<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T15:43:04" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 15:58:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T15:43:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="14">
      <ns:málsheiti>endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hér er um mjög mikilvægt mál að ræða og ég þakka
    framsögumanni Hildi Sverrisdóttur fyrir einkar góða framsögu og góð svör
    við andsvörum sem komu í kjölfar hennar framsögu. Það ber líka að þakka
    hv. fyrrverandi þingmanni, Óla Birni Kárasyni, fyrir að taka þetta mál
    saman og gera það svona vel því þarna liggur mikil vinna að baki. Þetta er
    ekki eitthvað sem er hent inn í gervigreindina og prentað út, einn, tveir
    og þrír. Þarna er mikil og góð vinna að baki enda málefnið brýnt og
    skiptir máli að það sé vandað til verka þegar við ræðum um Ríkisútvarpið,
    sem ég held að langflestum landsmönnum þyki afar vænt um.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessari ræðu minni langar mig svolítið að setja þetta frumvarp,
    sem við í Sjálfstæðisflokknum erum að leggja fram, í almennt samhengi og
    almennan búning og reyna að taka dæmi sem gætu lýst stöðunni þannig að
    fólk fái vonandi gleggri mynd af því sem við viljum að gangi fram, þ.e. í
    þessu frumvarpi. Spyrjum okkur að því: Ef við værum að hanna íslenskan
    fjölmiðlamarkað frá grunni í dag, myndum við gera þetta svona eins og
    þetta er í dag? Ef við fengjum bara autt blað, myndum við gera þetta
    svona? Myndum við stofna stórt ríkisrekið fjölmiðlafyrirtæki og fjármagna
    með milljörðum úr sameiginlegum sjóðum landsmanna, senda það síðan út á
    markaðinn til að keppa um sömu auglýsingakrónurnar og fyrirtækin sem þurfa
    sjálf að afla hverrar krónu sem þau eyða? Við skulum átta okkur á því að
    einkareknir fjölmiðlar ganga ekki fyrir neinu öðru en auglýsingatekjum.
    Það er þeirra lífæð, það er þeirra sólarljós eins og grænu
    plöntunnar.</ns:mgr>

    <!--15:45:17, heyri ekki betur en hann segi "grænu plöntunnar"-->

    <ns:mgr>Annað dæmi: Segjum að okkur þætti mataræði landsmanna vera orðið
    vont og við myndum vilja tryggja að allir fengju heilnæmt og gott brauð.
    Við myndum stofna ríkisbakarí og ríkissjóður tryggði reksturinn og borgaði
    húsnæði, starfsfólk og grunnreksturinn. En eftir að við værum byrjuð að
    baka brauðið og myndum afhenda íbúum það, það væri svona grunnurinn í
    matarræðinu, þá færi þetta bakarí líka að baka snúða, kleinur og tertur og
    væri að keppa um veislurnar, fermingarnar og brúðkaupin, keppa við
    einkaaðila. Ég held að engum þætti þetta sanngjarn vígvöllur að keppa á,
    hvar sem er og hvort sem það er bifreiðaverkstæði ríkisins, bakarí
    ríkisins eða annað. Bakarinn hinum megin við götuna myndi líklega segja:
    Ég er ekkert að mótmæla því að ríkið tryggi fólki gott og hollt brauð ef
    það telur það nauðsynlegt en ef skattgreiðendur standa undir rekstri
    ríkisbakarís, hvers vegna þarf það þá líka að fara út í að baka snúða,
    kökur og tertur?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er svona grunnspurning sem þetta frumvarp fjallar um. Það er
    ekki hvort Ríkisútvarpið eigi að vera til eða hvort við viljum hafa öfluga
    fréttaþjónustu, það viljum við. Við viljum líka tryggja íslenska tungu,
    menningu og miðlun upplýsinga því að íslensk tunga á undir högg að sækja
    og það skiptir máli að það sé a.m.k. eitt sterkt akkeri sem sinnir því að
    viðhalda íslenskri tungu meðal okkar landsmanna. Spurningin er: Hvar endar
    hlutverk ríkisins og hvar eiga frjálsir fjölmiðlar að fá að starfa? Þetta
    frumvarp sem ég er flutningsmaður að ásamt fleiri Sjálfstæðismönnum gengur
    út frá því að Ríkisútvarpið verði áfram öflug stofnun. Við viljum ekki
    veikja RÚV, við viljum áfram hafa það öfluga stofnun. Það verði fjármagnað
    fyrst og fremst með fjárveitingum Alþingis og áfram verður lögbundið
    hlutverk þess til staðar. Það er ekkert verið að skerða það. En við viljum
    gera þessar leikreglur skýrari.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við getum ímyndað okkur að tvö fyrirtæki séu að keppa um sama
    einstaklinginn, sama viðskiptavininn. Annað þeirra veit að óháð því
    hvernig því gengur þá fær það alltaf milljarða í vasann. En hitt veit að
    ef því ekki gengur vel þá er ekki hægt að borga launin næsta föstudag.
