<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:47:04" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:49:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:47:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir að
    mæla fyrir þessu góða máli og ég var nú raunar að vona í gegnum síðasta
    þingvetur að við fengjum að ræða það á síðasta þingi en betra nú en ekki.
    En ég verð að viðurkenna að hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar sló
    mig aðeins út af laginu hér rétt á undan með þessum furðuummælum sínum sem
    menn urðu vitni að hér áðan. Og kannski í því samhengi langar mig til að
    spyrja hv. þingmann hvort hv. þingmaður óttist ekki mögulega að hinn góði
    kafli um það sem er rammað inn, með hvaða hætti prentmiðlar og aðrir
    fréttamiðlar bera virðisaukaskatt í nágrannalöndum okkar, gæti orðið til
    þess að hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar og hans fylgisveinar sjái
    nýja glufu til leiðréttingar sem þarf að fylla í, færa þessa bölvuðu miðla
    upp í 24%. Raunverulega, miðað við nálgunina sem birtist hér rétt áðan á
    þetta mál og þá fjölmiðla sem hér starfa í samkeppni við Ríkisútvarpið,
    miðað við þá afstöðu sem hér birtist áðan, er staðan verri en ég hélt.
    Auðvitað er ég að grínast þegar ég velti því upp hvort þarna sé mögulega
    verið að benda hinni skattasjúku ríkisstjórn á viðbótarglufur til að fylla
    í eða loka fyrir undanþágur og þið þekkið allt þetta „jargon“.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En það sem mig langar að spyrja hv. framsögumann um er að mér
    þykir í frumvarpinu, öfugt við hv. þingflokksformann Samfylkingarinnar,
    einmitt býsna mikil vörn þarna inni fyrir þeim hlutverkum Ríkisútvarpsins
    sem ég held að sé almenn sátt um, lögbundnu hlutverkunum, mörgum hverjum,
    og þar fram eftir götunum. Er einhver greining hér undirliggjandi á því
    hver, þótt það komi ekki með beinum hætti fram í frumvarpinu, hver af
    störfum Ríkisútvarpsins eru í rauninni að sinna þessum lögbundnu
    hlutverkum og þeim sem ég tek undir að einhverju marki með hv. þingmanni
    að ætti að vernda, og síðan því sem er raunverulega kannski <ns:bjalla/>
    utan þess ramma sem lögin setja? Hlaðvörpin eru augljós þáttur en eru þeir
    fleiri sem hv. þingmaður hefur hugað að?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>