<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T15:10:17" skst="JGunn" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 15:21:04 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T15:10:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þetta mál snýst um hlutverk ríkisins á
    fjölmiðlamarkaði. Það snýst um það hvort eðlilegt sé að ríkið sé stærsti
    einstaki aðilinn á markaði sem á sama tíma á að byggja á fjölbreytni,
    samkeppni og ólíkum sjónarmiðum. Við þurfum reglulega að endurmeta gamlar
    forsendur með samfélagslegum breytingum. Það er nauðsynlegt. Ef það færi
    fram þarfagreining í dag, myndi einhver leggja til að eitt af mikilvægustu
    hlutverkum ríkisins væri að reka stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins? Ég
    tel að fæstir myndu komast að þeirri niðurstöðu. Líklegt er að áherslan
    yrði frekar lögð á heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, öryggi og
    innviði, svo eitthvað sé nefnt. Til þess að komast að annarri niðurstöðu
    þarf sérstaka sýn, þá sýn að ríkið sé talið best til þess fallið að vera
    alls staðar fyrirferðarmikið. Væri einhver sérstök ástæða fyrir því að
    ríkið ræki ríkisdagblað og dreifði því inn á hvert heimili á kostnað
    skattgreiðenda? Ég held að flestir myndu telja það óeðlilegt. Samt eru
    rökin í grunninn þau sömu. Ef ríkið á að vera ráðandi á einum hluta
    fjölmiðlamarkaðarins þarf að útskýra hvers vegna sömu rök eiga ekki við
    annars staðar. Fjölmiðlaheimur dagsins í dag er allt annar en hann var
    fyrir nokkrum áratugum. Þá voru fáar leiðir til miðlunar upplýsinga. Nú
    búa landsmenn við nánast ótakmarkað aðgengi að efni frá innlendum og
    erlendum miðlum. Hlaðvörp, streymisveitur, netmiðlar og samfélagsmiðlar
    hafa gjörbreytt stöðunni. Það sem kann að hafa verið réttlætanlegt á sínum
    tíma fyrir mörgum áratugum er ekki réttlætanlegt í dag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Undirritaður var fyrsti yfirmaður auglýsingadeildar Stöðvar 2 og
    ég man vel eftir því fyrstu árin þegar sjálfstæðir ljósvakamiðlar reyndu
    að hasla sér völl. Markaðurinn var vanur að auglýsa í sjónvarpi ríkisins
    eða í <ns:skáletrað>Morgunblaðinu.</ns:skáletrað> Það þurfti að hugsa út
    fyrir boxið, koma með nýjungar í framleiðslu sjónvarpsauglýsinga, opna þá
    leið fyrir fleirum, efla kostun og fjölmargar aðrar nýjungar sem þykja
    sjálfsagðar í dag. Það tók tíma að sannfæra auglýsendur um að nýr
    valkostur væri til staðar. Þetta var hörð barátta og það var aldrei
    auðvelt að keppa við aðila sem naut yfirburðastöðu og beitti henni
    grímulaust. Auglýsingamarkaðurinn hefur tekið miklum breytingum á 40 árum
    eða frá því að sjálfstæðir ljósvakamiðlar fóru í loftið. Áður stóð valið á
    milli örfárra miðla. Í dag sækja alþjóðlegir tæknirisar stóran hluta
    auglýsingatekna. Innlendir fjölmiðlar glíma við meiri samkeppni en nokkru
    sinni fyrr. Við þær aðstæður þarf sérstaklega að huga að því að ríkið
    skapi ekki frekara ójafnvægi á þessum markaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar litið er yfir stöðuna í dag er erfitt að komast að annarri
    niðurstöðu en að RÚV sé í raun fíllinn í kristalsbúðinni. Það ber höfuð og
    herðar yfir aðra fjölmiðla þegar kemur að umfangi, fjárhagslegum styrk og
    möguleikum til dagskrárgerðar. Það er ekki gagnrýni á starfsfólk RÚV
    heldur á kerfið sjálft. Þegar einn aðili er orðinn svo sterkur hefur það
    óhjákvæmilega áhrif á allt í kringum sig, allt það umhverfi sem þessi
    fjölmiðill starfar í. Smærri fjölmiðlar þurfa síðan sífellt að laga sig að
    nýjum veruleika sem þeir hafa ekki mótað sjálfir og hafa takmarkaða
    möguleika á að bregðast við. Þegar ríkið leggur milljarða króna árlega til
    eins aðila skapast ruðningsáhrif. Einkareknir fjölmiðlar þurfa að afla
    allra sinna tekna á markaði en keppa við aðila sem nýtur gríðarlegs
    stuðnings. Afleiðingin er minni fjölbreytni, minni fjárfesting og færri
    sjálfstæðar raddir. Það er því þversagnarkennt þegar slíkt fyrirkomulag er
    réttlætt með vísan til fjölbreytni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Farin hefur verið sú leið að gefa hér ölmusu úr hnefa ríkissjóðs
    með pólitísku inngripi eins og dæmin sanna. En það var auðvitað alveg
    sérlega ósmekklegt og sýnir innrætið í þeim hv. þingmönnum sem þannig
    töluðu þegar þessi mál voru til umræðu hér á síðasta þingi og menn fóru að
    tala um að það ætti að draga úr framlögum til ákveðinna miðla af því að
    þeir þóknuðust ekki málflutningi ríkisstjórnarflokkanna. Þetta sýnir í
    raun að hin pólitíska staða er alvarleg þegar kemur að þessu, þegar
    viðhorf ákveðinna þingmanna innan ríkisstjórnarflokkanna eru opinberuð með
    slíkum hætti. Þessi ölmusa úr hnefa ríkissjóðs er hættuleg. Hún er
    óskynsamleg nálgun. Það sem þarf að gera er að breyta umhverfinu með þeim
    hætti að sjálfstæðir fjölmiðlar geti þrifist í öflugri samkeppni við
    ríkisfjölmiðil sem er sjálfsagt að draga úr umfangi á starfseminni
    hjá.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Lýðræði krefst fjölbreytni í umræðu. Við þurfum raddir. Það þarf
    samkeppni hugmynda. Það þarf ólíka ritstjórnarstefnu. Það þarf sterka
    miðla sem geta veitt stjórnvöldum aðhald. Ríkisfjölmiðill getur mögulega
    verið hluti af þeirri mynd en hann getur aldrei komið í staðinn fyrir
    fjölbreytt fjölmiðlaumhverfi. Það er alvarlegt þegar forystumenn
    ríkisstjórnar velja sér að hentugleika vettvang til umræðu í fjölmiðlum.