    Þetta eru ekki sömu rekstrarskilyrði. Við höfum bara séð það á íslenskum
    fjölmiðlamarkaði að fjölmiðlar leggja upp laupana í samkeppni við ríkið,
    einkafjölmiðlar. Þetta er ekki bara einhver pólitísk kenning okkar sem
    stöndum að þessu frumvarpi. Í greinargerð frumvarpsins sem við flytjum hér
    er rifjað upp álit Samkeppniseftirlitsins frá 2008, þar sem er bent á
    samkeppnislega mismunun vegna stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og
    að opinber fjármögnun þess sé til þess fallin að skekkja samkeppnisstöðu á
    markaði. Ríkisútvarpið er langstærst en nýtur samt verulegs stuðnings,
    milljarða á milljarða ofan, og er allsráðandi á auglýsingamarkaði, markaði
    sem hin fjölmiðlafyrirtækin þurfa til að lifa af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það hefur orðið gríðarleg breyting síðan 2008 á fjölmiðlamarkaði.
    Stór fyrirtæki á borð við Facebook og Google, alþjóðleg fyrirtæki, hafa
    komið af gríðarlegum krafti inn á markaðinn. Ríkisstjórnin sem ætlaði nú
    að auglýsa í íslenskum miðlum hefur samt sem áður verið að moka peningum í
    þessi stórfyrirtæki, sem er ekki gott. Staða íslenska einkamiðilsins er
    orðin ansi veik og menn berjast í bökkum. Þessi fyrirtæki á einkamarkaði
    eins og Sýn, <ns:skáletrað>Morgunblaðið </ns:skáletrað>og fleiri, eru að
    berjast við stærstu tæknifyrirtæki heims annars vegar og svo íslenskan
    ríkisfjölmiðil hins vegar sem hefur skattgreiðendur á bak við sig. Þetta
    er hálfvonlaus staða fyrir einkafjölmiðlana. Þetta er vond samloka að vera
    fastur í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þessu frumvarpi hér sem ég mæli fyrir með félögum mínum í
    Sjálfstæðisflokknum er gert ráð fyrir því að Ríkisútvarpið hverfi í reynd
    af hinum viðskiptalega auglýsingamarkaði og láti einkamiðlunum þennan
    auglýsingamarkað eftir. RÚV verði óheimilt að afla tekna með kostun
    dagskrárefnis og auglýsingum settar mjög þröngar skorður. Áfram verður
    heimilt að birta endurgjaldslaust tilkynningar um opinbera þjónustu,
    hjálparbeiðnir líknarstofnana auk tilkynninga um eigin dagskrá og svo
    auðvitað tilkynningar frá almannavörnum eða hjálparbeiðnir frá
    líknarsamtökum. Það er augljóslega ekki það sama og að ríkisfyrirtæki
    keppi við einkafyrirtæki á auglýsingamarkaði. Þarna er skýr lína dregin.
    Ríkið fjármagnar opinbera hlutverkið en ríkisfjölmiðillinn er ekki í
    viðskiptalegri samkeppni við einkarekna fjölmiðla um auglýsingakrónur.
    Þetta á bara við um allt. Það er ekki hægt fyrir eitt einasta
    einkafyrirtæki að keppa við ríkið. Það skiptir engu máli hvernig
    reksturinn er, það er alltaf dælt inn peningum. En reksturinn hjá
    einkafyrirtæki skiptir máli, fyrirtæki fara bara á hausinn. Og hvað þá
    þegar uppspretta fjár eða uppspretta tekna er á auglýsingamarkaði og ríkið
    tekur stærstan hluta þess. Það er eitthvað mjög bogið við það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Útvarpsgjaldið er sérstakt gjald. Árið 2026 greiðir einstaklingur
    sem uppfyllir tekjuskilyrðin 22.400 kr. á ári og það er flatt gjald, jafnt
    á alla. Hlutfallslega leggst þetta auðvitað langþyngst á þá sem lægstar
    hafa tekjurnar. Þeir sem eru með um milljón í laun á mánuði geta nú
    líklegast klofið þetta með einhverjum afborgunum en fyrir þá sem eru á
    lægstu laununum tekur þetta í. Fyrir hjón geta tæpar 45.000 krónur á ári
    skipt máli í heimilisbókhaldinu. Það er bara staðan. Og það sem er
    einkennilegt, og ég held að flestum þyki það nú, meira að segja
    stjórnarliðum, er að þetta gjald er tengt fjölda einstaklinga sem eru
    gjaldskyldir. Það vex sem sagt ekki vegna þess að verkefnum innan
    stofnunarinnar fjölgar eða það þarf að fara í dýpri einhvers konar
    fréttaskýringar heldur vex þetta gjald eftir því sem Íslendingum fjölgar.
