<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T17:12:44" skst="DagH" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 17:37:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T17:12:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="80">
      <ns:málsheiti>leikskólar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 80, en um
    er að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um leikskóla, nr.
    90/2008. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þingmenn Kolbrún Baldursdóttir,
    Sandra Sigurðardóttir, Víðir Reynisson, Grímur Grímsson og Guðmundur Ari
    Sigurjónsson. Þess má geta að frumvarpið er lagt fram í sjötta sinn en það
    hefur áður verið lagt fram á 152., 154., 155., 156. og 157.
    löggjafarþingi. Ég vona heitt og innilega að ég þurfi ekki að leggja það
    fram aftur. En til þess að styðja þá niðurstöðu vil ég byrja á stuttri
    frásögn úr Reykjavík.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í Laugardalnum í Reykjavík fer fjölskylda af stað út í sinn dag
    rúmlega sjö að morgni. Í bílnum sitja tvö ung börn í aftursætinu, annað í
    framvísandi bílstól og hitt í bakvísandi. Útifötin eru komin í tvær
    leikskólatöskur ásamt aukafötum. Svo hefst aksturinn. Annað barnið á að
    fara í leikskólann Hof sem er bara rétt hjá en litli bróðir fær hins vegar
    ekki að fylgja stóru systur sinni á leikskólann vegna þess að hann fékk
    ekki inni á sama leikskóla þó að hann sé orðinn tveggja ára gamall, hún á
    sínu síðasta ári. Hann er nefnilega hjá dagforeldri í Grafarholti. Það var
    ekki laust fyrir hann á Hofi en hann er á biðlista. Eins og staðan er núna
    gæti vel komið til þess að systir hans útskrifist áður en til þess kemur.
    Ferðalag fjölskyldunnar er því: Kjallaraíbúð í Laugardal, leikskólinn,
    Grafarholt og svo vinnustaður í vesturhluta Reykjavíkur. Sambærileg
    skemmtiferð er fyrir höndum að vinnudegi loknum, allt á móti umferð.
    Fjölskyldan þarf sennilega að kaupa annan bíl til þess að láta dæmið
    hreinlega ganga upp og líklega þarf annað foreldrið eitthvað að skoða að
    minnka við sig vinnu. Fyrir börnin verður þessi dagur mun lengri, meiri
    tíma varið í bíl og þetta eru heilt yfir ekki mjög miklar
    gæðastundir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þessi sviðsmynd er kunnugleg mörgum barnafjölskyldum sem hafa sett
    sig í samband við mig á undanförnum árum. Oft fékkst ég við það verkefni
    að aðstoða fólk í þessari stöðu í fyrra starfi mínu hjá Reykjavíkurborg
    þegar stóri úthlutunardagurinn í mars var afstaðinn eða hreinlega að koma.
    Það var hægt að stilla klukku. Alltaf var það svo að eftir sátu hópar
    fólks sem fengu pláss fyrir barnið sitt langt frá þeim leikskóla sem það
    bjó hjá þrátt fyrir val sitt og svo auðvitað þau sem hreinlega fengu ekki
    pláss. Þau þurfa mörg að bíða lengi, eins og ég segi, eftir því að fara
    með bæði börn eða jafnvel fleiri á sama leikskólann, hvort sem það var
    vegna þess að yngra barn fékk inni á öðrum leikskóla eða það stóð ekki til
    boða. Þetta er gömul saga og ný. Þess vegna legg ég til hér í sjötta sinn
    að það verði heimilt að haga innritun með tilliti til þess að systkini,
    hvort sem þau hafa sama lögheimili eða ekki, eða börn sem hafa sama
    lögheimili, sem þá gætu verið stjúpsystkini eða halda saman heimili, geti
    sótt sama leikskóla. Jafnvel verði heimilt að taka mið af nálægð leikskóla
    við lögheimili barns og þar af leiðandi verði skrefið tekið aðeins
    lengra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Núgildandi 26. gr. leikskólalaga veitir sveitarstjórnum almenna
    heimild til þess að setja reglur um innritun með tilliti til aðstæðna
    barna og foreldra og aðstæðna í leikskólum og þar við situr. Þetta er allt
    mjög opið. Þetta verkefni fékk embætti borgarlögmanns í fangið á sínum
    tíma þegar upp kom vafi um það hvort hreinlega væri hægt að forgangsraða í
    þágu systkina eins og var gert um árabil. Á grundvelli þess að þau eigi
    eldri systkini hafa yngri systkini oft staðið í lögmætri trú um að þetta
