<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T16:56:49" skst="HHL" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 17:12:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T16:56:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="92">
      <ns:málsheiti>orkuöryggi almennings</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég óska í dag eftir stuðningi þingheims við að
    fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að leggja fram frumvarp sem
    tryggir orkuöryggi almennings og stuðlar um leið að hagkvæmu verði fyrir
    þann hóp. Við sjáum miklar hækkanir á raforku til almennings.
    Raforkukostnaður heimila hefur hækkað á tímabilinu 2020–2025 um tæplega
    11% á föstu verðlagi sem er umfram verðbólgu. Það er mikilvægt að hafa í
    huga að slíkar hækkanir eru ekki bara í samhengi við stöðu á markaði, þær
    eru líka í samhengi við regluverk og það er þar sem við, löggjafinn,
    þurfum að bregðast við. Við þurfum að passa upp á að við þróum regluverk
    með þeim hætti að almenningur sé alltaf númer eitt, almenningur sé ætíð í
    forgangi. Þegar við tölum um skort á orkuöryggi almennings erum við ekki
    að tala um ástand sem hefur aldrei verið hér á landi. Við erum með
    einstætt raforkukerfi hér. Áður fyrr var orkuöryggi almennings tryggt í
    lögum vegna þess að raforkukerfið er einstakt hér á landi. Við erum með
    einangrað raforkukerfi. Við byggjum það á nýtingu náttúruauðlinda og þær
    gefa mismikið af sér. Stundum rignir meira og lónin eru fyllri og þá er
    meira til ráðstöfunar og stundum er minna í boði. Það er einmitt þess
    vegna, út frá þessari einangrun, út frá því að við byggjum okkar
    orkunýtingu bara á endurnýjanlegum orkugjöfum, sem við þurfum svo mikið að
    passa upp á að regluverkið setji þá notendur sem við viljum að séu í
    forgangi raunverulega í forgang. Áður fyrr, áður en við byrjuðum að
    innleiða orkulöggjöf Evrópusambandsins, var þessi forgangur tryggður í
    lögum. Það hefur hins vegar ekki verið staðan frá árinu 2003. Ég vil draga
    fram að þetta ástand, þ.e. að forgangur almennings sé ekki skýr í löggjöf,
    er ekki vilji stærri orkukaupenda. Höfum í huga að stærri orkukaupendur
    eins og álver hafa lifað í sátt og samlyndi við almenning í landinu um
    langa hríð. Það er ekkert í þeirra vilja um að þrá að keppa við heimili
    eða fyrirtæki á orkumarkaði. Það er löggjafans að tryggja þá
    forgangsröðun. Það skiptir máli fyrir orkuöryggi þessa hóps en það skiptir
    líka máli fyrir verðþróun því ef það eru engar girðingar þarna á milli, þá
    getur aukin eftirspurn eftir raforku á stórnotendahlið leitt af sér
    verðhækkanir fyrir almenning í landinu eins og við höfum séð á undanförnum
    árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það getur ekki verið góð pólitík að draga
    lappirnar í því að tryggja raforkuöryggi almennings. Þingmenn verða að
    átta sig á því að þeir bera bæði ábyrgð á orkuöryggi almennings og ábyrgð
    á því að ákveða hvaða virkjunarkosti á að fara í. Bæði málin þarf að
    ákveða en það þarf að aðskilja þau. Það er ekki í boði að sitja
    aðgerðalaus og nýta hækkanir á almenning eins og eins konar þrýstiafl á að
    það eigi að einfalda regluverk fyrir nýjar virkjanir þegar við vitum öll
    sem hér inni sitjum að nýjar virkjanir taka ár ef ekki áratugi í
    framkvæmd. Þegar þær eru loks komnar til framkvæmda er allsendis óvíst í
    hvað sú orka sem þær framleiða er nýtt. Þess vegna þarf að aðskilja þessa
    þætti. Það þarf að tryggja orkuöryggi almennings og svo er það pólitísk
    ákvörðun hvað við förum í mikla umframframleiðslu hverju sinni fyrir hvers
    konar iðnað til að skapa verðmæti um allt land. Það er önnur ákvörðun en
    það að tryggja orkuöryggi almennings og við þurfum að átta okkur á því að
    þarna er munur á. Það er heiðarleg pólitík að gera þessa aðgreiningu. Það
    er ekki heiðarlegt að tala um að við séum að virkja fyrir orkuöryggi
    almennings ef það er með engu móti tryggt í löggjöfinni að orkan nýtist
    sérstaklega fyrir þann hóp.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil líka undirstrika að þegar við erum að
    tala um orkuöryggi almennings þá erum við að tala um lítinn hóp
    orkunotenda. Heimili eru u.þ.b. 4–5% af orkunotkun, þeirri
    heildarframleiðslu sem við framleiðum af raforku hér á landi. Ef við erum
    að tala um fyrirtæki, svona eins og við þekkjum, hárgreiðslustofur, Bónus,
    venjuleg fyrirtæki sem við sjáum í Skeifunni, Kringlunni eða annars
    staðar, þá eru slík fyrirtæki að nýta u.þ.b. 15% til viðbótar. Þannig að
    samtals er það sem við köllum orkunotkun almennings einungis um 20%. Síðan
    er það restin af raforkumarkaðnum, sem eru stórnotendur og nýta þessi 80%.
