<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:41:05" skst="HildS" tegflm="L" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:43:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:41:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni fyrir
    andsvarið. Í fyrsta lagi verð ég að segja að ég átta mig kannski ekki
    alveg á nálgun hans með þetta mál því að ég held að hann átti sig alveg á
    því að það er löggjafinn sem getur tekið ákvörðun um þennan nefskatt á
    morgun ef svo ber undir. Það prinsipp er nákvæmlega það sama. Það er hins
    vegar meira gagnsæi fólgið í því hvernig þú ferð með opinbert fé, að
    viðkomandi stofnun geti bæði fært rök fyrir því og að það sé einhver
    pólitísk aðkoma að því, eins og t.d. hvað felst í almannaþjónustuhlutverki
    RÚV, að halda úti sinni starfsemi. En mér fannst hv. þingmaður eilítið ýja
    að því að hérna væri fréttastofan komin í einhverja aðra stöðu en nú er.
    Það er auðvitað af og frá. Sú staða er bara nákvæmlega eins og það verður
    að horfa á Ríkisútvarpið núverandi ohf. með sína 7 milljarða og sínar
    auglýsingatekjur og með nefskattinn sem allir á Íslandi eru skyldugir til
    að borga og sem bara vex og vex eftir fjölgun Íslendinga, ekki vegna
    þarfar frá RÚV og ekki vegna þess að það er búið að ákveða hvaða stakk á
    að sníða RÚV. Mér finnst það óeðlilegt. Mér finnst að hitt væri eðlilegri
    pólitísk nálgun en það breytir engu um sjálfstæði fréttastofunnar frá því
    í dag eða á morgun, ekki í einu einasta og allir hinir fjölmiðlarnir sem
    eru að berjast í bökkum geta varla verið til út af samkeppninni við RÚV.
    Þeir eru líka mikilvægir í almannaþágu. Það er ekki bara RÚV sem er
    mikilvægt í almannaþágu þrátt fyrir að RÚV per se hafi ákveðið
    almannaþjónustuhlutverk þá erum við að ræða þetta núna út af því að hinir
    fjölmiðlarnir geta varla verið til út af RÚV <ns:bjalla/> og þeir skipta
    almenning líka mjög miklu máli.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>