    sé einfaldlega eitthvað sem sé hægt að láta ganga upp. Þegar álitaefnið
    kom upp vil ég geta þess að það var já, vissulega í borgarstjórnartíð
    fyrri meiri hluta Sjálfstæðisflokksins á árunum 2006 til 2010. En þetta
    mál var ekki leyst út frá pólitískum áskorunum. Þetta var leyst út frá
    lögfræðinni og jafnræðisreglunni. Ég ætla nefnilega ekki að kenna
    pólitískri forgangsröðun Sjálfstæðisflokksins um þessa niðurstöðu. Nei,
    hana eigum við lögfræðingarnir skuldlaust. Mjög þröng túlkun í boði
    lögfræðinga borgarinnar, því miður. Þetta er mín slekt, ég skal bera
    ábyrgð á þessu, þarna bar mögulega kappið fegurðina ofurliði við iðkun
    þeirrar lögfræði sem felst í túlkun jafnræðisreglu stjórnsýslulaganna, þó
    að ég hafi nú ekki persónulega komið að þessari ákvörðun. En sem
    fyrrverandi starfsmaður og lögfræðingur í stjórnsýslu okkar ágætu
    höfuðborgar er ég hreinlega ekkert endilega sammála þessari niðurstöðu. Ég
    er hins vegar í aðstöðu til þess að laga þetta. Ég tel nefnilega að
    núgildandi löggjöf geti rúmað forgangsröðunina sem hér um ræðir með lögmæt
    og málefnaleg sjónarmið að leiðarljósi. En óvissan er engu að síður orðin
    staðreynd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér stendur okkur sem löggjafa til boða að eyða þessu, þ.e. búa
    bara til skýra lagaheimild fyrir sveitarfélög þessa lands til að
    forgangsraða. Ég og meðflutningsmenn mínir gefum meira að segja í og
    leggjum einmitt til að búseta verði líka tekin með í reikninginn. Það er
    nefnilega mikilvægt að það komi fram hér að það leggur enga skyldu á
    sveitarfélögin að notfæra sér þessar lagaheimildir, ekki neina skyldu.
    Þessi forgangur viðgengst reyndar í einhverri mynd í nokkrum
    sveitarfélögum en mesta óvissan ríkir í Reykjavíkurborg og vandinn gæti
    heimfærst á önnur sveitarfélög eftir því sem íbúum kann að fjölga og þau
    stækka að umfangi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil stuttlega gera grein fyrir nýlegum
    úrskurði mennta- og barnamálaráðuneytisins frá því í febrúar síðastliðnum
    sem varpar að mínu mati nokkuð mikilvægu ljósi á stöðuna. Niðurstaðan var
    í stuttu máli sú að borgin hefði ekki beitt eigin reglum rétt um
    systkinatillit. Þar hafði ung fjölskylda verið í, eins og ég hef lýst hér,
    algengri aðstöðu. Eldra barn var á einum leikskóla en yngra systkini þess
    fékk ekki inni á þeim leikskóla og lenti á biðlista. Athugum að önnur börn
    innrituðust þó í þann leikskóla sem eldra barnið var í þannig að það var
    ekki því um að kenna að það væri hreinlega ekki pláss. Ráðuneytið féllst
    ekki á skýringar borgarinnar um að þetta yrði bara að vera svona. Ég veit
    að það hefur verið skerpt á úthlutunarreglum borgarinnar í kjölfar
    þessarar niðurstöðu, en getum við ekki sem löggjafi hreinlega fallist á að
    það sé rétt að meitla það í stein með stoð í skýrri lagaheimild að
    eðlilegt sé og rétt að systkini eigi í þessum tilfellum óumdeilanlegan
    forgang að fyrsta vali umfram börn sem lítið eldri eru og eiga ekki
    systkini í skólanum? Er ekki eðlilegra að þau stöku börn bíði átekta eftir
    milliflutningi í stað þess að foreldrar systkinanna hendist á milli
    tveggja skóla? Það líður alltaf einhver fyrir forgangsröðun. Það geta ekki
    allir notið forgangs, það liggur í hlutarins eðli, en þarna stendur borgin
    frammi fyrir því og önnur sveitarfélög að forgangsraða pólitískt. Hér er
    sá möguleiki á silfurfati.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Það er ekki hægt að fara með lagafrumvarp hér inn í
    þennan sal án þess að taka litla tölfræði. Samkvæmt upplýsingum skóla- og
    frístundasviðs borgarinnar frá 18. mars á þessu ári voru 909 systkinahópar
    með fleiri en eitt barn í leikskólum borgarinnar. Í 702 tilfellum voru öll
    systkinin á sama leikskóla en í 207 tilvikum, nær 25%, voru systkinin á
    tveimur leikskólum. Þetta þýðir að fjórðungur barna sem eru systkini er á
    sitthvorum leikskólanum. Er þetta aðstaða sem við viljum sætta okkur við?
