<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T17:38:30" skst="JGnarr" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 18:08:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T17:38:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="81">
      <ns:málsheiti>mannanöfn</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla nú að fjalla hér aðeins um tillögu mína og
    ástæður þess að ég legg fram þetta frumvarp. Ég hef tekið eftir því að það
    gætir gjarnan mikils misskilnings, bæði hjá almenningi og jafnvel
    fjölmiðlum, um inntak þessara laga sem við höfum um mannanöfn. Kannski er
    mest áberandi sá misskilningur að mannanafnanefnd ráði lögum og lofum í
    þessum málum og ráði því hvað við megum og megum ekki heita, að það sé
    einhvern veginn háð einhverjum duttlungum þessarar nefndar. Það er ekki
    rétt því að þessi nefnd hefur vissulega ákveðið svigrúm en hún er samt að
    mestu leyti bundin lögum og vinnur í samræmi við þau.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef lengi verið áhugamaður um lögin og íslenskar
    mannanafnahefðir eins og íslenska þjóðhætti. Þessi lög eiga sér langa og
    nokkuð snúna og oft umdeilda sögu. Þau hafa tekið ákveðnum breytingum í
    gegnum tíðina. Ástæðurnar fyrir því að þessi lög voru sett í upphafi voru
    nokkrar en í hugum flestra Íslendinga í dag þá held ég að þessi lög séu
    álitin einhvers konar liður í að halda utan um og varðveita ákveðin
    sérkenni íslenskrar menningar, tungu og sögu. Það finnst mér sannarlega
    góður og göfugur tilgangur. En það eru samt alveg margar einstakar og
    þjóðlegar nafnahefðir sem falla algerlega utan laganna. Ég hef t.d. bent á
    viðurnefnahefðina sem hefur þekkst hér á landi frá landnámi og er bara
    nokkuð einstök, allt frá Hrafna-Flóka, Leifi heppna Eiríkssyni, Hallgerði
    langbrók til Gvendar dúllara og Bjarna móhíkana. Margir kannast við
    setninguna: „Mörður hét maður er kallaður var gígja. Hann var sonur
    Sighvats hins rauða.“ <!-- https://www.snerpa.is/net/isl/njala.htm-->
    Viðurnefni hafa alltaf verið mjög stór hluti af mannanafnahefðinni hér á
    landi og vísa gjarnan til útlits eða persónuleikaeinkenna. Í grunninn eru
    lög um mannanöfn tvískipt; þau snúa annars vegar að fornöfnum og hins
    vegar kenninöfnum sem eru almennt þekkt sem sonar- og dótturkerfið, þetta
    hefðbundna íslenska kerfi, og svo hins vegar ættarnöfn. Hið opinbera gefur
    út skrá með svokölluðum samþykktum mannanöfnum. Ef við viljum gefa barni
    nafn sem er ekki á þessari skrá þurfum við að sækja um það til
    mannanafnanefndar. Upptaka nýrra ættarnafna er stranglega bönnuð. Samkvæmt
    lögum eru einungis leyfð tiltekin ættarnöfn sem voru til þegar lögin voru
    upprunalega sett. Þessi lög hafa margar hliðar og ýmsa galla sem ég mun
    kannski víkja nánar að síðar en að taka á þeim vanda finnst mér kannski
    seinni tíma mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ævaforn íslensk munnmæli segja að fjórðungi bregði til föður,
    fjórðungi til móður, fjórðungi til fósturs og fjórðungi til nafns og er
    þar auðvitað átt við það úr hverju við erum gerð sem manneskjur og hvert
    sé hlutfall þess sem gerir okkur að þeim einstaklingum sem við erum,
    einstökum og ólíkum öllum öðrum. Við tökum slatta af genaglundri frá
    foreldrum okkar og hoppum jafnvel aftur yfir kynslóðir og erum kannski
    nauðalík afa okkar eða ömmu. Þetta á við um útlit, skapgerð, hæfileika og
    sérkenni eins og göngulag, hreyfingar og jafnvel einhverja svipi eða kæki.
    En að mestu leyti erum við auðvitað bara gerð úr okkar einstaka sjálfi.
