarpið
    sem ég fer hér nánar yfir. Reksturinn, eins og við þekkjum, byggist fyrst
    og síðast á skatttekjum, útvarpsgjaldi síðan þar ofan á og
    auglýsingatekjum. Þá hefur fyrirtækið nokkrar tekjur af kostun. Frumvarpið
    felur í sér einföldun á þessum tekjustofnum og er markmið þess að færa
    starfsemi þess í samræmi við hlutverk opinberra stofnana sem starfa í
    almannaþágu fremur en að Ríkisútvarpið taki að sér ákveðið hlutverk
    einkaaðila eins og hefur í raun gerst undanfarin ár.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með lögum frá árinu 2007 var Ríkisútvarpið gert að opinberu
    hlutafélagi sem tók við rekstri, eignum og skuldum. Við leggjum hér til
    sem stöndum að þessu frumvarpi að það verði gerð ný breyting á
    rekstrarformi Ríkisútvarpsins og það verði að ríkisstofnun með sjálfstæða
    stjórn; útvarpsráð. Fjármögnun rekstrar verður þá fyrst og fremst með
    beinum framlögum úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hvers árs í samræmi við
    þjónustusamning sem ráðherra er skylt að gera við Ríkisútvarpið. Þá hefur
    stofnunin einnig tekjur af auglýsingum en settar eru verulegar skorður við
    umfangi og eðli þeirra og verður stofnuninni ekki heimilt að afla tekna
    með auglýsingasölu. Bara til að nefna það strax af hverju við orðum það að
    séu settar verulegar skorður þá höldum við t.d. hlífiskildi yfir
    jólakveðjum Ríkisútvarpsins sem mætti skilgreina sem einhvers konar
    auglýsingu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um starfsemina almennt vil ég nefna að Ríkisútvarpinu ber skylda
    samkvæmt lögum til að starfrækja að lágmarki eina sjónvarpsrás og tvær
    hljóðvarpsrásir. Við teljum að sömu kröfur um nýtingu fjármuna verði að
    gera til Ríkisútvarpsins og annarra opinberra stofnana og er því í
    frumvarpi þessu leitast við að koma í veg fyrir óþarfakostnað
    stofnunarinnar. Því er lagt til að Ríkisútvarpinu sé almennt skylt að óska
    eftir heimild ráðherra fyrir nýrri fjölmiðlaþjónustu en skilyrði um
    lágmarkskostnað slíkrar fjölmiðlaþjónustu verði á hinn bóginn fellt brott.
    Felur breytingin í sér að stofnunin geti ekki upp á sitt eindæmi útvíkkað
    starfsemi sína og þar með aukið rekstrarkostnað sinn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með breytingum á lögum um Ríkisútvarpið er leitast við að tryggja
    að rekstur ríkisfyrirtækis á fjölmiðlamarkaði hafi sem minnst áhrif á
    rekstrarumhverfi sjálfstætt starfandi fjölmiðla. Umsvif ríkisvaldsins á
    samkeppnismarkaði þrengja eðli málsins samkvæmt að einkareknum fyrirtækjum
    og gildir það jafnt um fjölmiðla og aðrar starfsgreinar. Þegar ákvörðun er
    tekin um að ríkið skuli stunda ákveðna atvinnustarfsemi sem að hluta eða
    öllu leyti er í samkeppni við einkaaðila er um leið verið að taka ákvörðun
    um að draga úr möguleikum annarra á markaði. Flutningsmenn líta svo á að
    það sé skylda löggjafans að stuðla að heilbrigðu samkeppnisumhverfi á
    fjölmiðlamarkaði en því verður ekki náð ef Ríkisútvarpið stendur í beinni
    samkeppni við einkarekna fjölmiðla á auglýsingamarkaði. Um það verður ekki
    deilt, frú forseti, að umsvif ríkisins á innlendum fjölmiðlamarkaði gera
    sjálfstæðum fjölmiðlum mjög erfitt fyrir og kippa rekstrargrundvelli undan
    sumum miðlum og veikja möguleika annarra. Strandhögg erlendra
    samfélagsmiðla á íslenskum auglýsingamarkaði gerir stöðuna enn erfiðari.