    Flest börnin eru í þessari aðstöðu gegn eigin vilja þó að ég reyndar bíði
    eftir umframtölfræði frá borginni til að staðfesta þessa ályktun
    mína.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í stóru úthlutuninni 2025 fengu 84% barna fyrsta eða annað val
    sitt. Þar fengu 52 börn þó ekki pláss á sama leikskóla og eldri systkini.
    31 sameinaðist systkinum sínum síðar áður en vistun hófst. 21 barn hafði
    þá ekki enn fengið pláss með systkini sínu. Þetta eru ekkert einhverjar
    stjarnfræðilegar tölur en við eigum samt að eyða þessu. Þetta fer líka
    mjög mikið eftir stærð árganga. Stundum er þetta minna vandamál á öðrum
    árum en ég held að við ættum bara að eyða þessu. Formlegu systkinatilliti
    var faktískt aðeins beitt í fjórum tilfellum svo því sé haldið til
    haga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að hér megi ganga lengra. Ég hef oft fengið þær ábendingar
    að það sé hreinlega óþarfi að leggja svona frumvarp fram. Lögin heimili
    þetta hvort sem er, það þurfi bara pólitískt hugrekki. Nú hafa orðið hér
    skipti í pólitískri stjórn borgarinnar og ég veit að það voru þrír flokkar
    sem höfðu þetta mál, þ.e. eiginlegan systkinaforgang, á stefnuskrá sinni
    fyrir síðustu kosningar: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn.
    Ég vil bara benda öllum þessum stjórnmálaflokkum á að þetta er ekki hægt
    að útfæra með skýrum hætti í ljósi lagalegrar óvissu nema með skýrri
    lagaheimild. Ég er bara komin hingað til þess að færa þá gjöf til
    Reykjavíkurborgar og allra sveitarfélaga í landinu og fjölskyldnanna í
    landinu vegna þess að ég lagði þetta frumvarp ekki fram í þágu
    Samfylkingarinnar í Reykjavík. Ég er ekki að reyna að bregða fæti fyrir
    borgarstjórnina í Reykjavík sem nú er leidd af Sjálfstæðisflokki, Viðreisn
    og Framsóknarflokki. Ég er að leggja þetta fram fyrir fjölskyldurnar í
    landinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Reykjavíkurborg skilaði ítarlegri og gagnlegri umsögn um
    frumvarpið á 157 . löggjafarþingi, þ.e. því síðasta, sem ég vil taka
    stuttlega afstöðu til áður en lengra er haldið. Ég ákvað að fara ekki þá
    leið að taka afstöðu til hennar í nýrri almennri greinargerð vegna þess að
    ég held að það nægi hreinlega að byrja upp á nýtt og árétta þessa hluti
    hér í ræðu minni í dag. Í stuttu máli styður borgin meginmarkmið
    frumvarpsins en setur fram nokkrar mikilvægar ábendingar og ætla ég að
    taka afstöðu til þeirra stuttlega. Í fyrsta lagi bendir borgin á að
    velferð og hagur barna skuli vera leiðarljós og aldur barna sé eðlilegasta
    og óumdeilanlegasta meginreglan við innritun. Ég er því sammála.
    Undantekningar þurfi að styðjast við veigamikil sjónarmið, líka sammála.