    Við erum bara við sjálf, ófyrirséð og einstök. Við fæðumst með ákveðna
    eiginleika og svo setjum við okkar persónulega fingrafar á alla okkar
    lífsleið og sporin okkar verða orðspor. Sá sem vandar sig getur sér góðan
    orðstír. Nafnið okkar stendur fyrir eitthvað. Það er líka talað um að bera
    nafn með rentu, að standa fyrir eitthvað, standa undir nafni og að vera
    maður eða kona orða sinna. Að geta sér gott orð er eitthvað það dýrmætasta
    sem við Íslendingar getum eignast í lífinu. Með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:vísa>
        <ns:erindi><ns:lína>Deyr fé,</ns:lína><ns:lína>deyja frændur,</ns:lína><ns:lína>deyr sjálfur ið sama.</ns:lína><ns:lína>En orðstír</ns:lína><ns:lína>deyr aldregi</ns:lína><ns:lína>hveim er sér góðan getur.</ns:lína><ns:lína/></ns:erindi>
      </ns:vísa><!--Hér vantar vísuskema: https://www.snerpa.is/net/kvaedi/havamal.htm--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo mælti Óðinn í einu þekktasta erindi Hávamála. Það er líka
    gamalt orðtak að tala um að skapa sér nafn og það þekkist í fleiri
    tungumálum en okkar. Með því skaparðu yfirleitt eitthvað einstakt og
    jákvætt úr nafninu þínu með því sem þú býrð til, segir og gerir. Ég get
    nefnt sem dæmi Mozart. Mozart er gæði og það er framleitt sælgæti sem
    heitir Mozart og það er líka ágætt og samt er ég ekki mikið fyrir sælgæti.
    Jú, og kannski Jesú. Jesú var í upphafi frekar svona hversdagslegur
    alþýðumaður sem skar sig ekki mikið út úr fjöldanum að miklu leyti en náði
    að skapa sér nafn og virðingu með því sem hann sagði og gerði. Í hans
    nafni varð til hreyfing sem er byggð á hugmyndafræði hans og fleiri sem
    átti eftir að leggja grunninn að menningu Vesturlanda. Merkið hans,
    krossinn, stendur fyrir ákveðin grunngildi sem hægt er að byggja á og
    táknar traust, virðingu og vináttu. Enginn einn maður, líklega enginn,
    hefur haft jafn mikil áhrif á Ísland án þess að hafa nokkurn tímann komið
    hingað. „Blessað sé nafn þitt blíða,“ <!--https://ordlyklar.arnastofnun.is/salmar/c112.htm-->
    sagði Hallgrímur Pétursson í Passíusálmunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sá siður að skipta um nafn er vel þekktur í ýmsu sögulegu samhengi
    og á sér margar ólíkar ástæður. Stundum er fólk ósátt við það nafn sem því
    var gefið í frumbernsku, vill hnýta hnút á ákveðið lífstímabil eða leyna
    jafnvel ætterni sínu eða uppruna. Það er einnig algengt að fólk breyti um
    nafn þegar það flytur milli landa eða menningarsvæða og tekur sér gjarnan
    nafn sem fellur betur að því málsvæði og menningu. Það er líka ákveðin
    hefð hjá listamönnum að taka upp annað nafn en sitt eigið, svokallað
    listamannanafn; Halldór Laxness og Jóhannes Kjarval eru góð dæmi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við köllum nöfn oft skírnarnöfn, á ensku kallast það, með leyfi
    forseta, „christian name“. Það var víst algengur siður í árdaga kristni í
    Evrópu að fólk skipti um nafn þegar það skírðist til kristinnar trúar; það
    afsalaði sér þá gjarnan sínu gamla nafni sem tengdist þá einhverjum
    heiðnum sið, villutrú eða barbarisma, og tók sér kristilegt nafn, gjarnan
    úr Biblíunni, oft eftir einhverjum dýrlingi sem fólk treysti á. Þessi
    nafnabreyting hjálpaði fólki að aðlagast nýjum siðum og heimsmynd. Nafnið
    var persónuleg staðfesting á undirgefni við kirkjuna og trúna og þetta er
    gömul saga og ný. Við þekkjum mörg dæmi um Íslendinga sem hafa flutt t.d.
