<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T14:54:46" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 15:10:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T14:54:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Hildi
    Sverrisdóttur fyrir framsögu sína í þessu mikilvæga máli sem varðar ekki
    eingöngu fjölmiðla, heldur í raun og veru lýðræði í landinu. Staða
    fjölmiðlunar á Íslandi krefst róttækra breytinga á allri lagaumgjörðinni.
    Það er óumdeilt að vandi einkarekinna fjölmiðla felst einkum og sér í lagi
    í því að tekjur þeirra, áskriftartekjur og auglýsingatekjur, hafa dregist
    saman á meðan kostnaður, þá einkum er varðar starfsmannahald, fer
    hækkandi. Þá felst rekstrarvandi íslenskra fjölmiðla einnig í skakkri
    samkeppnisstöðu við Ríkisútvarpið sem nýtur bæði opinberra fjárframlaga og
    keppir við einkaaðila um sölu auglýsinga. Þetta fyrirkomulag er einsdæmi á
    Norðurlöndunum og gerir það að verkum að frjálsir fjölmiðlar standa höllum
    fæti hérlendis. Þessu frumvarpi er ætlað að greiða úr þeirri
    stöðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo eru einnig aðrir þættir í rekstrarumhverfi fjölmiðla sem
    krefjast endurskoðunar og þá er ég að tala um bara fjölmiðlalögin sjálf.
    Þeim var ætlað að efla tjáningarfrelsi og sjálfstæði fjölbreyttra
    fjölmiðla en eru svo íþyngjandi með alls konar kvöðum að þau verka fremur
    sem myllusteinn um háls þeirra. Þá er ég að tala um litla hluti eins og
    til að mynda ákvæði um vatnaskil í línulegri dagskrá, sem kveða á um það
    til að mynda að það má ekki sýna þætti bannaða börnum innan 12 ára fyrir
    kl. 22 á föstudögum. En það er auðvitað látið átölulaust að börn á hvaða
    aldri sem er geti nálgast þetta í ólínulegri dagskrá, RÚV-sarpinum eða
    hvað hann nú heitir, á hverjum tíma. Það er líka atriði er varðar
    skráningarskyldu fjölmiðla. Við búum í frjálsu samfélagi þar sem
    atvinnufrelsi og tjáningarfrelsi er virt, en ef þú ætlar að hefja svona
    atvinnurekstur þá þarftu að skrá þig hjá hinu opinbera. Og svo eru hinu
    opinbera færðar miklar valdheimildir til þess að sekta fjölmiðla ef þeir
    fara einhvers staðar út af sporinu, hvort heldur er varðar þessi vatnaskil
    sem ég nefndi hér fyrr í ræðu minni eða hluti er varða til að mynda
    áfengis- og tóbaksauglýsingar sem eru bannaðar í núgildandi lögum. Þetta
    er auðvitað svolítið skrítið þegar þessir fjölmiðlar eru að keppa um
    auglýsingatekjur við erlenda samfélagsmiðla sem lúta ekki sömu lögmálum.
    Það er látið átölulaust líka. Áfengissöluaðilar og tóbaks- og
    nikótínsöluaðilar geta keypt auglýsingar og birt þær Íslendingum á
    samfélagsmiðlum þeirra en ekki hjá fjölmiðlum, einkareknum fjölmiðlum,
    sama á hvaða tíma sólarhringsins það er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er svona heildarmyndin og þessi vandi er gríðarstór. Í því
    sambandi vísa ég í úttekt Viðskiptaráðs frá mars 2024 en þar kemur m.a.
    fram að þeim sem starfa hjá einkareknum fjölmiðlum hefur fækkað um 69% frá
    árinu 2008. Það eru tæplega 70% færri starfsmenn hjá einkareknum
    fjölmiðlum í dag en var árið 2008. Á sama tíma hefur þeim fækkað um 16%
    hjá Ríkisútvarpinu. Þá hefur hlutdeild innlendra einkarekinna fjölmiðla í
    auglýsingatekjum minnkað um 39 prósentustig, farið úr 81% árið 2009 niður
    í 42% árið 2023. Þetta er að meginstefnu vegna tekjuaukningar erlendra
    miðla og þá er ég að tala um samfélagsmiðlana sem hafa farið úr 4% upp í
    49% á þessu tímabili. En það vekur athygli hvað varðar heildartekjur að
    Ríkisútvarpið hefur nokkurn veginn haldið sinni hlutdeild þrátt fyrir
    þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Staðan er grafalvarleg og nú er búið að leggja niður
    sjónvarpsfréttir Sýnar sem er áfall fyrir, ég segi bara, stjórnmálin og
    lýðræðið í landinu. Hæstv. menningarráðherra kynnti aðgerðaáætlun í
    desember 2025 sem er ætlað að leysa þessa stöðu en hvað skal segja, ég tel
    að uppleggið þar sé ekki vænlegt til árangurs og í raun og veru býsna
    skrýtið að mörgu leyti. Þarna er hugmynd til að mynda um að auglýsingafé,
    auglýsingatekjum RÚV verði veitt til annarra fjölmiðla, það sé einhver
    auglýsinga- eða sölustjóri hjá Ríkisútvarpinu sem hringir í fyrirtækin í
    landinu og biður þau um að auglýsa hjá sér, kannski magninnkaup eða hvað
    það nú er, og svo á 12% af því fé að renna til einkarekinna fjölmiðla.