    Þeir notendur framleiða ýmiss konar verðmæti sem skapa tekjur fyrir okkur
    og þær tekjur nýtast til að fjármagna okkar velferð, í okkar hagkerfi.
    Þannig að, aftur: Við þurfum að aðskilja þarna á milli eins og Jóhannes
    Nordal og aðrir sem komu að því að hanna okkar löggjöf á sínum tíma áttuðu
    sig á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér finnst, eins og ég sagði áðan, að þessir ólíku notendur, minni
    notendur og stóru iðnfyrirtækin, þau öll mikilvæg. En mig langar til að
    draga fram að samningsstaða þeirra um raforku er afar ólík. Við erum að
    tala um að stærri notendur, eða álver, gagnaver og þess háttar notendur,
    eru að gera stóra samninga um mikið magn af orku til langs tíma. Hvað
    þýðir það? Jú, það þýðir að slíkir notendur eru að tryggja sig fyrir
    verðsveiflum, tryggja orkuöryggi sitt langt fram í tímann. Orkuöryggi
    þeirra er því tryggt. Það er hins vegar svo að almenningur hefur ekki sömu
    langtímasamninga, sömu samningsstöðu. Þess vegna býr almenningur við allt
    annað orkuöryggi en þessir stóru notendur. Þess vegna skiptir máli að
    bregðast við þeirri stöðu að við höfum ekki skýr ákvæði í raforkulögum um
    að almenningur eigi að vera í skjóli. Ég vil undirstrika að þetta misvægi
    getur komið sér sérstaklega illa fyrir íbúa á landsbyggðinni, t.d. íbúa
    sem nota fjarvarmaveitur, Ísafjörð, Vestmannaeyjar og slíkt, og líka íbúa
    á köldum svæðum sem treysta á raforkuverð til húshitunar. Í mínum huga er
    algerlega óboðlegt að þessir aðilar séu ekki í betra skjóli þegar kemur að
    raforkumálum hér á landi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það hafa orðið mjög miklar breytingar á
    orkuumhverfi Íslands á undanförnum áratugum. Það má rekja til þess að við
    höfum verið að innleiða orkulöggjöf Evrópusambandsins, svokallaða
    orkupakka. Það er algerlega nýtt umhverfi. Það er markaðsumhverfi þar sem
    samkeppni ræður ríkjum og sá sem er tilbúinn að borga mest fyrir vöruna í
    einföldustu mynd fær hana. En það eru engin lagaleg úrræði til að grípa
    inn í, eins og staðan er í dag, ef það verður orkuskortur á heimili, ekki
    nema slíkur orkuskortur sé vegna eldgoss eða einhverra náttúruhamfara. En
    það eru engin úrræði ef það verður slíkur skortur vegna þess að
    almenningur verður hreinlega undir í samkeppni. Almenningur er því á ystu
    nöf í ölduróti raforkumarkaðarins á meðan stærri kaupendur búa við
    langtímasamninga sem tryggja orkuöryggi þeirra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er oft gott að horfa til baka og fara yfir söguna. Ég minntist
    á það áðan að forverar okkar vissu að okkar einangraða sveiflukennda
    orkukerfi krefðist þess að minni notendur hefðu varnir. Það var þess vegna
    sem Landsvirkjun bar þessa ábyrgð lagalega til ársins 2003. Þessi ábyrgð
    var síðan tekin af það ár og það reyndi kannski ekki svo mikið á hana fyrr
    en orkukrísan átti sér stað í Evrópu. Þá jókst eftirspurn eftir raforku
    hratt hér á landi og á sama tíma voru aðrir þættir eins og bilanir, lág
    lónstaða og fleiri sem höfðu áhrif. Einnig má tala um aukna eftirspurn
    vegna þróunar í tækniheimum. Það er mikil eftirspurn á vettvangi
    gagnavera. Hér á landi hafa einnig komið inn nýir leikendur, eins og t.d.