    Lögbundin forréttindi Ríkisútvarpsins hafa komið í veg fyrir heilbrigða
    samkeppni á jafnvægisgrunni, til að mynda með því að bjóða auglýsendum upp
    á afslátt og/eða tilboð sem öðrum fjölmiðlum sem ekki njóta niðurgreiðslu
    frá hinu opinbera er að sjálfsögðu ómögulegt að keppa við. Afleiðingin er
    veikburða fjölmiðlun. Frjálsir fjölmiðlar berjast í bökkum en
    fjárhagslegur hagur Ríkisútvarpsins styrkist fremur en hitt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Erfitt rekstrarumhverfi og áralangur taprekstur flestra
    einkarekinna fjölmiðla hefur verið til skoðunar undanfarin misseri. Í
    skýrslu fjölmiðlanefndar frá janúar 2018 til mennta- og
    menningarmálaráðherra var bent á hvaða ástæður byggju að baki þessu erfiða
    rekstrarumhverfi, nánar tiltekið samkeppni einkarekinna fjölmiðla við
    Ríkisútvarpið, samkeppni við erlenda fjölmiðla og flutningur auglýsinga úr
    hefðbundnum fjölmiðlum á veraldarvefinn, svo sem til Google og Facebook.
    Er þar m.a. varað við því að áframhaldandi veiking fjölmiðla hér á landi
    hafi neikvæð lýðræðisleg og menningarleg áhrif í samfélaginu. Af þessu
    leiðir að nú er svo komið að fjölmiðlar hafa hvorki fjárhagslegt bolmagn
    til að sinna hlutverki sínu sem varðhundar almennings, svo notuð séu orð
    Mannréttindadómstóls Evrópu, né til að framleiða og miðla íslensku
    efni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er rétt að líta til þess að í áliti Samkeppniseftirlitsins frá
    2008, um samkeppnishömlur sem stafa af stöðu og háttsemi Ríkisútvarpsins á
    markaði fyrir sölu auglýsinga í ljósvakamiðlum, bendir stofnunin á þá
    samkeppnislegu mismunun sem leiðir af stöðu Ríkisútvarpsins á
    auglýsingamarkaði. Í ályktuninni vísar Samkeppniseftirlitið til þess að
    tekjur Ríkisútvarpsins af sérstöku gjaldi sem skatturinn leggur á
    skattskylda einstaklinga og lögaðila teljist til ríkisaðstoðar í skilningi
    samkeppnislaga sem sé til þess fallin að skekkja stöðuna á
    samkeppnismarkaði. Nauðsynlegt er að bregðast við þessum alvarlegu
    ábendingum Samkeppniseftirlitsins og er í frumvarpinu því lagt til að
    Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði að öllu leyti, nema við skulum
    hlífa jólakveðjunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Flutningsmenn vara við því að beinir ríkisstyrkir til að styðja
    við bakið á einstökum fyrirtækjum eða atvinnugreinum festist í sessi, enda
    er reynslan af því slæm. Þá er ákveðin þversögn fólgin í því að reyna að
    styðja við frjálsa og opna fjölmiðlun með beinum ríkisstyrkjum og
    millifærslum. Frjálsri fjölmiðlun er fátt hættulegra en að vera háð
    opinberum styrkjum og nefndum á vegum hins opinbera sem skammta fjármuni
    til að standa undir einstökum þáttum í ríkisrekstrinum. Fjölmiðlun sem er
    háð hinu opinbera með beinum hætti verður aldrei frjáls nema í
    orði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Núverandi fyrirkomulag hefur sætt mikilli gagnrýni, bæði frá
    einkareknum fjölmiðlum sjálfum og almenningi. Í óbreyttu fjölmiðlaumhverfi
    eru ríkisstyrkir til einkarekinna fjölmiðla til nauðsynjar og er það mat
    frumvarpshöfunda að rétt sé að leggja þá af þegar skekkjan á
    fjölmiðlamarkaði hefur verið löguð. Það á að vera langtímamarkmið að
    tryggja einkareknum fjölmiðlum ásættanlegt rekstrarumhverfi, m.a. með
    undanþágu frá opinberum gjöldum og eðlilegum samkeppnismarkaði. Þetta
    frumvarp er að okkar mati nauðsynlegt upphafsskref í því ferli. Verði
    frumvarpið að lögum mun staða einkarekinna fjölmiðla án efa styrkjast en
    erfitt er að meta nákvæmlega hversu mikið rekstrarskilyrði þeirra muni
    batna. Því er í frumvarpi þessu ekki mælt fyrir um afnám styrkja til