    til Kanada og Bandaríkjanna í leit að betra lífi; vesturfararnir á
    ofanverðri 19. öld tóku sér oft nöfn sem féllu betur að enskumælandi
    samfélagi enda þóttu nöfn á borð við Þorgrímur eða Hallgerður oft óþægileg
    í framburði í framandi menningu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einn frændi minn hét Jóhannes Gíslason en hann tók sér nafnið
    vestanhafs John Giles. Það er gaman að segja frá því t.d. að ættarnafnið
    Nordal, sem er nú þekkt ættarnafn á Íslandi, varð nákvæmlega til með
    þessum hætti þegar vesturfarinn Jóhannes Guðmundsson tók sér það nafn
    eftir Norðurárdal þaðan sem hann var ættaður og hélt svo nafninu þegar
    hann sneri aftur hingað heim til Íslands. Við þekkjum líka dæmi þess að
    fólk sem hefur verið dæmt fyrir glæpi skipti um nafn til að hreinsa sig,
    fá hreinan skjöld og jafnvel halda áfram virkri glæpastarfsemi sinni undir
    nýju nafni og jafnvel tveimur eða fleirum en einu. Nýlegt og vel þekkt
    dæmi var þegar glæpamaður breytti nafni sínu til háðungar fyrrverandi
    forseta Íslands og fulltrúa þjóðarinnar. Ég man líka eftir fréttum af
    veitingahúsaeiganda sem kallaðist þremur mismunandi nöfnum eftir því hvaða
    frétt maður var að lesa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við búum hér á landi þar sem gilda, miðað við mörg önnur lönd,
    frekar strangar nafnareglur og bönn og boð. Við höfum sérstaka nefnd sem
    fjallar um það hvort fólk megi heita ákveðnum nöfnum og hvort nöfnin
    samræmist menningarlegum áherslum, rithætti eða gætu jafnvel orðið
    nafnbera til ama. Þetta er mikil umhyggjusemi. Þessi nefnd tekur við
    umsóknum og svo birtir hún reglulega úrskurði sína; þá sjáum við
    fyrirsagnir í blöðum eins og: Má heita Nellý en ekki Sallý, eða eitthvað í
    þessum dúr. Ég held að flestir muni eftir svona fyrirsögnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í ljósi þessarar nákvæmnisvinnu, sem er ákveðin samsuða þjóðfræði,
    siðfræði, málfræði og lögfræði, er samt líka alveg stórmerkilegt hvað
    glæpamenn virðast oft eiga auðvelt með nafnabreytingar á meðan heiðarlegt
    venjulegt fólk virðist þurfa að ganga í gegnum kostnaðarsama tímaeyðslu og
    jafnvel opinbera niðurlægingu áður en það nær fram rétti sínum. Við munum
    eflaust öll eftir máli Blævar sem vakti heimsathygli; máli stúlkunnar sem
    var meinað að heita því nafni sem henni var gefið í æsku og varð bara
    svona út um allan heim fyndna fréttin. Mannanafnanefnd neitaði Blævi um að
    bera nafnið Blær því samkvæmt þágildandi lögum var það karlmannsnafn. Það
    voru því einungis fyrir þrautseigju Blævar og fjölskyldu hennar að hún
    náði loks fram rétti sínum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur 2013, þá 16 ára
    gömul. Dómurinn hnekkti úrskurði nefndarinnar og það var mat dómsins, með
    leyfi forseta, „að réttur stefnanda til að bera nafnið Blær sé ríkari en
    hagsmunir samfélagsins af því að hafna kröfunni.“ <!--https://island.is/domar/g-69090d21-0a13-4cf4-bd64-8a7f539140bf--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta finnst mér bara fullkomið merki um svokallaðan salómonsdóm
    af því að þetta er bara satt og þetta hefur ekki skaðað nokkurn einasta
    mann. Hvernig getur staðið á því að við séum með lög í landinu sem mismuna
    fólki með þessum áberandi hætti þar sem ströng lög gilda fyrir fólk sem er
    fætt á landinu en önnur lög svo fyrir fólk sem flyst til landsins annars
    staðar frá? Innflytjendur mega nefna börn sín í samræmi við sína tungu og
    menningu, og það er líka bara sjálfsagður hlutur og réttur þeirra, en
    flestir aðrir Íslendingar hafa ekki þennan rétt. Hvaða réttlæti felst í
    lögum sem niðurlægja og níðast á stúlkubarni og fjölskyldu hennar með
    kuldalegum og smásmugulegum útúrsnúningum og hörku, yfirlæti og
    afskiptasemi af hennar persónulegu ósk um að fá að heita Blær en gefa
    síðan glæpamönnum nokkuð frjálsar hendur til að breyta nöfnum sínum eftir
    geðþótta?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í hittiðfyrra fjallaði <ns:skáletrað>Heimildin </ns:skáletrað>t.d.
