<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T16:40:39" skst="SDG" tegflm="L" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 16:50:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T16:40:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="66">
      <ns:málsheiti>leit að olíu og gasi</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það vill svo til að ég heyrði viðtal á
    útvarpsstöðinni Bylgjunni við hv. þm. Bergþór Ólason, sem talaði hér áðan,
    og þingmann Samfylkingarinnar, hv. þm. Víði Reynisson. Ég verð að segja
    alveg eins og er að afstaða Samfylkingarinnar sem þar birtist kom mér á
    óvart, afstaðan gagnvart þessu máli, og olli mér nokkrum áhyggjum. Þar var
    farið í þessar gömlu kenningar um að Ísland ætti bara að láta þetta eiga
    sig og ekki hreyfa við þessu en það gekk mjög erfiðlega að rökstyðja það.
    Jú, umhverfismálin eru ítrekað nefnd en eins og ég kom lítillega inn á hér
    áðan og gæti rakið í mun ítarlegra máli, og fæ kannski að gera það við 2.
    umræðu ef nefndin hleypir þessu máli áfram, þá væri þetta í raun jákvætt
    framlag til umhverfismála og öryggis á heimsvísu. Það liggur fyrir að
    þrátt fyrir miklar tilraunir til að auka notkun endurnýjanlegra orkugjafa
    verður áfram aukin eftirspurn eftir olíu og gasi. Eftirspurn eftir orku á
    heimsvísu hefur aukist um að jafnaði 2% á ári áratugum saman og ekki útlit
    fyrir að það verði breyting þar á. Olía er líka notuð í svo fjölmargt
    annað, við hina ólíklegustu hluti sem fólk gerir sér kannski ekki grein
    fyrir að þurfi olíu til að framleiða. Hún er í raun undirstaða nútímans og
    framfara og hefur verið það. Kannski finnum við nýjar leiðir í framtíðinni
    en þær eru ekki komnar og þá er betra að þróuð vestræn lýðræðisríki, sem
    gæta að öryggiskröfum og því hvernig framleiðslan fer fram og passa upp á
    kjör þeirra sem starfa við þetta, framleiði olíu heldur en að við
    eftirlátum öðrum að anna eftirspurninni. Ef þetta tækist hjá okkur og við
    færum að framleiða olíu og gas í miklum mæli, og ég ítreka það sem ég
    nefndi áðan um að áætlanir og rannsóknir bendi til þess að þarna séu
    gríðarlegar auðlindir, jafn miklar og í Noregshafi, þá gætum við selt
    gæðavottaða olíu og gas, íslenska olíu. Það er ekki blóðolía heldur lífræn
    íslensk olía og gas unnið á þann hátt að fyllsta öryggis sé gætt, fólk
    njóti góðra kjara sem við þetta vinnur og við um leið að leggja okkar af
    mörkum til áframhaldandi framfara í heiminum frekar en að styrkja stöðu
    einræðisríkja og eftirláta þeim að anna þessari eftirspurn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér var nefndur Heiðar Guðjónsson sem af mikilli þrjósku eða
    eljusemi, lofsverðri þrjósku, heldur áfram að reyna að koma af stað olíu-
    og gasleit í íslenskri lögsögu. Heiðar nefndi einmitt að hann hefði ekkert
    komist áfram með málið á meðan óvissa ríkti um hvort Ísland væri á
    leiðinni í Evrópusambandið. Fjárfestar hefðu ekki viljað fara í verkefnið
    ef við sæjum fram á að Ísland yrði yfirtekið af Evrópusambandinu því að
    við þekkjum stefnu þess sambands, sem er samdráttur, minni og minni
    orkunotkun, minni og minni framleiðsla, og það væri víst til að koma í veg
    fyrir að við gætum nýtt þessar auðlindir okkar. En um leið og það mál var
    frá fóru mál á hreyfingu. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að það er
    svo mikilvægt, eins og við höfum getið um í fyrri ræðum, að íslensk
    stjórnvöld sýni það með atkvæðagreiðslu hér á þinginu, og svo ríkisstjórn
    eða önnur stjórnvöld í framhaldinu með úrvinnslunni, að við séum til í
    þetta og ætlum að vinna með og við hendum út af borðinu þessum furðulegu
    hugleiðingum um að Ísland verði fyrsta landið í heiminum til að banna
    rannsóknir á olíu- og gasauðlindum. Það myndi strax senda mjög skýr
    skilaboð og auka áhuga fjárfesta á að taka þátt í þessu verkefni því að
    fjárfestar líta auðvitað ekki hvað síst til þess lagaumhverfis sem þeir
