<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:31:10" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:33:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:31:10">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. framsögumanni, Hildi Sverrisdóttur,
    kærlega fyrir hennar ítarlegu framsögu þessa frumvarps sem hér er lagt
    fram af hálfu nokkurra þingmanna Sjálfstæðismanna. Ég tek undir með
    framsögumanni, það er auðvitað mjög mikilvægt að fjölmiðlaumhverfi hér á
    landi sé heilbrigt og frjálst. Svo er ekki og mér heyrist á framsögumanni
    að hún hafi raunverulega verið að leggja þetta frumvarp fram til að koma á
    einhvers konar jöfnun hvað þetta varðar. Það er alveg augljóst öllum sem
    fylgjast með fjölmiðlum að fjölmiðlamarkaðurinn hér er mjög skekktur og
    þar er helst þetta gífurlega stóra gímald sem þarna er, RÚV, sem gín yfir
    þessum markaði, eins og ég myndi orða það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil spyrja hv. framsögumann nokkurra spurninga. Þarna leggja
    hv. þingmenn fram breytingu í þá veru að starfsmenn Ríkisútvarpsins verði
    í raun ríkisstarfsmenn og Ríkisútvarpið falli bara undir fjárlög eins og
    hver önnur stofnun. Ég velti aðeins fyrir mér: Verður þetta þá ekki
    erfiðara? Verður ekki erfiðara að sveigja til og sýna sveigjanleika í
    rekstri stofnananna? Verður það dýrara og erfiðara, eins og við höfum
    margoft talað um hér í þessum þingsal, að snúa við stóru skipi eins og
    ríkisstofnun, verður það hugsanlega erfiðara? Einnig vil ég spyrja hv.
    þingmann um viðhorf hennar til tillögu sem við höfum lagt fram nokkrum
    sinnum í Miðflokknum undir forystu hv. þm. Bergþórs Ólasonar <ns:bjalla/>
    um að það væri hægt að taka á þessum vanda með þeim hætti að greiðendur
    útvarpsgjalds geti valið <ns:bjalla/> hvert sú greiðsla rennur, til hvaða
    fjölmiðils, hvort hún styðji það frumvarp.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>