    landeldi sem þurfa á raforku að halda og það er vel. Og aftur segi ég:
    Slík uppbygging ólíkra efnahagstækifæra er pólitísk spurning sem hægt er
    að afgreiða í gegnum rammaáætlun, um hversu hratt á að virkja í samhengi
    við stærri notendur en sama hvað við erum að gera þá eigum við alltaf að
    passa upp á að minni notendurnir séu í vari. Þar af leiðandi má færa sterk
    rök fyrir því að það sé nauðsynlegt að tryggja bæði heimilum og öðrum
    minni orkunotendum aðgengi að raforku óháð orkuframleiðslu hverju
    sinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aftur, ef við erum með ákveðið mikið magn af raforku og það er
    mikil eftirspurn viljum við passa að það sé ekki verið að kaupa sig inn á
    það magn sem almenningur þarf án þess að það komi inn ný framleiðsla. Þá
    kann einhver að spyrja: Er þá ekki bara best að framleiða hratt meiri
    raforku? Þá verðum við að hafa í huga að svarið við því er að það getur
    verið að það eigi að bæta við raforkuframleiðsluna. En við verðum líka að
    átta okkur á því að slíkt viðbragð tekur mörg ár því þú reisir ekki
    virkjun á einum degi og ef þú ert ekki með það tryggt í lagaumhverfinu að
    orkan nýtist fyrir almenning þá getur hún alveg eins farið í annað, verið
    bundin í langtímasamninga og annað og þar af leiðandi ekki náð utan um þá
    áskorun sem þessari þingsályktun er ætlað að ná yfir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar til að nefna nokkra aðra þætti. Við erum kannski ólík
    öllum öðrum raforkukerfum í Evrópu að því leyti að við erum ekki með
    olíuframleiðslu, gas eða aðra orkugjafa. Það er mikilvægt að horfa á það
    þegar við erum að horfa á stöðugleika okkar kerfis, þessar náttúrulegu
    sveiflur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar líka að draga fram að möguleiki á orkuskorti til
    heimila er ekki teoretískur möguleiki. Við erum ekki að tala um einhvern
    möguleika sem hefur aldrei reynt á. Við erum að tala um lýsingu á stöðu
    sem hefur raungerst að hluta og getur endurtekið sig. Á þeim tíma sem ég
    var orkumálastjóri þá reyndi á þetta. Þá fór saman mikil sala á raforku
    til stórnotenda án þess að ný framleiðsla kæmi inn og töluverðar sveiflur
    voru í magni á markaði vegna tíðarfars og bilana. Það var sömuleiðis aukin
    eftirspurn vegna verðhækkana í Evrópu eftir innrás Rússa í Úkraínu. Þar
    fór saman líka mikil sókn gagnavera sem hafa keypt stærstan hluta af
    umframorku á Íslandi frá árinu 2015 og full nýting iðnaðar í núverandi
    samningum þar sem verð t.d. hækkaði á áli eftir Covid. Á þeim tíma var
    ákveðin óvissa um hvort það væri til nægileg raforka fyrir almenning. Það
    reyndi á þetta. Það var mikil óvissa hjá orkufyrirtækjum og það kom í ljós
    að það voru engin lagaleg úrræði til að grípa inn í. Samtímis skorti orku
    til að jafna flutningstap raforkukerfisins en umframumfang flutningstaps,
    sem er í raun og veru þörf á í raforkukerfinu til þess að kerfið gangi, er
    um 2% af orkuframleiðslu okkar, sem er u.þ.b. helmingur þess sem heimilin
    nota. Það vantaði orku á þessum tíma í flutningstapið. Og hvað gerðist?
    Jú, á stuttum tíma hækkaði raforkuverð í þessi 2% um u.þ.b. 300% fyrir það
    magn sem skorti. Þetta sýndi okkur svart á hvítu hvernig aðgerðaleysi í
    garð heimila getur haft neikvæð áhrif á orkuverð, eitthvað sem er
    grundvöllur að lífskjörum okkar. Ég verð að segja að ég held að allir hér
    viti, ef við berum okkur saman við önnur Evrópuríki, að þrátt fyrir hátt
    verðlag og ýmsa ókosti varðandi matvöru og annað sem við glímum við hér á
    Íslandi er varðar verðlag, þá er þessi ódýra orka, bæði varðandi húshitun
    og raforku, gríðarlega mikilvæg fyrir okkur. Þetta eru verðmæti sem við
    eigum að halda fast í og við eigum að passa upp á að sú löggjöf sem við
    setjum <ns:bjalla/> styðji það að framtíðin verði eins fyrir næstu
    kynslóðir. Það er okkar að taka ákvörðun um það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég óska eftir stuðningi við þessa
    þingsályktun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>