    fjölmiðla en ekki er tímabært að ráðast í slíkar aðgerðir, því miður, áður
    en tryggt er að einkareknir fjölmiðlar geti starfað án þeirra. Það er því
    ábyrgðarhluti að halda þessum styrkjum enn sem komið er. Aftur á móti má
    ætla að unnt verði að lækka og jafnvel afnema að fullu styrki hins
    opinbera til fjölmiðla verði frumvarpið að lögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið gerir ráð fyrir tvenns konar breytingum á skattumhverfi
    sjálfstæðra fjölmiðla í staðinn, annars vegar með undanþágu frá greiðslu
    tryggingagjalds upp að vissu marki og hins vegar með því að fella niður
    virðisaukaskatt af áskriftum innlendra fjölmiðla, prentmiðlum, netmiðlum
    og ljósvakamiðlum. Með breytingunum er leitast við að styrkja rekstur
    fjölmiðla. Hlutfallslega fæst sama lækkun á hvern fjölmiðil miðað við
    launakostnað og áskriftartekjur og er skattaívilnunin þannig byggð á
    rekstri einstakra fjölmiðla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið gerir ráð fyrir að sjálfstæðum fjölmiðlum verði veitt
    undanþága frá greiðslu tryggingagjalds af launum sem falla undir tvö lægri
    skattþrep tekjuskattsstofns. Tryggingagjald verði hins vegar greitt af
    þeim hluta launa sem eru umfram lægri skattþrepin. Þá má nefna að á árinu
    2026 eru mánaðarlaun sem fara yfir 1.400.000 kr. skattlögð í efra
    skattþrepi. Ívilnunin skal ná til allra starfsmanna fjölmiðlafyrirtækis,
    ritstjórnar, þar með talið blaða- og fréttamanna, dagskrárgerðarmanna,
    ljósmyndara, prentsmiða og allra starfsmanna stoðdeilda, svo sem
    auglýsingadeilda og skrifstofu, þannig að þetta safnast saman þegar saman
    kemur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á Íslandi eru áskriftargjöld dagblaða og tímarita í neðra
    virðisaukaskattsþrepi og 2018 var virðisaukaskattur á rafrænar áskriftir
    að sömu fjölmiðlum lækkaður úr efra þrepi í það neðra. Frumvarpið gerir
    ráð fyrir því að virðisaukaskattur leggist ekki á áskriftir innlendra
    fjölmiðla, með breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Er það í samræmi við
    fyrirkomulag margra annarra ríkja í Evrópu. Virðisaukaskattur á prentmiðla
    er til að mynda hærri á Íslandi en annars staðar á
    Norðurlöndunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpinu er ætlað að skapa víðtækari sátt um starfsumhverfi
    einkarekinna fjölmiðla þar sem allir sitja við sama borð og fá
    hlutfallslega sömu ívilnun. Ég endurtek það sem ég kom inn á áðan að hér
    er lykilatriði að hið opinbera hefur engar huglægar skoðanir eða huglæg
    völd á því hverjir fái einhvers konar styrk eða ívilnanir eða einhvers
    konar fjármuni heldur er þetta bara átómatískt inni í kerfinu, burt séð
    frá skoðunum eða afstöðu ráðamanna hverju sinni, og þetta er lykilatriði í
    lýðræðisríki að mínu viti, að hafa hlutlæga mælikvarða og kerfislegan
    stuðning en ekki huglægan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla næst að fjalla um afnám útvarpsgjaldsins. Við mælum fyrir
    afnámi útvarpsgjaldsins en að mati okkar mæla knýjandi rök með slíkri
    breytingu. Núverandi fyrirkomulag felur í sér að Ríkisútvarpið fær ávallt
    fjárveitingu að lágmarki því sem nemur útvarpsgjaldi sem lagt er á alla
    skattskylda einstaklinga og lögaðila en í því felst að fjárveitingin tekur
    ekki mið af því hve mikla fjármuni Ríkisútvarpið þarf til að sinna
    lögbundnu hlutverki sínu. Hinu opinbera ber að fara vel með fjármuni
    ríkisins og nýta þá á skilvirkan og hagkvæman hátt, samanber lög um
    opinber fjármál. Það er örlítið undarlegt að þessi skattstofn, ef við
    getum orðað það svo, stækki í rauninni burt séð frá þörf Ríkisútvarpsins.