    um barnaníðing sem hlaut fimm ára dóm vegna kynferðisbrota gegn sex ungum
    drengjum. Eins og mjög margir dæmdir kynferðisglæpamenn er hann búinn að
    breyta nafninu sínu og heitir eitthvað allt annað þegar fréttin var
    skrifuð. Blaðamaður beinir einmitt athygli að því hversu algengar
    nafnabreytingar eru meðal einstaklinga sem hafa hlotið dóma fyrir
    alvarlega glæpi. Ævar Pálmi Pálmason, fyrrverandi yfirmaður
    kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, bendir á það í
    þessari grein að þetta veki spurningar. Hann segir orðrétt, með leyfi
    forseta: „Ég bara skil ekki af hverju dæmdum barnaníðingi er gert það
    auðvelt að breyta um nafn.“ Ég skil það ekki heldur.<!-- https://heimildin.is/grein/22414/--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Árið 1913 vildi Alþingi koma böndum á nafngiftir landsmanna og
    jafnvel banna ættarnöfn með öllu. Í ljós kom ákveðinn vandi því margir
    Íslendingar sem báru ættarnöfn höfðu tekið þau upp þegar þeir voru við nám
    í Danmörku. Nöfnin voru því orðin ákveðið stöðutákn, gáfu til kynna
    menntun og stöðu, og flestir sem báru þau voru í æðstu embættum á landinu.
    Í greinargerð með frumvarpi til fyrstu mannanafnalaga var talað um að það
    þyrfti að koma í veg fyrir að börnum væru gefin hneykslanleg og rangmynduð
    nöfn á borð við Kristjúlía, Katríníus og Samúelína. <!-- https://www.althingi.is/altext/raeda/24/1594.html--></ns:mgr>

    <ns:mgr>Fyrstu lög um mannanöfn voru samþykkt 1914. Þetta var tími mikilla
    fólksflutninga. Fólk var að flytja úr sinni sveit og á mölina en kenndi
    sig við sveitina sína eða bæinn sinn. Þannig urðu til ættarnöfn eins og
    Kaldal, Eyfjörð, Vestmann, Breiðfjörð o.s.frv., allt alveg frábær nöfn.
    Skáld notuðu líka tækifærið þarna og tóku sér eftirnöfn. Dæmi um það eru
    Kamban og Kvaran; Einar Kvaran Hjörleifsson tók sér nafnið Kvaran árið
    1916. Þetta fór síðan að skapa einhverja togstreitu en svo er það ekki
    fyrr en 1991 að lögin eru tekin til gagngerrar endurskoðunar og Alþingi
    samþykkir ný lög þar sem er stranglega bönnuð upptaka nýrra ættarnafna. Þá
    var líka sú nýjung kynnt að öllum innflytjendum sem flyttust til landsins
    yrði framvegis gert skylt að taka sér íslenskt nafn sem skilyrði fyrir
    ríkisborgararétti en svo kom í ljós að þessi krafa brýtur gegn alþjóðlegum
    mannréttindasáttmálum og þess vegna var þetta ákvæði fellt úr gildi
    1996.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Upp úr síðustu aldamótum byrjaði innflytjendum að fjölga mjög
    hratt á Íslandi og miklu hraðar en áður og þar sem ekki er lengur hægt að
    neyða fólk til að taka upp íslensk nöfn þá fær það að halda nöfnum sínum;
    sem sagt að þegar innflytjendur fá íslenskan ríkisborgararétt og verða
    fullgildir Íslendingar, þrátt fyrir að vera af einhverjum erlendum
    uppruna, þá ættu í rauninni ættarnöfn þeirra að fá sömu stöðu og hin
    hefðbundnu gömlu íslensku ættarnöfn. En svo er það ekki og þetta er
    einhvern veginn hið vandræðalegasta mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Upplýsingum um fjölda ættarnafna hefur verið haldið nokkuð
    leyndum. Þjóðfræðingar og fræðimenn hafa verið að rannsaka þessi mál og
    hafa átt í erfiðleikum með að fá aðgang að upplýsingum sem liggja fyrir.
