<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:45:04" skst="HildS" tegflm="L" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:46:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:45:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í fyrsta lagi finnst mér vont að heyra að fulltrúi
    stjórnarmeirihlutans fullyrði það svo gott sem að með meiri aðkomu
    pólitíkurinnar að ramma í kringum eina opinbera stofnun sem gerir mýmargt
    annað en að flytja fréttir, að þar með verði höfð pólitísk afskipti af
    þeirri stofnun. Ég segi bara: Margur heldur mig sig, frú forseti, og þetta
    var vont að heyra. Það eru engin minni pólitísk afskipti sem við erum að
    leggja til hér í þessu frumvarpi en hægt væri að hafa í dag. Það fer bara
    eftir því hver heldur á því valdi hverju sinni og ég hef reynt að temja
    mér að líta á þetta í mikilli armslengd frá pólitíkinni. Þær dylgjur sem
    eru lagðar á borð eftir að ég hef fært, held ég, frekar ágæt rök fyrir því
    að hér verði að sníða annan ramma í kringum fjölmiðlamál á Íslandi er það
    smættað niður í að Ríkisútvarpið hafi, hvað, flutt einhverjar fréttir af
    einhverjum hneykslismálum? <ns:bjalla/> Ég frábið mér þennan málflutning.
    Hann er fyrir neðan allar hellur. <ns:bjalla/> Og ég minni hv. þingmann á
    að það voru reyndar þingmenn í hans hv. stjórnarmeirihluta <ns:bjalla/>
    sem sögðu upphátt að það væru ákveðnir fjölmiðlar sem ættu ekki að fá
    opinbert fé vegna þess að þeim hugnaðist ekki fréttaflutningur af þeirra
    hneykslismálum. <ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="KÁB"> Forseti minnir aftur á
    ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>