    Lögbundið lágmarksfjárframlag ríkisins til opinberra stofnana án nokkurs
    tillits til þess hver raunveruleg fjárþörf stofnunarinnar er er því að
    mínu viti bersýnilega ekki í samræmi við kröfuna um skilvirka og hagkvæma
    opinbera fjárstjórn samkvæmt lögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Útvarpsgjaldið er jafnframt flatur skattur sem leggst jafnt á alla
    skattgreiðendur líkt og ég hef farið yfir en ég vil undirstrika að
    skatturinn leggst því eðli máls samkvæmt þyngst á tekjulægstu hópana og
    getur numið næstum 1% af heildarárstekjum þess hóps. Afnám skattsins felur
    því í sér skattalækkun á mikinn meiri hluta landsmanna. Á hverju heimili
    er oftar en ekki fleiri en einn einstaklingur sem nú er skylt að greiða
    útvarpsgjald og því getur afnám gjaldsins falið í sér umtalsverða
    skattalækkun fyrir hvert heimili og haft umtalsverð áhrif á fjárhagsstöðu
    heimilanna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í frumvarpinu felst því að tekjuöflun Ríkisútvarpsins verður
    einfölduð með fækkun tekjustofna. Frumvarpið mælir ekkert sérstaklega
    fyrir um að tekjur Ríkisútvarpsins skuli lækka, svo það sé nú sagt, enda
    fjármögnunin hugsuð fyrst og fremst háð fjárlögum hverju sinni í samræmi
    við lög og gildandi þjónustusamning. Í því samhengi er rétt að líta til
    þess að Ríkisútvarpið hefur óneitanlega möguleika til hagræðingar miðað
    við rekstur þess undanfarin ár og hefur rekstrarkostnaður þess hækkað
    gríðarlega á síðustu árum og áratugum. Til samanburðar má líta til þess að
    launakostnaður Ríkisútvarpsins er hærri en heildarlaunakostnaður allra
    dómstóla á Íslandi til samans. Það skýtur alla vega að mínu viti, frú
    forseti, skökku við að kostnaður ríkisins við launagreiðslur eins
    fjölmiðils sé hærri en við dómskerfið í heild sinni og sýnir fram á þörf
    þess að endurmeta rekstur Ríkisútvarpsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í því augnamiði tel ég einsýnt að almannaþjónustuhlutverk RÚV
    verði endurskoðað í takt við tímann. Eins og við getum sagt er sjálfsagt
    að vernda og undirstrika og hlúa að sérstöðu RÚV og því mikilvæga
    hlutverki sem það hefur í almannaþágu en það geta fáir, held ég, haldið
    því fram að allt hið mýmarga sem Ríkisútvarpið tekur sér á hendur þessa
    dagana, í mýmargri hlaðvarpsgerð og alls konar, falli undir nauðsynlega
    þjónustu og mun líklega ógna einkaaðilum á þeim markaði eins og við höfum
    séð dæmi um á liðnum árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að þessu sögðu eru heildartekjur Ríkisútvarpsins, að
    auglýsingatekjum frátöldum, tæplega 7 milljarðar á hverju ári. Að okkar
    mati ætti Ríkisútvarpið hæglega að geta sinnt lögbundnum skyldum sínum
    fyrir talsvert lægri fjárhæð, til að mynda með því að nýta þá fjármuni sem
    til eru í þau verkefni sem lögbundin eru í stað þess að fjármagna
    starfsemi sem Ríkisútvarpið ætti ekki að sinna, svo sem hlaðvarpsgerð.
    Frumvarp þetta mælir þó ekki fyrir um hverjar tekjur Ríkisútvarpsins skuli
    vera, enda er gert ráð fyrir að fjármögnunin verði ákveðin í fjárlögum
    hverju sinni í samræmi við efni þjónustusamnings ráðherra við
    Ríkisútvarpið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Framangreindar breytingar á fjármögnun Ríkisútvarpsins fela ekki í
    sér neina takmörkun á sjálfstæði stofnunarinnar sem tryggt er í 2. gr.
    frumvarpsins og fjármögnun Ríkisútvarpsins er nú þegar háð lagasetningu
    Alþingis og þjónustusamningi við ráðherra. Frumvarpið hefur þannig í för
    með sér breytt fyrirkomulag þar sem fjármögnun Ríkisútvarpsins með
    almannafé verði í samræmi við þann kostnað sem nauðsynlegt er að standa
    straum af svo stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Þá fela
    breytingarnar einnig í sér aukið gegnsæi er varðar meðferð opinberra
    fjármuna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég hef tæpt á því helsta sem frumvarpið felur í sér.