    Þegar ráðherrar neita að koma í samtalsþætti hjá samkeppnisaðilum
    ríkisfjölmiðilsins, eins og hjá <ns:skáletrað>Morgunblaðinu</ns:skáletrað>
    eða öðrum miðlum þar sem þeir eiga von á krefjandi spurningum og harðri
    gagnrýni. Þeir kjósa að fara frekar í viðtöl þar sem minna reynir á
    málstað þeirra, gjarnan í svokölluð drottningarviðtöl. Þetta er auðvitað
    mjög alvarlegt mál og veikir opna umræðu. Valdhafar eiga að vera
    reiðubúnir að mæta gagnrýnum spurningum og þeir eiga að hafa þá skyldu að
    mæta þar sem þeim er boðið. Þetta er auðvitað enn mikilvægara í ljósi
    þeirrar þróunar sem hefur orðið í fjölmiðlaumhverfinu. Þingflokksformaður
    Samfylkingarinnar kom hér í pontu áðan í andsvari og hafði orð á mikilvægi
    frjálsra fjölmiðla, því aðhaldi sem þeir veittu stjórnmálum og
    stjórnmálamönnum. Framferði forystumanna ríkisstjórnarinnar, ráðherra
    ríkisstjórnarinnar, þar sem þeir neita að mæta hjá ákveðnum
    fjölmiðlamönnum eða í ákveðnum fjölmiðlum til umræðu, er ein leið líka til
    að veikja þetta umhverfi, til að draga úr mætti frjálsrar fjölmiðlunar og
    eflingu umræðunnar. Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál, virðulegur
    forseti, og algjörlega ómöguleg staða. Hvort þetta er merki um lítið
    sjálfstraust eða hreinlega það að markmiðið sé að veikja svo gagnrýna
    fjölmiðlaumræðu á hverjum tíma að það sé með skipulögðum hætti gert. Hvort
    tveggja eða hvað sem veldur þessu er alvarleg staða og það er ástæða til
    að hvetja hæstv. ráðherra til að láta af þessari vitleysu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ríkið á að tryggja ákveðna almannaþjónustu.
    Það á að tryggja að fjölmiðlar séu þátttakendur í öryggi borgaranna, að
    hugað sé að framleiðslu á öflugu menningarefni, að dreifingu öflugrar
    fjölmiðlunar um allt land og að sinna verkefnum sem markaðurinn hefur
    kannski ekki nægileg tækifæri til að sinna. En það á ekki að vera með þeim
    hætti að ríkið reki stærsta fjölmiðlafyrirtæki landsins á mörgum sviðum.
    Það er hægt að gera með mörgum öðrum leiðum, til að mynda að bjóða út
    fjármagn til slíkrar dagskrár- eða fjölmiðlaútgáfu. Það er hægt að
    skilgreina verkefnið betur og kaupa þjónustuna með gagnsæjum hætti. Um
    þetta höfum við fjöldamörg önnur dæmi í okkar samfélagi þar sem við höfum
    kosið að fara með miklu opnari hætti út á markaðinn. Vegagerðin rekur ekki
    fyrirtæki sem byggir vegi eða grefur göng. Þannig eru auðvitað fjölmörg
    verkefni rekin í okkar samfélagi þar sem við reynum að fara sem best með
    og fá sem mest fyrir skattfé borgaranna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég er sannfærður um að ef óháð þarfagreining
    færi fram á íslenskum fjölmiðlamarkaði í dag yrðu lykilorðin fjölbreytni,
    samkeppni, hagkvæmni og öflug samfélagsleg þjónusta. Frumvarpið er varlegt
    skref í þá átt. Það er ekki endapunktur. Það er upphaf að nauðsynlegri
    umræðu um framtíð fjölmiðlunar og hlutverk ríkisins á þeim
    vettvangi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>