    Aldur er hlutlægt, einfalt og fyrirsjáanlegt viðmið. Ég tek undir þá
    ábendingu að hagsmunir barnsins eigi að vega þungt og alltaf þyngst. En
    mat á hagsmunum barna er bara miklu víðtækara en samanburður á
    fæðingardögum þeirra. Styttri ferðatími, rólegri morgnar, samvera
    systkina, tengsl við nærumhverfið og meiri tími með foreldrum — það varðar
    líka daglegt líf og velferð barna. Og hagsmunir foreldra eru ekki dregnir
    fram sem eitthvert umframviðmið í þessu mati mínu. Það sem er gott fyrir
    börnin er í meginatriðum mjög gott fyrir samfélagið. en athugum samt að
    það má ekki gleyma því að þreyttir foreldrar eru ekki bestu útgáfurnar af
    sjálfum sér og þar af leiðandi ekki eins góðir foreldrar og þeir geta
    orðið. Þar tala ég og leyfi mér að tala af persónulegri reynslu og veit ég
    að allir foreldrar geta tekið undir það með mér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil forðast að fullyrða það, líkt og gert er í umsögn
    Reykjavíkurborgar frá fyrra löggjafarþingi, að við séum hérna að
    forgangsraða hagsmunum foreldra umfram barna. Við erum samfélag. Hérna
    getum við hjálpast að. Eitt barn getur liðið fyrir forgang annars og hérna
    skuldum við fólki að vera skýr um það sem við viljum gera til þess að búa
    til fjölskylduvænni og betri borg og betri sveitarfélög. En ég vil að fólk
    um allt land sem er að huga að því að eignast sitt annað barn geti gengið
    að því vísu að barn þess verði gripið í tæka tíð af leikskólakerfinu,
    hvort sem það á eldri systkini eða ekki. Og þar þurfum við einnig öll að
    hjálpast að. En þetta er verkefni okkar hér í dag. Við þau sem eru í
    þeirri stöðu að eiga ekki eldra barn á leikskóla og munu hugsanlega finna
    fyrir hinni hliðinni á þessum peningi og er ég alveg hreinskilin með það,
    þá verð ég að segja að við erum að hugsa þessi mál í heildarsamhengi. Það
    er krefjandi að eiga tvö börn á tveimur leikskólum. Það er hreinskilið
    samtal sem ég veit að sveitarstjórnir þessa lands geta átt við þessa
    foreldra, velji þær að fara þá leið vegna þess að það er engin skylda lögð
    á hendur neinna sveitarfélaga í þessu tilliti. Jafnræðisreglan krefst þess
    að málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum sé beitt í hverju tilfelli og
    skýrum lögbundnum viðmiðum sem ég er að leggja hérna fram. Skýr
    lagaheimild styrkir bara þennan grundvöll.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi gerir Reykjavíkurborg mikilvægan greinarmun á því
    hvenær barn fær leikskólapláss og í hvaða leikskóla það fær pláss. Þetta
    er líka ákveðinn kjarni í málinu. Aftur kem ég að því sem varðar þessi
    svokölluðu stöku börn, yngra barn sem á systkini í leikskólanum getur
    gengið fram fyrir eldra barn sem á þar ekkert systkini. Hérna er bara
    verið að draga línu í sandinn. Aftur ætla ég að ítreka og ég treysti mér
    til að segja — og er ég nú ekki að tala fyrir hönd þeirra sem hafa tögl og
    hagldir í Reykjavíkurborg eða öðrum sveitarfélögum, þau þurfa ekki
    endilega að vera sammála mér og er það algjörlega undir þeim komið hvort
    þau nýta þessa reglu í þessum tilgangi sem lögin heimila að gera. En
    aftur, þegar framboð á leikskólavist er takmarkað þá á fjölskylda sem á
    yngra barn að eiga kost á leikskólavist á undan barni sem á þar ekki
    systkini. Það er a.m.k. heimilt samkvæmt þessu. Þetta er mín pólitíska
    skoðun. Svo má tempra þessa reglu og hafa hana meira í átt við það sem er
    núna t.d. í borginni þannig að ég ætla að eftirláta öðrum en mér að ákveða
    hvernig þetta á að vera í Reykjavík eða Kópavogi eða Árneshreppi. Ákvörðun
    um að beita systkinaforgangi er, eins og ég segi, á ábyrgð sveitarstjórnar
    hverju sinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo vil ég auðvitað líka draga fram að þetta fjallar ekki bara um
    systkinin. Þetta fjallar líka um fjarlægð frá heimili. Það er umræða sem
    hefur kannski ekki farið mikið fyrir í tengslum við þetta frumvarp. Við
    erum með þá stöðu sem er að skapast hérna víða um bæ að foreldrar sem búa
    mögulega miðsvæðis, í lítilli kjallaraíbúð t.d. í Teigunum eða í Túnunum,
    eiga oft ekki alveg sömu væntingar til þess að fá leikskólapláss í því
    hverfi vegna þess að foreldrarnir búa mjög nálægt stórum vinnustöðum, t.d.
