<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T15:21:23" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 15:36:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T15:21:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að hér sé til umræðu
    frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á
    rekstrarumhverfi fjölmiðla sem fyrsti flutningsmaður, hv. þm. Hildur
    Sverrisdóttir, gerði svo skýra grein fyrir hér í upphafi umræðunnar og það
    er heiður að fá að vera flutningsmaður með henni á þessu máli. Staða
    fjölmiðla og ekki síst yfirgnæfandi staða ríkismiðilsins hefur verið til
    umræðu í mörg, mörg ár í okkar samfélagi, komið hér inn á hv. Alþingi
    ítrekað, oft og einatt, og í samfélaginu öllu þar sem uppi hafa verið
    áhyggjur af þessari yfirburðastöðu og áhrifum hennar á hinn frjálsa markað
    fjölmiðla. Því að við viljum vera í hópi þeirra ríkja þar sem fjölmiðlar
    geta starfað hlið við hlið, ríkisreknir og sjálfstætt reknir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég hef komið inn á hérna áður nýlega erum við núna, með
    því að Sýn hættir sjónvarpsfréttaþjónustu sinni, komin í hóp örfárra ríkja
    sem þannig er ástatt um. Það eru teljandi á fingrum annarrar handar,
    kannski beggja handa, þau ríki sem þannig er ástatt um og það er ekki
    merki um að það sé boðið upp á góða lýðræðislega umræðu í samfélaginu
    þegar slík einokunar- eða yfirburðastaða er raunin. Eins og ég segi hefur
    staða RÚV, staða frjálsra fjölmiðla og einkamiðla á markaðnum verið
    sífellt umfjöllunarefni. Fjölmiðlar á einkamarkaðnum hafa verið að berjast
    í bökkum í áratugi og sífellt er verið að reyna að benda á leiðir til að
    laga þessa stöðu. Núna síðast í aðgerðaáætlun hæstv. menningar-,
    nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur verið lögð fram aðgerðaáætlun um
    hvernig megi laga þessa samkeppnisstöðu og þær tillögur fengu síðastliðinn
    vetur hörð viðbrögð frá forsvarsmönnum stærstu fjölmiðlanna. Auðvitað
    grípa menn kannski í allar svona bjargir sem bjóðast hverju sinni en að
    vera stöðugt í þessu eilífa ströggli, þessu eilífa harki, gengur
    náttúrlega ekki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Núna þegar það stóra fjölmiðlafyrirtæki Sýn, áður Stöð 2, ákvað að
    hætta sinni sjónvarpsfréttaþjónustu varð ákveðinn vendipunktur að mínu
    mati. Það eru kaflaskil og þess vegna ber maður þá von í brjósti og trúir
    því einlæglega að á þessu þingi núna sé hægt að fara í raunverulegar
    breytingar, að það sé hægt að laga þessa stöðu þannig að frjálsir
    fjölmiðlar geti starfað í eðlilegra samkeppnisumhverfi. Í þessu tilviki er
    ákveðið hjá Sýn að hætta sjónvarpsfréttamennsku en af metnaði, krafti og
    frumkvæði sem býr þar inni eru fréttastofan og starfsmenn að leggja mikið
    á sig og sýna mikið frumkvæði og kraft í því að miðla fréttum með öðrum
    hætti í gegnum sína netmiðla og slíkt og má dást að því og þakka fyrir
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það að einungis ein sjónvarpsfréttastöð sé ríkjandi er óviðunandi
    ástand í lýðræðisríki sem okkar, þótt við vitum að notkun á fjölmiðlum
    hafi svo sannarlega breyst mjög mikið núna undanfarin ár og taki sífelldum
    breytingum og það að fólk fylgist með línulegri dagskrá og fréttatímum.
    Við vitum að notkun á slíku hefur snarbreyst. Engu að síður eru
    sjónvarpsfréttir sendar út á sjónvarpsrásum þær fréttir og þeir miðlar sem
    langmestu áhrifin hafa í lýðræðislegri umræðu og í lýðræðislegu
    þjóðfélagi. Enda eru í nágrannalöndunum okkar, sem við berum okkur oft
    saman við eins og á Norðurlöndunum, yfirleitt starfandi í hverju landi
    nokkrar sjónvarpsfréttastöðvar hlið við hlið og þar hafa verið gerðar
    ákveðnar breytingar á ríkismiðlum. Bara á allra síðustu árum hafa verið
    gerðar þær breytingar sums staðar að ríkismiðlum í viðkomandi löndum er
    ekki heimilt að vera á auglýsingamarkaði. Við erum eina landið á
    Norðurlöndunum sem hefur leyft það. Þannig að það er eitthvað. Og á sama
    tíma og gerðar hafa verið breytingar hafa undanfarin ár verið gerðar
    breytingar á hlutverki ríkismiðils á hverjum stað og skilgreint hvernig
    honum beri að vera og hverju hann eigi að sinna í fjölmiðlaþjónustu
    ríkismiðla á tilteknum stöðum. Það er eitthvað sem er kveðið á um í þessu
    frumvarpi, þessu ágæta frumvarpi sem er mjög víðfeðmt og hefur verið rakið
    vel úr þessum ræðustóli hérna fyrr í dag, það er meðal þess sem nefnt er,
    að það þurfi að skilgreina hlutverkið betur. Og sú sem hér stendur hefur
    lýst því yfir og er með í undirbúningi sérstaka tillögu sem tekur bara á
    því að gerð verði úttekt á starfsemi Ríkisútvarpsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er kominn sá tímapunktur, það er ákveðinn vendipunktur í
    fjölmiðlaumhverfi á Íslandi núna. Við hljótum að geta sammælst um að við
    þurfum að endurskoða og endurskilgreina hvert hlutverk RÚV á að vera. Það
    er svo sem skýrt hvert hlutverkið á að vera. Það er að sinna almanna- og
    öryggisþjónustu, það er að rækta íslenska menningu, sögu og ég tala nú
    ekki um íslenska tungu og að sinna áreiðanlegri fréttaþjónustu. En
    Ríkisútvarpið er svo sannarlega komið dálítið út fyrir það að mínu mati og
    það er eitthvað sem við þurfum að skoða eins og nágrannalöndin hafa gert á
    undanförnum árum. Og til þess að það sé gert sérstaklega gerir
    þingsályktunartillagan, sem ég mun leggja fram á allra næstu dögum, ráð
    fyrir að skipaður verði starfshópur á vegum hæstv. ráðherra sem hafi þetta
    hlutverk: að greina starfsemi Ríkisútvarpsins. Og það er að mínu viti mjög
    stór þáttur í að við náum dálítið utan um það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og hér hefur komið fram oftar en einu sinni er Ríkisútvarpið
    komið í hlaðvarpagerð í samkeppni við önnur hlaðvörp og fjölmiðlanefnd
    hamast á einkareknum hlaðvörpum og vill koma á þau íþyngjandi böndum.