    Árnastofnun heldur úti ákaflega sérkennilegri vefsíðu sem ég held að hafi
    verið síðast uppfærð árið 2010. Samkvæmt þeim tölulegu upplýsingum sem ég
    fékk frá Þjóðskrá er algengasta eftirnafnið á Íslandi — ég kann ekki að
    bera það fram en ég ætla að reyna það — Nguyen, <!--https://www.dv.is/frettir/2025/03/26/thetta-eru-algengustu-aettarnofnin-islandi-->það
    er langalgengast. Mér skilst að það sé ættað frá Víetnam og það kemur ekki
    á óvart því að fólk frá Víetnam var með fyrsta flóttafólkinu sem kom til
    Íslands. En þetta kemur mér samt á óvart. Ég verð að viðurkenna að miðað
    við það sem komið hefur fram um framkvæmd gagnaöflunar og að stofnunin
    segist blygðunarlaust styðjast við lista sem síðast var uppfærður 2010 þá
    tek ég þessum gögnum samt með ákveðnum fyrirvara. Samkvæmt tölum frá
    Hagstofu eru innflytjendur á Íslandi nú rúmlega 18% íbúa og
    langfjölmennastir eru innflytjendur frá Póllandi. Rúmlega 22.000 Pólverjar
    búa á Íslandi og mér finnst sérkennilegt að eftirnöfn þeirra skuli ekki
    vera á þessum lista.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef nú gert aðeins grein fyrir uppruna og hugmyndafræði
    mannanafnalaganna og ætla nú að reyna að hlaupa fljótt yfir sögu. Með
    þessu frumvarpi er ég ekki að leggja til að við leggjum niður lög um
    mannanöfn. Ég legg heldur ekki til að mannanafnanefnd verði lögð niður.
    Þvert á móti vil ég heimila einstaklingum að taka upp ný ættarnöfn í
    frekara mæli en í núgildandi lögum sem og veita heimild til að taka upp
    svokölluð eftirnöfn sem kenninöfn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum sem eru
    skilgreind betur í frumvarpinu. Með því að bæta þessum lið, eftirnafni,
    við sem möguleika er einstaklingum gert kleift að taka upp nýtt kenninafn
    án þess að eiga eiginlegt eða huglægt tilkall til einhvers sérstaks
    ættarnafns og fyrir því geta legið ótal persónulegar og menningarlegar
    ástæður. Þannig geta einstaklingar sem vilja kenna sig við sérstakan stað
    á landinu eins og fordæmi eru fyrir, svo sem Fossberg, Reykfjörð, Vestmann
    eða Laxness, komið með ný nöfn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Önnur tillaga frumvarpsins snýr að heimild mannanafnanefndar til
    samþykktar eigin-, milli-, og kenninafna sem óskað er eftir. Til viðbótar
    þeim skilyrðum sem tiltekin eru nú í 5. gr. mannanafnalaga verður
    nefndinni heimilt að samþykkja nöfn eða nafnbreytingar sem jafnvel
    samræmast ekki íslenskri málhefð séu fyrir því persónulegar eða
    menningarlegar ástæður. Með breytingum á lögunum sem urðu 1996, þar sem
    bann við nýjum ættarnöfnum var fellt niður í tilvikum útlendinga sem fengu
    íslenskan ríkisborgararétt, varð til tvöfalt kerfi og það var aldrei
    ætlunin í upphafi. Það var til tvöfalt kerfi og eins fáránlegt og það kann
    að hljóma þá hafa aldrei í sögu landsins verið hér jafnmörg ættarnöfn eins
    og eftir að þau voru bönnuð. Þetta er stórmerkilegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með því að leyfa upptöku eftirnafna samkvæmt þessu frumvarpi, að
    uppfylltum skilyrðum og rökstuðningi, myndi ég telja að lögin væru loksins
    komin á nokkuð viðunandi stað. Með þessari skynsamlegu breytingu myndum
    við slá mjög margar flugur í einu höggi. Íslenskum ríkisborgurum yrði
    heimilt að taka aftur upp hinn gamla góða sið að kenna sig við einhvern
    stað eða heimasveit, íslensk kennileiti, menningararf eða sögu. Breytingin
    yrði mikil réttarbót fyrir trans fólk sem myndi með þeim öðlast möguleika
    á að taka upp nafn sem fæli ekki endilega í sér að viðkomandi væri
    augljóslega trans manneskja, eins og lögin gera svolítið núna. Síðan erum
    við líka að gefa innflytjendum sem langar að taka sér nafn sem fellur
    betur að íslenskum málvenjum, eins og Vestur-Íslendingarnir gerðu gjarnan
    þegar þeir fluttu til Norður-Ameríku, við erum að gefa þeim möguleika á að
    gera það með einföldum og skýrum hætti. Við erum líka að losa fjölda fólks
    sem situr fast í svona lagatæknilegum snörum og ratar ekki út úr þeim og
    um það er fjöldi dæma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sjálfur var nefndur Jón Gunnar Kristinsson 1967. Ég er nefndur
    Jón í höfuðið á móðurafa mínum Jóni Einarssyni sem fæddur var 30. desember
    1878 á Eystri Loftstöðum í Gaulverjabæjarsókn og starfaði sem múrari í
    Reykjavík. Ég er mjög stoltur af því en ég skildi ekki hvaðan Gunnar kom
    og mamma sagði: Jú, það er í höfuðið á Gunnu frænku, en hún hét Guðrún.