    í Borgartúni, og þar af leiðandi hefur verið viss ásókn frá foreldrum sem
    búa t.d. í úthverfi að velja sér leikskóla þar. Ég vil meina að það sé
    eitthvað bogið við það að fjölskyldan í kjallaraíbúðinni í Túnunum sem býr
    á móti leikskóla þar geti ekki gengið að þeim leikskóla vísum og þurfi að
    kaupa sér bíl til þess að keyra með barn upp í Seljahverfi, á meðan
    fjölskylda í Seljahverfi sem á barn sem er fætt fyrr á árinu getur fengið
    þetta sama leikskólapláss í Túnunum vegna þess að foreldrarnir eru báðir
    að vinna í Borgartúni. Ég legg þetta fram bara sem svona raundæmi sem
    hefur skapast, reyndar ekki oft, en ég held að við getum öll fallist á það
    að það sé eitthvað bogið við þetta. Aftur: Ég er ekki að segja
    Reykjavíkurborg að taka afstöðu til þessa. Það er algjörlega undir þeim
    hjá borginni komið en hér er lagaheimild til þess að vinna betur með þetta
    ef þau vilja stuðla að minnkandi umferð í borginni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Ég er að segja margt miðað við það hvað frumvarpið er
    stutt og hnitmiðað en ég tel mjög mikilvægt að koma því á framfæri að ég
    treysti hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að skerpa betur á orðalagi
    frumvarpsins í sinni vinnu, telji hún það nauðsynlegt. Ég geri ráð fyrir
    því að frumvarpið fari þangað. Ef markmiðið er að eyða allri lagalegri
    óvissu þarf hugsanlega að taka beinlínis fram að sveitarstjórn sé heimilt
    að veita forgang vegna systkinatengsla eða búsetu þó að það leiði til
    fráviks frá aldursröð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í þriðja lagi bendir Reykjavíkurborg réttilega á stöðu barna í
    skiptri búsetu. Systkini geta vissulega átt sitthvort lögheimilið þó að
    þau búi saman hluta tímans, eigi sameiginlegt heimilislíf og foreldrar
    þeirra beri sömu ábyrgð á daglegu skutli. Þetta er mjög algeng staða í
    borginni og bara um land allt. Hér vil ég segja að sveitarfélagið hefur,
    með vísan til þessarar heimildar, verði hún að lögum, svigrúm til þess að
    veita mismunandi þáttum ólíkt vægi meðal þessara umsækjenda á forsendum
    pólitískrar forgangsröðunar. Ég ætla ekki að segja hvort eigi að vega
    þyngra. Það er alfarið ákvörðun sveitarfélagsins. Þannig getur
    Reykjavíkurborg ákveðið hvort skuli vega þyngra í innritunarreglum, annars
    vegar fjölskylduaðstæður og hins vegar nálægð heimilisins við leikskólann
    sem um ræðir. Mér skilst að Reykjavíkurborg hafi kallað eftir skýrri
    heimild til að taka mið af nálægð við heimili og skýrri afstöðu til þess
    hvort systkinaforgangur eða nálægð eigi að ganga framar. Nú er þetta bara
    fyrstur kemur, fyrstur fær. Fjölskyldan í Árbæ og mögulega í Seljahverfi
    hefur í rauninni sama rétt og fjölskyldan í kjallaraíbúðinni í Túnunum til
    þess að gera tilkall til þessa vals. Ég verð að segja, miðað við það hvað
    framboð á leikskólavist er takmarkað, að ég held að við þurfum að kalla á
    skýrari ramma hvað varðar rétt þeirra sem búa mjög langt frá leikskólanum
    til að velja leikskólavist í þeim leikskóla. Nú er ég alfarið að lýsa
    eigin afstöðu í þessu máli. Þeir sem eru ósammála mér geta þakkað fyrir
    það að ég á ekki sæti í borgarstjórn og mun ekki ráða þessu. Ég get ekki
    svarað fyrir pólitíska afstöðu fulltrúa Samfylkingarinnar í borgarstjórn
    eða annarra þeirra sem þar kunna að sitja. Þessu er ég hreinlega að velta
    upp vegna þess að við vitum, og ég ætla að vera alveg sanngjörn með það,
    að það getur skipt sköpum fyrir fólk sem býr langt frá vinnustað sínum að
