<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:37:27" skst="HildS" tegflm="L" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:38:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:37:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans seinna andsvar. Í
    fyrsta lagi er það að segja, já, það eru væntingar um að endurskilgreina
    þetta almannaþjónustuhlutverk. Að mínu viti er hlaðvarpsgerðin svona eitt
    besta dæmið um hvernig Ríkisútvarpinu vex fiskur um hrygg og hvað það er
    þá stutt í, og hversu ofboðslega viðkvæmt þetta hagkerfi er allt saman, úr
    því að RÚV hefur svo ótrúlega mikið bolmagn. Það er svo auðvelt fyrir RÚV
    að í rauninni éta alla hina litlu aðilana á markaðnum sem eru bara að
    reyna að gera sitt besta. Ég leyfi mér oft að nefna eitt dæmi í þessu
    samhengi og ég vil ítreka að við erum ekki bara að minnka auglýsingarnar,
    við verðum að taka RÚV af auglýsingamarkaði til að gefa einkaaðilunum
    séns. Mig langar að nefna í þessu samhengi að þegar ruv.is byrjaði mátti
    ekki setja auglýsingar þar. Getur fólk ímyndað sér hvort mbl.is og
    vísir.is væru til ef alltaf hefði mátt setja auglýsingar þangað? Þetta
    skiptir svo ofboðslega miklu máli og ríkið er í svo mikilli yfirburðastöðu
    hvað þetta varðar, þannig að við höfum trú á að með þessum aðgerðum muni
    staðan jafnast.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>