<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T15:36:54" skst="IAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 15:42:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T15:36:54">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Frjáls fjölmiðlun er gríðarlega mikilvæg og öll
    ríkisafskipti af fjölmiðlum eiga að vera varfærnisleg. Staðan sem er uppi
    í fjölmiðlum í dag er grafalvarleg. Eini fréttatíminn í línulegri dagskrá
    er frá Ríkisútvarpinu, annars er miðlun frétta búin að færast yfir á
    internetið. Fjölmiðlun af hendi Sýnar er nú rekin undir formerkjum
    Bylgjunnar og Vísis. 40 ára sjónvarpsfréttaflutningi frá Stöð 2, og nú í
    seinni tíð Sýn, lauk núna nýverið. Við viljum hafa fjölbreytta flóru af
    sjálfstæðum fjölmiðlum sem hafa fjárhagslega burði til þess að veita
    stjórnvöldum, stjórnmálamönnum, fyrirtækjum og öðrum valdhöfum aðhald.
    Aðeins ein sjónvarpsfréttastofa er starfandi í landinu og það er
    ríkisrekin fréttastofa — aðeins ein ríkisrekin sjónvarpsfréttastofa. Þetta
    er grafalvarlegt mál. Í löndum eins og Norður-Kóreu og Túrkmenistan er
    sama staða uppi: Aðeins ein ríkisrekin sjónvarpsfréttastofa. Þetta eru
    lönd sem við berum okkur alls ekki saman við og viljum aldrei vera stödd á
    sama stað og þau.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisútvarpið vex og tekur til sín auglýsingatekjur. Hérna er
    frumvarp sem mælir fyrir um það að Ríkisútvarpið hverfi af
    auglýsingamarkaði. Það myndi auka samkeppni annarra einkarekinna fjölmiðla
    til muna og hefði mögulega verið líflína fyrir fjölmiðla sem nú eru ekki
    lengur til. Við sjáum rándýr auglýsingapláss, eins og t.d. fyrir
    áramótaskaupið, Söngvakeppnina og Eurovision. Það má meira að segja halda
    því fram að eftir að RÚV tók þá ákvörðun að taka ekki þátt í Eurovision sé
    búið að selja þau auglýsingapláss, t.d. fyrir Söngvakeppnina, og þess
    vegna hafi verið búinn til þáttur svo hægt væri að nýta þessi pláss og fá
    þessa peninga. Þetta er einungis getgáta en ég held að það sé ansi nærri
    sannleikanum. Við eigum að stefna að markaði þar sem einkareknir
    fjölmiðlar hafa raunverulegt svigrúm til að vaxa, fjárfesta í blaðamennsku
    og standa á eigin fótum. Þess vegna er umræðan um stöðu RÚV á
    auglýsingamarkaði miklu stærri en spurningin um auglýsingar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það væri heillaskref að setja RÚV á fjárlög. Báknið þenst út eftir
    því sem Íslendingum fjölgar og RÚV tekur til sín tekjur sem verða alltaf
    hærri og hærri. Með því að RÚV verði sett á fjárlög myndi það hafa
    skilgreint fjármagn til þess að eyða. Manni sýnist á öllu hjá
    Ríkisútvarpinu að úr nógu sé að moða: TikTok, fjöldamörg hlaðvörp og
    fleiri og fleiri starfsmenn. Fjárframlög ríkissjóðs til Ríkisútvarpsins
    eru núna t.d. 7 milljarðar að undanskildum auglýsingatekjum. Svo koma 3
    milljarðar inn af auglýsingatekjum. Þessir 3 milljarðar hefðu t.d. verið
    ansi góð innspýting fyrir aðra fjölmiðla í landinu. Ef RÚV hefði ekki
    verið á auglýsingamarkaði þá værum við kannski með fleiri starfandi
    sjónvarpsfréttastofur. Hver veit?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Almannavarnahlutverk Ríkisútvarpsins er ekki eins mikilvægt og það
    var hér áður fyrr. RÚV hefur meira að segja verið síðast til að flytja
    fréttir um náttúruvá, eins og sýndi sig ítrekað hvað varðar Reykjaneselda.
    Einkareknir fjölmiðlar fengu nýverið aukafjárframlag frá ríkissjóði vegna
    þess að þeir sýndu vissulega fram á að þeir sinna líka
    almannavarnahlutverki. Þetta átti að vera líflínan sem hið opinbera
    kastaði til einkarekinna fjölmiðla. Og hvert erum við komin núna þremur
    mánuðum seinna? Alls ekki á betri stað. Við eigum að hleypa súrefni inn í
    þennan geira og byggja undir þær stoðir þannig að hérna verði frjáls
    fjölmiðlun í hávegum höfð, en ekki gera fjölmiðla að þiggjendum frá ríkinu
    og beita þeim á ríkisjötuna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo göngum við svo langt að fjölmiðlanefnd sendir
    hlaðvarpsstjórnendum ítrekað bréf og skipar þeim að skrá sig sem fjölmiðil
    þegar þetta eru stundum bara vinir að ræða málefni líðandi stundar. Og ef
    þau skrá sig ekki sem fjölmiðil þá skulu þau sko borga háa sekt, allt að
    10 millj. kr. Hvert erum við eiginlega komin? Inngrip ríkisins í frjálsa
    fjölmiðlun er hættulegt. Við höfum séð stjórnarliða og ráðherra ítrekað
    reyna að höggva í einn ákveðinn fjölmiðil. Þeir neita að koma þangað og
    það hefur gengið svo langt og því haldið fram að þessi miðill eigi sko
    ekki að fá jafn mikinn pening og hinir. Þetta er grafalvarlegt. Fjölmiðlar
    eiga að veita okkur stjórnmálamönnum aðhald með því að spyrja spurninga,
    oft erfiðra spurninga, en til þess eru fjölmiðlar. RÚV hefur verið
    ríkjandi á markaðnum í allt of langan tíma og er með gríðarlegt forskot á
    aðra fjölmiðla. Ég tel að þetta frumvarp, ef það nær fram að ganga, yrði
    frjálsri fjölmiðlun til heilla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður og framsögumaður, Hildur Sverrisdóttir, fór yfir
    þetta hérna í afar góðri ræðu. Við þurfum að íhuga verulega hvernig
    umhverfi við viljum skapa frjálsum fjölmiðlum í þessu landi. Við sem
    sitjum í þessum sal sköpum þetta umhverfi; hvort við viljum reyna að hafa
    margar raddir í staðinn fyrir fáar, hvort þetta á að vera áfram í
    núverandi ástandi eða ekki o.s.frv. Við þurfum að gera eitthvað a.m.k. því
    að núverandi staða er óboðleg og grafalvarleg.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál heils hugar og vona að það
    nái fram að ganga, íslensku fjölmiðlaumhverfi til heilla. — Ég hef lokið
    máli mínu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>