    Þetta er einhvern veginn týpísk kerfislausn. Það er svona vinstri fnykur
    jafnvel af henni. Ég sé ekki að þetta geti nokkru breytt. Þá er þarna í
    raun og veru farið í öfuga átt við það sem er lagt til í því frumvarpi sem
    við ræðum hér í dag, þ.e. að felldar verði út kvaðir um fjölda rása þannig
    að Ríkisútvarpið geti breitt enn frekar úr sér. Þá vil ég einmitt í þessu
    sambandi segja að ég er fylgjandi Ríkisútvarpinu. Ég tel að það sé mjög
    mikilvægt gagnvart íslensku samfélagi, íslenskri menningu og íslenskri
    tungu. Ríkisútvarpið hefur mjög mikilvægu hlutverki að gegna þannig að því
    sé haldið til haga. En það er nákvæmlega ekkert fengið með því að
    Ríkisútvarpið sé að bjóða í, í samkeppni við innlenda fjölmiðla,
    bandaríska afþreyingarþætti. Það skilar engu nema því að verðið til
    íslenskra fjölmiðla verður hærra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo eru þarna aðrir þættir sem ég sé ekki ástæðu til að fjalla um
    í löngu máli. Auðvitað er þetta ekkert alslæmt. Það eru þarna aðgerðir til
    að stöðva hugverkaþjófnað á fjölmiðlaefni í sjónvarpi og margt fleira. En
    þetta tekur ekki á vandanum sem er einmitt bara sá að samkeppnisstaðan,
    hvort heldur sem er gagnvart Ríkisútvarpinu eða erlendum samkeppnisaðilum,
    er svo skökk að íslenskir fjölmiðlar berjast í bökkum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá komum við að efni þessa frumvarps sem er ætlað að tækla þessa
    stöðu að einhverju leyti. Það tekur reyndar ekki á því, og það er kannski
    bara næsta mál á dagskrá, sem ég nefndi hér fyrr, að fella út eftir því
    sem frekast er unnt íþyngjandi kvaðir í núgildandi fjölmiðlalögum. Ég hef
    sjálfur kynnt mér efni þeirra og eitthvað af reglunum þar er auðvitað
    komið úr Evrópuréttinum sem okkur ber skylda til að innleiða. En við
    athugun mína kemur í ljós að þar er um fullkomna blýhúðun að ræða oft á
    tíðum, þar sem svigrúm EES-réttarins er ekki nýtt heldur gengið jafn langt
    og kostur er, akkúrat til þess að setja kvaðir á fjölmiðlun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þarna er verið að búa þannig um hnútana að Ríkisútvarpið sinni því
    hlutverki sem það á og þarf að gegna. Það er mælt fyrir um brotthvarf
    Ríkisútvarpsins af auglýsingamarkaði, sem er nauðsynlegt skref að mínu
    viti. Það er mælt fyrir um það að Ríkisútvarpið verði þá sjálfstæð, mér
    finnst rétt að það komi líka fram, ríkisstofnun sem lýtur stjórn
    útvarpsráðs og heyrir ekki undir boðvald ráðherra líkt og kannski mátti
    skilja af umræðum hér aðeins fyrr í dag. Þetta skiptir máli. Þá er þarna
    mælt fyrir um það að í staðinn fyrir útvarpsgjald fari Ríkisútvarpið
    einfaldlega á fjárlög. Ég tel að það fari betur á því af mörgum ástæðum.
