<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:43:25" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:44:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:43:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar við
    andsvari. Ég er sammála því að við þurfum að vera með öfluga einkarekna
    fjölmiðla. Þess vegna lögðum við fram þetta frumvarp og samþykktum að auka
    styrkveitingar til þeirra. Þess vegna hefur ráðherra boðað að endurskoða
    hlutverk RÚV á auglýsingamarkaði í haust og ég tek undir þau sjónarmið.
    Það sem mér þykir áhugavert er þetta afturhvarf til fortíðar, þegar RÚV er
    þá meira undir pólitíkina komið. Auðvitað hefur það áhrif á fréttastofu,
    líkt og aðra miðlun RÚV, hvernig RÚV er fjármagnað og hvert boðvald
    stjórnvaldanna er yfir Ríkisútvarpinu. Það segir sig sjálft. Sama með
    sjálfstæði tekjustofna. Það er ástæða fyrir því að sveitarfélögin verja
    sjálfstæða tekjustofna með kjafti og klóm. Það er til að standa vörð um að
    þeir séu ekki undir ákvörðunum alþingismanna komin. Auðvitað er það þannig
    að í viku þar sem fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur verið að fjalla um
    hneykslismál Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, hefur verið að fjalla um
    milljónagreiðslur eins bæjarstjóra til fyrrverandi bæjarstjóra, þá mæta
    sögulega margir Sjálfstæðismenn í ræður um að veikja sjálfstæði RÚV.
    <ns:bjalla/> Auðvitað vekur þetta spurningar og það er eðlilegt að
    þingmaðurinn svari þessu, hvort það skipti ekki máli. Líkt og að standa
    vörð um einkarekna fjölmiðla <ns:bjalla/> þurfum við að standa vörð um
    fjárhagslegt sjálfstæði fjölmiðilsins í almannaþágu og að hann verði áfram
    í almannaþágu en ekki í þágu ráðandi stjórnvalda.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB"> Forseti vill biðja hv. þingmenn um að
    virða ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>

    <!--https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-15-taekniskolakludrid-flokksbrodir-fekk-milljonir-487179-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>