    geta verið með leikskóla í nágrenni við vinnustaðinn. Mér finnst ekkert úr
    vegi að velta því upp hvort það eigi hreinlega að hafa þetta í óbreyttu
    ástandi eða mögulega heimila aðilum sem eru í svokölluðum
    viðbragðsstörfum, eru kannski í heilbrigðisgeiranum, eru í mikilvægri
    almannaþjónustu, að fá forgang á leikskóla sem eru nálægt slíkum
    vinnustöðum. Aftur: Þetta er alfarið borgarstjórnar eða sveitarstjórna
    hverju sinni að taka afstöðu til. Brýnt er að þessi viðmið séu lögmæt og
    málefnaleg. Þá stenst þetta jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og væntanlega
    stjórnarskrárinnar líka. Ég myndi segja að það væri hins vegar almennt
    gott fyrir hverfi borgarinnar og barnið sjálft að fara í leikskóla nálægt
    sínu heimili.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla bara aftur að ítreka: Það eru ýmsir þættir sem koma inn í
    þetta mat: nálægð við vinnustað, ömmu og afa og kannski bara sú staðreynd
    að fjölskyldan er ekki í öruggu langtímahúsnæði og gæti séð fram á
    flutninga innan skamms og stefnir kannski jafnvel markvisst að því. Ég vil
    leggja áherslu á þá sýn mína að hagsmunir foreldra og barna fara hér saman
    og það er erfitt að henda reiður á því hvor aðilinn, barnið eða foreldrið,
    nýtur góðs af skýrari forgangsröðun. Ég vinn út frá þeirri möntru í mínu
    lífi sem móðir að maður setur alltaf fyrst súrefnisgrímuna á sjálfan sig,
    ætli maður að hlúa vel að barninu sínu. Það eru reglurnar í flugvélunum og
    ég tek þetta með mér oft út í lífið þegar ég stend frammi fyrir erfiðum
    ákvörðunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sveitarfélög — skyldan er ykkar til þess að útfæra þetta vel. Það
    er hægt að mæla vegalengd frá heimili til skóla og gera ráð fyrir
    raunhæfum ferðatíma. Það vill nú þannig til að ég er bara lögfræðingur og
    ég kann ekki að reikna. Það er hins vegar hægt að reikna þetta út og ég
    treysti sérfræðingum sveitarfélaga til þess að gera það með lögmætum og
    skipulögðum hætti. Ávinningurinn gæti verið sá að það sé hægt að styðja
    verulega við myndun hverfissamfélaga. Það er óumdeilt að þetta myndi draga
    úr umferð og auðvelda börnum að mynda tengsl við börn sem eru líkleg til
    þess að fara í sama grunnskóla. Það er nefnilega mjög margt í þessu,
    virðulegi forseti. Það er mögulega tilefni fyrir nefndina að kanna hvort í
    lögunum eigi einnig að heimila sveitarfélögunum að líta til vinnustaða
    foreldra. En, eins og ég segi, það er ekki undir mér komið að útfæra þetta
    með endanlegum hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vek athygli á að Reykjavíkurborg lagði
    blessun sína yfir markmið frumvarpsins og ég vil vinna málið í eins nánu
    samráði og mögulegt er við Reykjavíkurborg, hvort sem um er að ræða
    stjórnsýsluna eða þann meiri hluta sem nú er í borginni. Ég vil eiginlega
    bara kalla formlega eftir því hér í ræðustól í dag. Það stendur ekki á mér
    að ryðja þeim hindrunum úr vegi sem skipta máli til þess að láta
    systkinaforgang verða að veruleika í Reykjavíkurborg. Þetta frumvarp var,
    eins og ég segi, ekki lagt fram fyrir Samfylkinguna í borgarstjórn. Þetta
    er lagt fram fyrir fjölskyldur í landinu. Stundum hefur því verið lýst sem
    óþörfu og hef ég heyrt það af hægri væng stjórnmálanna hér á Alþingi. En á
    sama tíma verð ég að benda á að stjórnsýsla Reykjavíkurborgar hefur talið
    fullan systkinaforgang kalla á mun skýrari lagaheimild. Þannig að ég spyr:
    Eigum við að vaða áfram í blindni og eigum við að koma á þessum