    Að okkar mati sem stöndum að þessu frumvarpi er það okkar einlæga trú að
    þessi nálgun sé farsælli en sú nálgun sem stjórnvöld hafa í of langan tíma
    sótt sér færi í, að koma með plástra og þessa stöku þúsundkalla til og frá
    til þessara einkareknu miðla í staðinn fyrir að taka á alvöru vandans, sem
    er staða Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði. Við vitum að hún er allt of
    sterk. Við vitum að það er eiginlega ekki hægt að keppa við þetta en við
    vitum líka að það er heldur ekki fullkomin staða að hið opinbera sé í
    sífellu að veita svona styrki á huglægum forsendum til annarra
    einkarekinna miðla þannig að við leggjum til að það verði bara byggt inn í
    kerfin að ákveðnar ívilnanir frá tryggingagjaldi og virðisauka og slíkt
    sem allir fjölmiðlar gætu sótt í algjörlega burt séð frá þeirra
    fréttaflutningi — sem við höfum því miður séð frá hv. stjórnarliðum að
    hefur verið hótað, að þeir myndu missa sína peninga nema þeir hagi sínum
    fréttaflutningi með öðrum hætti og það er alvarleg staða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við lítum samt svo á og það skiptir mig máli að taka það fram að
    við trúum því einlægt að með þessu frumvarpi séum við að ná betur utan um
    starfsemi Ríkisútvarpsins. Þetta frumvarp er ekki hugsað til að leggja
    stein í götu þess starfs en við erum þeirrar skoðunar að það megi
    straumlínulaga það starf, það megi vera gagnrýnni á fjárframlög sem
    starfsemin fær. Okkur finnst því eðlilegt að þetta verði aftur bara
    hefðbundin opinber stofnun sem sækir fé sitt eins og allar aðrar í fjárlög
    á hverju ári og þá hægt að taka tillit til fjárþarfarinnar hverju sinni en
    ekki bara að skattstofninn hækki þar sem hver einasti aðili á Íslandi er
    skyldugur til að borga til Ríkisútvarpsins algjörlega burt séð frá því
    reyndar hvort viðkomandi nýti sér þá þjónustu eða ekki. Það væri bara á
    allan hátt eðlilegra að hafa þetta aðeins gegnsærra, pólitískara að því
    leytinu til að þetta væri bara hefðbundin opinber þjónusta, fjármögnuð af
    ríkinu eins og allar aðrar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að ég hafi svo sem drepið á því helsta en vil nota þessa
    lokamínútu til að endurtaka það að lokun frétta Stöðvar 2 eða Sýnar eins
    og það hét hérna undanfarna mánuði var algjört reiðarslag fyrir íslenskt
    samfélag og við verðum að taka það meira alvarlega hvernig staðan hefur
    verið að teiknast upp og hversu alvarleg hún verður og alvarlegri með
    hverjum degi. Það er ekki sjálfsagt að lýðræðisleg umræða sé öflug. Það er
    ekki sjálfsagt að það sé aðhald á ráðamenn. Þetta eru bara þeir veigamestu
    punktar sem öflug lýðræðisríki verða að hafa og ef við hér ætlum ekki að
    reyna að gera allt sem við getum til að passa þennan ofboðslega viðkvæma
    geira, ef ég get sagt sem svo, þá veit ég ekki alveg hver ætti að gera
    það. Ég trúi því einlægt að þetta frumvarp sé liður í því að jafna út
    þessa samkeppnisstöðu, gera umhverfið hérna eðlilegra, sanngjarnara og
    stuðla að lýðræðislegri umræðu og umfjöllun sem við viljum gjarnan geta
    státað af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að því sögðu legg ég til að málið fari til hv. allsherjar- og
    menntamálanefndar til 2. umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>