<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:33:41" skst="HildS" tegflm="L" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:36:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:33:41">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir
    andsvarið. Fyrst að fyrri punktinum. Það að Ríkisútvarpið verði bara
    heiðarleg opinber stofnun á fjárlögum held ég að eigi ekki að þurfa að
    gera stöðuna erfiðari hvað það varðar. Ég sé það ekki, sérstaklega ekki
    þegar það hangir saman við að endurskoða almannaþjónustuhlutverk RÚV og þá
    mögulega sníða þar aðeins þrengri stakk. Þá er það bara hið pólitíska
    samtal um í hvað pólitíkin telur eðlilegt að opinberu fé sé veitt hverju
    sinni til að halda úti almannaþjónustuhlutverki RÚV. Við skrifum það
    sérstaklega inn í frumvarpið því það hefur aðeins borið á því að
    starfseminni vaxi fiskur um hrygg allt í einu og ekki ætla ég að gera
    lítið úr því að starfsmenn sem vinna þarna eru örugglega metnaðarfullir og
    fá alls konar skemmtilegar hugmyndir og vilja gjarnan gera það. En við,
    einmitt til þess að stemma stigu við þessu, skrifum inn að ef það er
    einhver vilji til þess að bæta í starfsemina eða bæta við verkefnum þá
    þarf sérstaklega heimild til þess frá pólitíkinni en ekki að það gerist
    einhvern veginn átómatískt. Mér finnst faktískt bara heiðarlegra og
    gagnsærra að þetta verði opinber stofnun með afmarkaðra almannahlutverk og
    þá með opinbera starfsmenn eins og gengur og starfsmennirnir þá í betri
    stöðu hvað það varðar að einhverju leyti. En væntingarnar eru um að
    starfsemin minnki sem því nemur og eigi þetta samtal við
    pólitíkina.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi seinni spurninguna. Mér finnst hugsunin í frumvarpi hv.
    þm. Bergþórs Ólasonar góð. Mér finnst <ns:bjalla/> að sú staða væri betri
    en staðan er í dag. En ég myndi halda að það væri farsælla að gera þessa
    róttæku breytingu sem við erum að leggja til.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>