<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T16:30:04" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 16:40:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T16:30:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="66">
      <ns:málsheiti>leit að olíu og gasi</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég óttaðist það um stund að hv. framsögumaður málsins
    ætlaði að fara yfir í rauntíma jarðsögulega tilurð þeirra verðmæta sem hér
    eru undir en svo varð ekki, sem betur fer, aukinn ræðutími hefði getað
    hjálpað. En mér finnst alveg frábært að við séum hér að ræða þetta mál. Þó
    að það sé að gerast í annað skipti þá er það þannig að dropinn holar
    steininn, svolítið svipað og þetta hefur allt saman atvikast yfir hið
    langa árabil sem framsögumaður, hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
    lýsti hér áðan. Tækifærin sem í þessu felast eru auðvitað alveg ótrúleg.
    Það er ábyrgðarhluti okkar hér í þinginu að nálgast þetta með þeim hætti
    að það verði í öllu falli tækifæri fyrir ekki bara þá fyrir austan eða þau
    fyrirtæki sem hafa áhuga á þessum rannsóknum heldur fyrir landsmenn alla
    og ríkissjóð að þetta verði skoðað af alvöru og eigi möguleika á að
    raungerast. Það er einhver furða í því ef íslensk stjórnvöld ætla að haga
    málum þannig að Ísland verði eina ríkið í heiminum, a.m.k. í hinum
    vestræna, sem á mögulega tækifæri á viðlíka auðlindum og hér eru undir og
    menn ætli ekki að nýta það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. framsögumaður kom áðan inn á furðulegar hugmyndir fyrri
    ríkisstjórnar um að banna rannsóknir í þessa veru, hvað þá vinnslu. En ef
    við hlustum á orðræðu þess flokks sem fer fyrir ríkisstjórninni nú um
    stundir, Samfylkingarinnar, þá er í sjálfu sér ekki við öðru að búast en
    að fæti verði brugðið fyrir allar svona tilraunir og áform eins og nokkur
    kostur er. Það er dálítið eins og Samfylkingin ætli að nálgast tækifæri
    sem felast í mögulegri olíu- og gasleit eins og Samfylkingin í
    borgarapparatinu nálgaðist Sundabrautina áratugum saman. Það er ekki gott.
    Í því felast ótrúleg töpuð tækifæri ef sú nálgun verður ofan á. Þess vegna
    hvet ég þá þingmenn stjórnarflokkanna sem geta horft á þetta mál, þessi
    tækifæri, með öðrum gleraugum en þeim flokkspólitísku þar sem línan hefur
    verið lögð, til að gera það. Það verður áhugavert að sjá, alla vega er enn
    sem komið er enginn þingmaður stjórnarflokkanna hér á mælendaskrá.
    Þingmönnum Norðausturkjördæmis er nokkur vorkunn í dag þar sem flestir
    þeirra eru staddir á fundi fyrir austan og ég veit að framsögumaður væri
    þar sjálfur ef ekki væri fyrir flutning þessa máls hér í dag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það breytir því ekki að viðbrögðin og orðræðan sem hefur borist
    frá helstu talsmönnum Samfylkingarinnar gagnvart þessu máli er
    áhyggjuefni. Á sama tíma og allir skattar eru keyrðir í botn, reynt að
    loka svokölluðum glufum — sem eru augljóslega engar glufur heldur bara
    ákvörðun stjórnvalda á fyrri stigum um það hvernig ætti að stilla af
    skattkerfið í heild sinni, hvaða þættir væru í efra þrepi virðisaukaskatts
    og hverjir í hinu neðra — hver króna er elt, tekjuskattur almennings
    hækkaður um á fjórða milljarð, bændur, baðlón og bankar, allt er þetta
    hundelt, þá leggjast menn gegn því að skoða þau tækifæri sem hér eru
    undir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við sjáum hvaða áhrif olíuvinnsla hefur haft á efnahag Noregs. Við
    sjáum Aberdeen-svæðið, ótrúleg staða sem þar er miðað við það sem áður
    var. Allar þjóðir sem hafa aðgengi að auðlindum sem þessum gefa út leyfi,
    rannsóknarleyfi og nýtingarleyfi nema kannski mjög tímabundið á meðan
    einhverjir furðulega þenkjandi vinstri menn stjórna, en alltaf er það
    tímabundið. Það blasir við öllum að heimurinn muni ekki þurfa minna
    jarðefnaeldsneyti á næstunni heldur meira en undanfarið. Meira að segja
    Elon Musk, vinur vinstri manna, sem á hvað mest undir því að rafvæðing
    takist vel, segir það berum orðum, alveg undanbragðalaust, að heimurinn
    muni þurfa meira af jarðefnaeldsneyti enn um sinn heldur en undanfarið.
