<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:53:15" skst="HildS" tegflm="L" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 14:54:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:53:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni hans seinna andsvar. Ég þakka
    honum einnig fyrir að með spurningu sinni minnti hann mig á að ég gleymdi
    að geta þess í framsögu minni að grunnurinn að þessu frumvarpi kemur frá
    þáverandi hv. þm. Óla Birni Kárasyni. Ég veit að hann fór yfir þessar
    tillögur sem einmitt voru mjög góðar. Við ræddum þetta á dögunum og
    nálgunin í þessu frumvarpi er það sem var okkar mat að væri raunhæfast og
    aðgengilegast og myndi skila mestum árangri hvað þetta varðar, svona á sem
    auðveldastan hátt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka nefna að Óli Björn Kárason, vinur minn, vildi að
    sjálfsögðu afnema styrkina til einkareknu fjölmiðlanna út af því að hann
    er mikill prinsippmaður og sér auðvitað hversu ofboðslega bagalegt það er
    að öll fjölmiðlun á Íslandi sé háð náðarsamlegri gjafmildi valdhafa hverju
    sinni. <ns:bjalla/> En hann sættist á að í þessum hryllilegu aðstæðum sem
    við erum í núna fyrir einkarekna miðla væri ekki hægt að kippa því alveg
    út, heldur frekar að reyna smám saman að rétta af stöðuna og síðan vonandi
    leggja þá af.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>