<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:49:43" skst="HildS" tegflm="L" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:51:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:49:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið en
    ég bið hann náðarsamlegast um að vera ekki að gefa hv. stjórnarmeirihluta
    meiri eða fleiri hugmyndir að einhvers konar skattaleiðréttingum, meintum.
    Nóg er af þeim nú þegar. Þannig að þarna segi ég bara stopp nú, hv.
    þingmaður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi seinni spurninguna þá held ég að það í rauninni bara
    blasi við — hlaðvörpin eru auðvitað alveg svona augljós — en það má líka
    spyrja. Nú er ég aðeins að hugsa, fyrir nokkrum árum starfaði ég fyrir
    einn einkamiðil í landinu og varð vitni að því, ef ég bara svona segi þá
    dæmisögu, þar sem var í rauninni svona útboðskeppni um hvor miðillinn
    myndi fá ákveðið vinsælt sjónvarpsefni og mér fannst algjörlega
    sjokkerandi að fylgjast með Ríkisútvarpinu, hinu opinbera fyrirtæki, koma
    bara og yfirbjóða með tugum milljóna ef ekki meira. Og einkamiðillinn gat
    ekkert gert í því. Einkamiðillinn sem á allt sitt undir því að bjóða upp á
    eitthvert sjónvarpsefni þar sem fólk kaupir áskriftir og fær þar með
    fjármagn til þess að halda úti fréttastofu sem núna er búið að loka. Mér
    þætti eðlilegt að við myndum spyrja okkur: Er eðlilegt að ríkissjónvarpið
    núna, og ég tala nú ekki um á tímum Netflix og fleiri, sé í þessu, að eyða
    stórum hluta af í rauninni opinberu fé, ef við ættum að orða það þannig, í
    þetta? Kannski er Barnaby bara alveg nóg. Ég ætla ekki að ákveða það, það
    er ekki mitt að ákveða það en mér finnst eðlilegt að við ræðum þetta
    aðeins á þessum forsendum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>