    Því fleiri, því meiri peningur, óháð því hvað Ríkisútvarpið er að gera.
    Þetta er stórfurðulegt. Það sama yrði náttúrulega ef helmingurinn af
    landsmönnum flytti af landi brott, þá myndu tekjur ríkisins í gegnum
    útvarpsgjaldið skerðast um helming. Það væri þá líka erfitt. Þess vegna er
    sérstakt að festa þetta svona og við erum að leggja til að það verði ekki
    þannig. Það er kannski hægt að líkja þessu við að fjárveitingar til
    Landhelgisgæslunnar færu eftir því hvað margir bílar væru til í landinu,
    eitthvað sem er algjörlega ótengt rekstri Landhelgisgæslunnar, það væri
    kannski þannig að því fleiri bílar, því meira fjármagn til Gæslunnar eða
    öfugt, því fleiri bílar, því minna fjármagn. Menn sjá að það er ekkert
    eðlilegt við þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil bara nefna það hér líka, frú forseti, að þetta frumvarp
    snýst ekki bara um RÚV. Það snýst líka um hitt lungað í íslenskum
    fjölmiðlum, sjálfstæðu fjölmiðlana. Ég vil gera mikilvægan greinarmun á
    þessu tvennu. Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af því að frjáls fjölmiðlun
    eigi að vera háð því að stjórnmálamenn safni peningum í pott og dreifi
    síðan til fjölmiðla, úthluti styrkjum. Við höfum bara séð það hér á
    þinginu að menn hafa haft í hótunum við frjálsa fjölmiðla og síðan gerist
    það í frumvarpi hér að þær hótanir raungerast. Þetta mátti t.d. sjá þegar
    <ns:skáletrað>Morgunblaðið</ns:skáletrað> fékk lægri styrki og var hótað
    því. Það er eitthvað skrýtið þegar pólitíkin getur haft svona bein áhrif á
    fjölmiðla. Ég vil skapa rekstrarumhverfi þar sem frjálsir fjölmiðlar geta
    staðið á eigin fótum og það er sú hugsun sem birtist í frumvarpinu. Við
    erum ekki að afnema fjölmiðlastyrki á einni nóttu. Frumvarpið gerir það
    ekki. Við viljum halda þeim þangað til að rekstrarumhverfið hefur batnað
    en við viljum breyta hugsuninni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einkareknir skráningar- eða leyfisskyldir fjölmiðlar fá samkvæmt
    frumvarpinu undanþágu frá tryggingagjaldi af launum upp að ákveðnum mörkum
    og virðisaukaskattur á áskriftum innlendra fjölmiðla verður felldur niður.
    Þetta er til hagsbóta fyrir einkarekna fjölmiðla og mun vonandi fjölga
    áskrifendum og kannski fjölga blaðamönnum eða mönnum sem vinna í þessum
    geira og fyrir vikið eflast miðlarnir. Þetta er bara einföld hugmynd.
    Látum fjölmiðilinn halda meira eftir af þeim verðmætum sem hann skapar,
    því að einkareknir fjölmiðlar skapa fullt af verðmætum, í stað þess að
    taka af honum fyrst peningana og láta hann síðan sækja um hluta þeirra
    aftur frá ríkinu. Þetta er heilbrigðara samband á milli ríkisvalds og
    frjálsrar fjölmiðlunar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar líka bara að nefna það svona í framhjáhlaupi að ef þú
    ert kominn á einhvers konar fjárveitingu þá er töluverð hætta á því að
    sjálfsbjargarviðleitni minnki. Þú veist að það er alltaf von á peningum
    til þín. Frumkvæðið minnkar og nýsköpun minnkar ef þú þarft ekki að stækka
    og þarft ekki að afla meiri tekna. Þetta er mikilvægur punktur sem er,
    held ég, innprentaður í öll okkar sem göngum á þessari jörð, við þurfum
    ákveðinn hvata til að standa okkur. Hér segjum við bara beint í þessu
    frumvarpi og það er kveðið á um það að a.m. k. 30% af framlagi ríkisins
    til RÚV fari til kaupa á efni frá sjálfstæðum framleiðendum. Hérna erum
    við þá að tala um að það þurfi ekki allt að vera framleitt á RÚV. RÚV er
    hvorki að framleiða bílana sem starfsmenn keyra á né tölvurnar, það þarf
    ekki alltaf að framleiða allt innan veggja RÚV.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sé, frú forseti, að tíminn er eiginlega búinn þannig að ég lýk
    máli mínu að svo stöddu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>