    systkinaforgangi með þeim hætti sem ég er að ræða um hér í dag án þess að
    skerpa betur á lagaheimildinni og láta reyna á það, hér komi bara annað
    prófmál, hér fari fjölskyldur sem telja sig hafa liðið fyrir beitingu
    slíkra systkinaforgangsreglna í mál við Reykjavíkurborg með tilheyrandi
    kostnaði til að sækja sinn rétt og mögulega yrði borgin dæmd
    skaðabótaskyld í ljósi skorts á reglum? Mögulega ekki. Ég vil bara spara
    okkur þessa leiðangra og veita Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum, eftir
    því sem á við, lagalegan grundvöll til þess að gera þetta
    pólitískt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að reiða mig á samstarfið og ég lýsi mig reiðubúna til
    þess að vera hér til staðar fyrir sveitarfélögin í landinu, hjálpa
    allsherjar- og menntamálanefnd til þess að gera mögulega einhverjar
    breytingar á smáatriðum sem kunna að skipta máli. Ég ætla samt hins vegar
    að segja það að þetta frumvarp fjölgar auðvitað ekki leikskólaplássum. Það
    tryggir ekkert hverju barni pláss þegar fæðingarorlofi lýkur. Það leysir
    bara afmarkaðan lagalegan vanda um það hvernig heimilt er að úthluta
    plássum. Vandinn er auðvitað miklu stærri og hann er miklu, ja, hvað segir
    maður, kerfisbundnari en við kannski viljum sætta okkur við. Ég fagna
    öllum þeim áherslum sem lagðar eru í pólitík til þess að leysa þennan
    vanda með einum eða öðrum hætti, þótt ég sé auðvitað mismikið sammála
    fólki sem leggur til leiðir að settu marki.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í skýrslu aðgerðahóps stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um að
    brúa bilið kemur fram að á Íslandi er enginn skilgreindur réttur til
    leikskóla á vegum hins opinbera og Ísland sker sig þar alfarið úr í
    norrænu samhengi. Ég legg til að við skoðum það alvarlega að breyta þessu
    og ég veit að það stendur yfir vinna til þess að leggja fram
    þingsályktunartillögu um að skoða hvort og hvenær unnt sé að gera
    leikskólann lögbundinn og fagna ég því. Það þarf að lögfesta þetta
    skólastig rétt eins og grunnskólann. Bókasöfn eru lögbundin þjónusta
    sveitarfélaga. Ég skil ekki hvernig við höfum skilið leikskólann eftir í
    þessu samhengi. En við getum tekið saman, og ég óska eftir samvinnu, eitt
    skýrt skref í rétta átt. Þessi óvissa, hvað sem öðru líður, er staðreynd
    og við ættum að sjá hag af því að rísa aðeins upp fyrir flokkslínur í
    þessu litla en mikilvæga máli og eyða henni fyrir fullt og allt. Ég veit
    að fjölskyldan í Laugardalnum og margar fjölskyldur um alla borg og
    mögulega í öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg í framtíðinni myndu
    kunna okkur miklar þakkir fyrir. Það er erfiður tími að eiga tvö lítil
    börn og það er dýrt að vera til. Fólk er oft ekki komið í það húsnæði sem
    það ætlar sér að búa í til langs tíma, er með lítið á milli handanna og er
    í svona erfiðum og krefjandi tíma á sínum atvinnuferli, það er að vinna
    sig upp og vinnur langa vinnudaga eða er í námi. Þið þekkið þetta. Þetta
    er bara steinn í götu fólks sem við getum svo auðveldlega sparkað í burtu
    án þess að vera að þrefa um einhverja stjórnsýslu. Gerum þetta saman og
    einföldum fólki lífið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir að fá að flytja þetta mál hér í
    dag og hlakka til þess að vinna með nefndinni. Ég vona heitt og innilega
    að á næsta löggjafarþingi þurfi ég ekki að flytja þetta mál og að fyrir
    næsta stóra úthlutunardag í mars 2027 þá séum við bara búin að redda
    þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>