    Það er eðlilegra og eins og kemur svo sem fram, út af því að
    útvarpsgjaldið er nefskattur, þá hefur gjaldið mismikil áhrif á, á fjárhag
    heimilanna. Það er sem sagt ekki háð tekjum viðkomandi heimilis. Þannig að
    þetta horfir til einföldunar og meiri sanngirni að mínu viti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá er mælt fyrir um ívilnanir til einkarekinna fjölmiðla í stað
    styrkja. Ég er þeirrar skoðunar að það sé hlutverk okkar, stjórnmálanna,
    löggjafans að búa þannig um hnútana að setja almennar reglur sem
    einkamarkaðurinn getur svo spilað eftir og blómstrað. Styrkjakerfið er
    einhvers konar neyðarlausn, kannski besta hugmyndin sem stjórnmálin gátu
    sammælst um á þeim tíma, en hún býður heim þeim freistnivanda sem við
    höfum fjallað um hér í dag, sem sagt að stjórnmálin fari að ákveða hvaða
    fjölmiðlar fái styrki og hverjir ekki. Og það er bara svo vandasamt í
    lýðræðisþjóðfélagi að ég vil forðast það eftir fremsta megni, einmitt til
    þess að bjóða ekki heim þeirri hættu eins og birtist hér í fyrra, að
    stjórnmálamönnum, jafnvel stjórnarþingmönnum, sem mislíkar aðhald,
    lýðræðislegt aðhald fjölmiðla í landinu fari svona að leitast við að hefna
    sín. Það gengur auðvitað ekki. Þess í stað er farin hérna þessi almenna
    leið um ívilnanir til einkarekinna fjölmiðla í stað styrkja.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þar má nefna tvennt. Það er í fyrsta lagi undanþága frá greiðslu
    tryggingagjalds af launum. Þetta hefur gríðarlega mikla þýðingu. Ég þekki
    það nú bara sjálfur sem sjálfstæður atvinnurekandi, kannski með 12
    starfsmenn á launaskrá, og tryggingagjaldið munar því bara hvort þeir væru
    13 þannig að tryggingagjaldið getur verið býsna stór biti í svona rekstri.
    Hitt atriðið er sú breyting að búa þannig um hnútana að virðisaukaskattur
    leggist ekki á áskriftir innlendra fjölmiðla. Virðisaukaskatturinn hér á
    landi er hærri en annars staðar. Í Danmörku er enginn virðisaukaskattur og
    í Noregi er hvorki innheimtur virðisaukaskattur af prentmiðlum né
    netmiðlum. Ég held að þetta sé skynsamlegt mál, að uppleggið sé
    skynsamlegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum, ég sé nú að tími minn fer að klárast, vil ég vekja
    athygli, frú forseti, á umsögn Blaðamannafélags Íslands frá síðasta hausti
    um frumvarp um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Þar kemur
    Blaðamannafélagið einmitt inn á þessi tvö seinni atriði sem ég var að
    nefna. Blaðamannafélagið kemur hér með tíu tillögur um aðgerðir til að
    bæta stöðu íslenskra fjölmiðla og efla blaðamennsku. Og þar er liður nr. 2
    að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Blaðamannafélagið leggur til að
    Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Svo er fjallað um
    hagfelldara skattumhverfi fyrir fjölmiðla og það er þá einmitt akkúrat
    þetta sem ég var að ræða hér, annars vegar að fella niður
    virðisaukaskattinn og hins vegar tryggingagjaldið. Blaðamannafélagið talar
    fyrir þessu.</ns:mgr>

    <!--bæti inn "frumvarp um" (stuðning við einkarekna fjölmiðla). Svo er númeraður listi í umsögn BÍ þannig að ég hef nr. 2/st.-->

    <ns:mgr>Svo að lokum það sem ég tel rétt að nefna og mætti kannski skoða
    nánar, þ.e. einhvers konar heildarstefnumótun í málaflokki fjölmiðla sem
    er kannski heila málið, er grundvöllur árangurs. Annars förum við af leið
    eins og ég tel að hafi gerst með fjölmiðlalögin þar sem uppleggið var að
    efla tjáningarfrelsi, styrkja blaðamennsku í landinu og efla fjölmiðlana,
    en þess í stað sitjum við uppi með þá stöðu að ríkisvaldið krefst þess að
    hlaðvörp séu skráð hjá hinu opinbera og að ef venjulegt sjónvarpsefni sem
    er þó bannað börnum innan 12 ára <ns:bjalla/> birtist fyrir kl. 22 á
    föstudögum þá þarf að greiða sekt fyrir það. — Ég hef lokið máli mínu,
    forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>