<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T16:51:03" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 16:56:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T16:51:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="66">
      <ns:málsheiti>leit að olíu og gasi</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. framsögumanni þessa máls og
    formanni Miðflokksins fyrir góða yfirferð á þessu mikilvæga máli sem maður
    myndi nú vilja óska að væri ekki síður metnaðarmál hjá sitjandi
    ríkisstjórn. En úr því að því er ekki að heilsa þá skirrumst við ekki við
    að standa vaktina á þessu sviði og benda á þennan afar athyglisverða
    valkost fyrir Ísland til að fjölga tækifærum Íslendinga á sviði
    atvinnulífs, á sviði framsækinnar úrvinnslu náttúruauðlinda eins og við
    erum nú þegar víðfræg fyrir um allan heim, að vera hér með mjög trausta og
    eftirsóknarverða stöðu í endurnýjanlegum orkugjöfum. Eins og ég hef sagt
    áður í umfjöllun um þetta tiltekna mál þá held ég að út frá
    umhverfissjónarmiðinu sé ekki hætt við því að það verði ekki áfram
    sérstaða okkar Íslendinga, á sviði endurnýjanlegra orqkugjafa. Þar höfum
    við verið á þessari liðnu öld frá fullveldisstofnun og raunar alla 20.
    öldina með sérstaka stöðu, öfunduð á veraldarvísu fyrir þá sérstöðu. En
    þetta væri mjög traust og góð viðbót við það hvernig við Íslendingar nýtum
    náttúruauðlindir á ábyrgan hátt til hagsbóta fyrir allan almenning í
    landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég rifja það upp í þessu sambandi þegar við berum þetta á borð
    hversu fálega var tekið í þetta af hálfu sitjandi ríkisstjórnar hér
    síðasta haust þegar þetta kom til umræðu og harma að ég heyri varla annað
    á tóninum hjá hæstv. ríkisstjórn en að mótstaða þeirra hafi heldur harðnað
    en hitt, að menn séu sífellt opnari fyrir þessu tækifæri sem ætti þó að
    vera. Þá var gefið til kynna að það væru engin sérstök gögn sem gæfu til
    kynna vinnanlega olíu á þessu svæði sem hér er vísað til, sem er auðvitað
    ekki rétt. Þar fyrir utan hef ég svo sem reynt að halda því á lofti að það
    sé ekki endilega hlutverk hæstv. ráðherra að taka endanlega afstöðu af eða
    á um það hvort hann telji að vinnanleg olía finnist á þessu svæði, þetta
    væri mun heldur í höndum viðeigandi aðila, viðeigandi fyrirtækja eða
    félaga sem færu í þessa vegferð að skera úr um það. Við getum vart gert
    það héðan frá Reykjavík. Það á eftir að leita af sér allan grun, það er
    auðvitað kjarni málflutningsins, að láta leitarmenn í raun og veru skera
    úr um þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það var vísað til annarra atriða, kostnaðar við stjórnsýslu, og
    stundum finnst mér líka bera á að það væri á einhvern hátt illt afspurnar
    fyrir Íslendinga að standa í þessum rekstri. Ég tel það alls ekki vera. Ég
    held að það væri gott afspurnar fyrir okkur Íslendinga sem fullvalda þjóð
    sem er tilbúin til þess að nýta þau tækifæri sem okkur gefast, að kanna
    alla vega þessa möguleika til hlítar. Ekki fæ ég séð að Norðmenn liggi
    alþjóðlega undir ámæli fyrir að nýta olíu eins og þeir gera, mun heldur
    eru þeir aftur öfundaðir af öðrum þjóðum heims fyrir þá vel heppnuðu
    nálgun sem þeir hafa viðhaft í þessum efnum í gegnum tíðina sem hefur
    borið mjög ríkulegan ávöxt fyrir þá, auðvitað í fjármunum talið en
    auðvitað líka bara í víðari skilningi að geta reitt sig á þessa sjóði sem
    af þessu hljótast.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Engu að síður tekur maður það auðvitað fram að hér er enginn að
    lofa nokkrum sköpuðum hlut með þessari umræðu. Auðvitað eru menn
    meðvitaðir um að þetta er alltaf spurning um að það þarf að finna rétta æð
    til að geta raunverulega farið af stað í að sækja þessi verðmæti. En ef
    möguleikinn er fyrir hendi þá er það mitt eindregna mat, virðulegur
    forseti, að við ættum að nýta það. Þess vegna fagna ég því að þetta mál sé
    fram komið enn á ný og kalla að sjálfsögðu eftir því að þeir sem hér
    leynast á Alþingi fylki sér að baki þessum málstað vegna þess að þetta er
    mikið hagsmunamál fyrir sannarlega auðvitað kjördæmið sem hér er undir,
    Norðausturkjördæmi, en alls ekki eitthvað sem einskorðast við það heldur
    landið allt og framtíðarkynslóðir hérna á Íslandi, að fjölga stoðum undir
    efnahagslífið. Það er ekki vanþörf á því á þessum síðustu og verstu tímum
    að við horfum svolítið til framtíðar með það nú þegar stór önnur
    viðfangsefni eru frá í pólitísku umræðunni, að við getum farið að beina
    kröftum okkar að því einmitt hvar tækifæri okkar Íslendinga liggja til
    framtíðar og þá er gott að við í Miðflokknum erum alla vega, eins og í
    öllum öðrum málum, jafn víðsýnir og raun ber vitni. Að því sögðu lýk ég
    máli mínu en þakka enn og aftur fyrir að þetta góða mál sé flutt,
    tækifærismál fyrir íslenska þjóð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>