<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:38:51" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:40:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:38:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu, hún
    var afar góð, og taka undir margt sem fram kom í henni, sérstaklega það
    sem snýr að því að standa vörð um frjálsa fjölmiðlun á Íslandi og
    einfaldlega bara lýðræðið í landinu. Sterkir fjölmiðlar eru í
    lykilhlutverki í því að veita t.d. stjórnvöldum aðhald þegar kemur að
    ákvörðunum og fjalla um gjörðir þeirra og vera sjálfstæðir frá
    stjórnmálamönnum. Ég er hjartanlega sammála öllum þeim gildum. Ég tel líka
    sérstaklega mikilvægt að við skoðum stöðu RÚV á auglýsingamarkaði. Í ljósi
    þess hvernig erlendir samfélagsmiðlar hafa í rauninni gleypt allt
    auglýsingafjármagn frá fjölmiðlunum er staða RÚV á auglýsingamarkaði
    sérstaklega viðkvæm. Ég fagna því að ráðherra hefur þegar boðað frumvarp
    sem á að endurskoða þetta, eftir að hafa lagt fram frumvarp síðastliðið
    vor um að auka stuðning við einkarekna fjölmiðla. Ég held að þetta sé svo
    mikilvægt. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem ég skil þá ekki með þessu markmiði að vilja standa vörð um
    sjálfstæða fjölmiðlun, öfluga fjölmiðla í lýðræðissamfélagi á Íslandi, af
    hverju eru svona margar greinar í þessu frumvarpi sem snúa einfaldlega að
    því að veikja RÚV og veikja sjálfstæði þess? Í tíð ríkisstjórnar
    Sjálfstæðisflokksins þegar RÚV var sett í ohf. var það gert til að standa
    vörð um sjálfstæðið, til að fjarlægja RÚV frá ákvarðanatökum
    stjórnmálamanna. Útvarpsgjaldið, að fella það frá og setja á fjárlög.
    Eigum við að prófa að spyrja sveitarfélögin? Myndu þau vilja afnema sína
    sjálfstæðu tekjustofna og koma á fjárlög ríkisins, þannig að
    stjórnmálamenn sem væru ósáttir við sveitarfélög gætu einfaldlega bara
    lækkað framlög til sveitarfélaganna eða þá Ríkisútvarpsins ef það væri
    þeirra skoðun? Þetta veikir sjálfstæði fjölmiðilsins RÚV í því
    aðhaldshlutverki sem það hefur á okkur stjórnmálamennina. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo er hér gengið í rauninni alla leið. Það er sagt að orðin „í
    almannaþágu“ megi ekki heyrast í þessu frumvarpi, að Ríkisútvarpið eigi
    ekki að starfa í almannaþágu. Það á að vera stofnun ríkisins, á fjárlögum
    ríkisins, með stjórn sem er kosin af alþingismönnum og heyra undir boðvald
    ríkisins. Þetta tel ég ekki vera góða þróun og mig langar að spyrja hv.
    þingmann hver hennar sjónarmið eru varðandi þetta. Þurfum við ekki að
    standa vörð um sjálfstæði fjölmiðla á Íslandi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>