    Þetta blasir við öllum sem eru ekki fastir í einhverri hugmyndafræðilegri
    sjálfheldu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Málið var rætt hér í þinginu í fyrra og fór til hv. umhverfis- og
    samgöngunefndar og til umsagnar. Það gerist auðvitað í framhaldi þessarar
    umræðu aftur. En sérstaklega núna í ljósi stöðunnar, þó að þetta sé
    auðvitað lengri tíma mál, rétt eins og í fjölmiðlamálinu sem við ræddum
    hér áðan, þá snýst þetta samfélag okkar svo mikið um það að við hér á
    Alþingi sendum réttu skilaboðin. Við sendum þau skilaboð að við ætlum að
    nýta þær auðlindir sem við eigum á landi, í sjó og undir landgrunninu,
    nýta þau tækifæri sem við eigum til hagsbóta fyrir borgarana, fyrirtækin,
    samfélagið allt. Það er ábyrgðarhluti ef menn ætla sér að hindra það. Þess
    vegna gef ég mér að þingmannahópur Norðausturkjördæmis, sem nú er staddur
    á fundi Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi, ef ég skil það rétt, hljóti
    að fylkja sér á bak við þá hugmynd sem hér er lögð fram og styðja við að
    þetta mál verði klárað í hv. umhverfis- og samgöngunefnd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Heiðar Guðjónsson hagfræðingur hefur í ítarlegu máli og oftsinnis
    farið yfir þau tækifæri sem blasa við í þessum efnum, þekkir þetta
    ágætlega frá þeim tíma er síðustu leitar- og rannsóknarhrinur voru í
    gangi. En síðan er auðvitað annað og það er fylgifiskur nýrrar starfsemi,
    nýs iðnaðar, nýrra tækifæra og uppbyggingar, þ.e. allt þetta afleidda sem
    mun fylgja. Það eru allar líkur á því að Austurland með öllum sínum kostum
    og gæðum — Norðvesturkjördæmi í heild sinni leggur til um 40% af
    útflutningstekjum þjóðarinnar, mig minnir það — geti risið enn hærra og
    miklu hraðar en hingað til, bara ef við á Alþingi leggjum ekki stein í
    götu þess að hægt verði að nýta þau tækifæri sem blasa við. Þess vegna vil
    ég leggja þessa áherslu í ræðu minni á að við hér á Alþingi, nefndin,
    hæstv. ráðherra og Samfylkingin sérstaklega, og er ég þá bara að hugsa til
    orða fyrirsvarsmanna Samfylkingarinnar í þessum efnum, leggi ekki stein í
    götu þess. Við sjáum hvaða tjóni það getur valdið að þvælast fyrir
    skynsamlegum framkvæmdum og framförum. Við sjáum það hér eftir stjórnartíð
    hinum megin Vonarstrætis. Við skulum ekki gera sömu mistökin hér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef það er ekkert í þessu, ef þetta er ekki forsvaranlegt, ef þetta
    verður ekkert nema tap, þá er það ekki tap ríkissjóðs. Það er tap þeirra
    aðila sem til verksins vilja ganga. Af hverju ættum við hér á Alþingi að
    bregða fæti fyrir slík áform? Einhver mun segja: Jú, þetta skemmir ímynd
    okkar sem græns lands. Hafa menn heyrt um Noreg, Skotland? Lítið allt í
    kringum ykkur. Það dettur engum það til hugar sem raunverulega skoðar
    áhrif á ímynd þjóða af því að nýta auðlindir sínar, að þau verði neikvæð
    þeim með þeim hætti sem sumir lýsa í þessum efnum. Ísland verður áfram ein
    grænasta þjóð í heimi á þennan mælikvarða. Við erum með yfirburðastöðu
    hvað varðar nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi. Það verður
    óbreytt. Þetta verður beinlínis framlag í þeim efnum ef við horfum á þetta
    á heimsvísu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér undir lok máls míns vil ég bara hvetja þingmenn
    Norðausturkjördæmis til að standa á bak við og styðja þessa
    þingsályktunartillögu. Ég vil sömuleiðis hvetja þingflokk
    Samfylkingarinnar til að leggja ekki stein í götu þessa máls því að áhætta
    ríkissjóðs er hverfandi, jafnvel engin, en möguleg afkoma og afrakstur
    hreinlega alveg ótrúleg. Það er ábyrgðarhluti ef við bregðum fæti fyrir
    slík mál og verkefni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>