<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:36:07" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:37:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:36:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla einnig að taka fram hér í mínu fyrra andsvari
    hversu ítarlegt og vandað þetta frumvarp er af hálfu flutningsmanna þess
    og hrósa þeim fyrir það. Það kom mér á óvart í ræðu hv. þingmanns þegar
    hún nefndi að launagreiðslur RÚV væru hærri en launagreiðslur í
    dómskerfinu. Það kemur mjög á óvart og undirstrikar raunverulega að það
    þarf auðvitað að taka á þessu. Þarna er útvarp í ríkiseigu, útvarpsstöð
    sem er á einhvers konar sjálfvirkri útþensluleið. Þarna er verið að leggja
    bönd á starfsemi RÚV að mörgu leyti, bæði hvað varðar kostun og
    auglýsingar o.fl. og einnig á umfang stöðvarinnar, þ.e. verið er að
    takmarka hve margar rásir RÚV geti haldið úti. Og þess vegna spyr ég um
    t.d. það sem RÚV hefur verið að gera að undanförnu, að halda úti ýmsum
    hlaðvörpum og samfélagsmiðlum og eitthvað svoleiðis: Er í frumvarpinu er
    gert ráð fyrir að það verði lögð bönd á það einnig?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>