    Ríkisútvarpið er í hlaðvarpagerð. Það er að setja mikla krafta í
    samfélagsmiðla eins og TikTok og fleira slíkt. Þótt það sé einfalt efni og
    spennandi og skemmtilegt tekur það tíma. Það eru starfsmenn í því. Þannig
    að ég vona svo sannarlega að við getum komist að samkomulagi um að gera
    eins og frændur okkar á Norðurlöndunum, fara sérstaklega í slíka vinnu.
    Fyrir utan allar aðrar tillögur sem koma fram í þessu frumvarpi sem er hér
    til umræðu akkúrat núna, og hér er lagt fram, er auðvitað stærsta
    aðgerðin, sem kallað hefur verið eftir í mjög mörg ár, að taka RÚV af
    auglýsingamarkaði. Hér hafa verið raktar leiðirnar sem lagt er til að
    farnar verði til þess að jafna stöðuna en tryggja samt RÚV áfram og
    starfsemi þess. En þá þurfum við að átta okkur á því hvað RÚV á að vera
    stórt, hverju það á nákvæmlega að sinna og hvar það er í rauninni að sinna
    verkefnum sem sjálfstætt rekin fyrirtæki, félög eða einstaklingar geta
    jafn vel og ekki síður sinnt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum komin á þann stað í þessu breytta umhverfi þar sem
    samfélagsmiðlar, hlaðvörp og hvaðeina taka til sín meiri athygli og
    hlustun og fólk notar slíka miðla í gríðarlega auknum mæli. Þarf RÚV að
    vera þar líka? Eigum við ekki að einbeita okkur að því sem grunnhlutverkið
    er og var sett stefna um? Ég ítreka að nú þegar fréttastofa Stöðvar 2,
    Sýnar, hætti útsendingum urðu kaflaskil sem við þurfum að horfa til. Það
    gerðist í kjölfar þess að síðastliðinn vetur, þegar hæstv. ráðherra lagði
    fram aðgerðaáætlun sína í fjölmiðlum til þess að reyna að koma með
    einhverja plástra til þeirra sem eru að berjast á þessum markaði, komu
    mjög ákveðnar og alvarlegar athugasemdir frá stóru fjölmiðlunum eins og
    Sýn um að þeim hugnaðist ekki þessi plástravinna sem væri í gangi og það
    þyrfti að fara í ítarlegri skoðun og aðgerðir. Ég hef sagt það hér áður,
    og geri það aftur, að það var eiginlega neyðaróp. Ef það yrði ekki gert
    væri einsýnt um hvert framhaldið yrði og nú hefur það gerst. Og hvað
    verður það næst ef RÚV leikur áfram þetta hlutverk? Það er með
    yfirburðastöðu á markaðnum, er á öllum vígstöðvum og samkeppnin verður
    óbærileg. Hvað verður það næst sem gengur úr skaftinu hjá okkur?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er náttúrlega einstaklega dapurt að horfa upp á þetta hafa
    gerst og maður vonar svo sannarlega að það sé hægt að búa til umhverfi þar
    sem framsækið fólk og fyrirtæki fara af stað aftur með
    sjónvarpsfréttarekstur en þetta gerist eftir 40 ár, á 40 ára afmæli þess
    fyrirtækis sem um ræðir. Það eru nákvæmlega 40 ár síðan fyrstu
    sjónvarpsfréttir þá Stöðvar 2 og nú Sýnar voru fluttar. Það var ekkert
    smáskref. Það var stórkostlegt skref sem hafði verið barist fyrir í mörg
    ár, að frelsi yrði gefið á ljósvakamiðlinum, og með stolti get ég sagt frá
    því að sú sem hér stendur tók þátt í því fyrir rúmum fjörutíu árum, það
    trúir því náttúrulega enginn, að berjast fyrir frjálsu útvarpi. Það
    gerðist í upphafi níunda áratugarins þegar ríkisstarfsmenn fóru í verkfall
    og Ríkisútvarpið lét af sínum útsendingum. Þá fór af stað hugsjónafólk sem
    barðist fyrir frelsi á þessum markaði og það hafði þær afleiðingar að
    stuttu síðar náðu slíkar hugmyndir í gegn og þess vegna er einstaklega
    dapurt að horfa upp á að á þessum tímamótum, afmæli þessa fyrirtækis,
    skuli þeir hafa neyðst til að hætta útsendingum sjónvarpsfrétta. En lögum
    þetta saman. Þetta er vendipunktur sem við þurfum að taka
    alvarlega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>