    ganga inn í. Þótt þeir láti sig hafa eitt og annað í vanþróaðri löndum
    þegar olía og gas eru annars vegar þá vilja þeir þó ekki fjárfesta þar sem
    þeir geta átt á hættu að starfsemi þeirra verði einfaldlega
    bönnuð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrri útgáfu þessarar tillögu var getið um sérstakt
    ríkisolíufélag, ekki félag til að ráðast í boranir eða hvað þá vinnslu
    heldur einfaldlega félag til að halda utan um starfsemina, til þess að
    vinna með þeim sem hefðu hug á rannsóknum og vinnslu þannig að menn hefðu
    einhvern til að tala við, einhvern mótaðila eða samstarfsaðila á Íslandi
    og félagið gæti svo haldið utan um afraksturinn. Hér er stjórnvöldum
    eftirlátið að meta hvernig það verði best gert en í öllu falli tel ég mjög
    mikilvægt að við sýnum í verki, annars vegar með því að samþykkja
    tillöguna og síðan stjórnvöld í framhaldinu, að það séu komnir, afsakið
    orðbragðið, frú forseti, einhverjir innviðir til að halda utan um þessi
    mál. Það þarf ekki að fela í sér stækkun báknsins. Það er hægt að
    forgangsraða einfaldlega með nýjum hætti en við þurfum að sýna skýr merki
    um það að við séum tilbúin og að mönnum sé óhætt að fara að bora.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla aðeins, af því að ég hef svo lítinn tíma eftir, að lesa
    hérna beint upp úr greinargerð tillögunnar sem inniheldur heilmikið af
    upplýsingum. Þetta er ekkert leiðinlegt aflestrar, frú forseti, og ég hvet
    fólk til þess að lesa þessa áhugaverðu sögu sem fylgir í greinargerð
    tillögunnar. Þar er m.a. nefnt eftirfarandi, með leyfi frú forseta: <!--https://www.althingi.is/altext/158/s/0066.html--></ns:mgr>

    <ns:mgr>„Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) hafa unnið að jarðfræðilegum og
    jarðeðlisfræðilegum mælingum vegna undirbúningsvinnu fyrir olíuleitina.
    Rannsóknir olíuleitarfélaganna TGS og VBPR staðfestu á sínum tíma að olíu
    væri að finna á Drekasvæðinu.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að endurtaka þessa síðustu setningu, frú forseti, svo ég
    skilji ekki við þetta mál þannig að fólk sé enn þá uppfullt af efasemdum
    um að við getum verið svo heppin að eiga slíkar lindir: Rannsóknir þessara
    olíufélaga staðfestu að olíu væri að finna á Drekasvæðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Terje Hagevang, helsti sérfræðingur Norðmanna um Jan
    Mayen-hrygginn, hefur sagt að þar sé að finna álíka verðmæti í olíu og
    gasi og finnast í Noregshafi. Samkvæmt rannsóknum Sagex-olíufélagsins frá
    2006 er megnið af þeim svæðum sem líklegast er að geymi olíu- og gaslindir
    innan íslenskrar lögsögu.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo eigum við 25% Noregsmegin ef þeir hefja vinnslu þar og þau 25%
    bara fáum við án þess að þurfa að gera nokkuð. En Norðmenn hafa verið að
    einbeita sér að öðru í bili þannig að við þurfum að taka af skarið,
    Íslendingar, þessi sjálfstæða þjóð, og setja þetta af stað í okkar
    lögsögu. Vísbendingarnar eru allar þarna og þær eru jákvæðar og, eins og
    ég nefndi áðan: Bara það að við þorum að fylgja þessu eftir og ýta þessu
    af stað með réttu hvötunum myndi strax hafa gríðarleg áhrif á byggðir,
    sérstaklega auðvitað á austan- og norðaustanverðu landinu, og skapa hér
    velferð fyrir fólk langt umfram það sem tekist hefur af hálfu þessarar
    ríkisstjórnar. Hún gæti þá hætt að skattpína fólk með þeim hætti sem hún
    hefur gert. Það þarf samt að passa upp á það, og það er sérstaklega
    fjallað um það, frú forseti, að ríkisstjórn má ekki eyða þessu öllu eins
    og þessi ríkisstjórn væri vís til að gera. Það þarf varnagla hvað það
    varðar þannig að farið sé vel með það sem út úr þessu kemur og þar eru til
    staðar ágætisfyrirmyndir eins og frá Noregi. Það eina sem vantar, frú
    forseti, er viljinn en hann er til staðar hjá Miðflokknum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>