<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:51:57" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:53:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:51:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í seinna andsvari
    langar mig til að fagna því sérstaklega að hér séu festar á blað í
    frumvarpi tillögur sem komu fram í fjölmiðlanefnd sem Björgvin Guðmundsson
    fór fyrir og skilaði niðurstöðu sinni, var það ekki 2017, eitthvað þar um
    bil? Og margt góðra tillagna þar og þær sem ég tek sérstaklega eftir hér
    eru þær sem varða tryggingagjaldið og virðisaukaskatt af áskriftum. Án
    þess að ég hafi rifjað upp texta tillögu eða skýrslu þess tíma held ég
    meira að segja að tryggingagjaldið sé ítarlegar útfært og jafnvel betur
    gagnvart fjölmiðlunum en þar var gert. En kannski voru fleiri atriði úr
    þeirri vinnu, ef hv. þingmaður skoðaði það að einhverju marki við vinnslu
    þessa máls, sem hefðu komið til greina <ns:bjalla/> og væru til bóta hvað
    rekstrarumhverfi einkareknu miðlanna varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>