    Með leyfi forseta, spurði ég: En af hverju heiti ég þá ekki Jón Gunna?
    Mamma sprakk úr hlátri við þessa spurningu og útskýrði fyrir mér að það
    gengi aldrei því bæði væri það annars vegar gælunafn og hins vegar
    kvenmannsnafn og það væri bannað með lögum að karlmaður gæti heitið
    kvenmannsnafni og öfugt. Mér fannst þetta bara strax, ég hef verið átta
    ára kannski, eitthvað svoleiðis, ósanngjarnt og asnalegt. Ég hefði stoltur
    viljað heita Jón Gunna. Gunna frænka mín heitin var einhver allra mesti
    töffari sem ég hef kynnst.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta breyttist síðan 2019 með lögum um kynrænt sjálfræði. Þá
    vakti það töluverða athygli hér á landi þegar Sigurður Hlynur
    Snæbjörnsson, bóndi á Öndólfsstoðum í Reykjadal, tók sér nafn ömmu sinnar
    Sigríðar og heitir nú Sigríður Hlynur. Það getur vel verið að einhverjir
    kunni að hafa einhverjar skoðanir á því en það kemur þeim hreinlega ekkert
    við því þetta er einkamál Sigríðar. Með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr><!-- https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/07/10/hann_heitir_sigridur_hlynur/-->„„Þetta
    er sigur fyrir einstaklingsfrelsið,“ segir Sigríður og er þess fullviss að
    á komandi tímum muni margir leita réttar síns vegna breytinganna og fá að
    heita það sem þau heita. „Þessi lög eru auðvitað ekki sett fyrir mig
    heldur aðra hópa eins og transfólk og kynsegin fólk og mín breyting er
    hliðarverkun af þessu. Hitt er náttúrulega stærsta málið í þessu, að
    fjöldi manns fær nú að heita sínum nöfnum,“ segir hann.“— Fyrir þetta ku
    hann hafa greitt 9.000 kr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég sem barn skrifaði mig yfirleitt Jón G. Kristinsson. Ég var
    kallaður Jónsi, seinna Jónsi pönk, og sem unglingur tók ég mér
    listamannsnafnið Jón Gnarr og örlögin hafa hagað því þannig að það nafn
    hefur fest við mig. Ég vildi fá það viðurkennt en lögin bönnuðu mér það.
    En eins og oft vill verða með lög, með boð og bönn, þá eru oft svo
    merkilega margar krókaleiðir í kringum þau. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum
    2015 sótti ég um nafnabreytingu og í héraðsdómi í Harris-sýslu í Houston í
    Texas fór ég fyrir dómara sem fann ekkert að umsókn minni og samþykkti
    hana. Þjóðskrá Íslands neitaði í fyrstu að viðurkenna þennan gjörning en
    áttaði sig fljótt á því að þetta var algerlega löglegur gjörningur og þau
    drógu höfnunina til baka og nafnið Jón Gnarr var fært í þjóðskrá og ég
    heiti það síðan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Auðvitað hét ég það alltaf. Börnin mín og barnabörn bera þetta
    nafn og við erum nú orðin 13 og það hefur enginn, ekki nokkur maður, orðið
    fyrir neinum skaða af þessu, nema kannski ég sjálfur. Við hjónin skírðum
    yngsta son okkar Jón Jónsson. Okkur fannst það fallegt og íslenskt. Mér
    fannst líka svolítið fyndin tilhugsun að geta sagt ef einhver spyrði mig:
    Hvaða drengur er þetta? Þá gæti ég sagt: Æ, þetta er bara einhver Jón
    Jónsson. Með breytingunni varð hann síðan Jón Gnarr þannig að þetta var
    svona misheppnaður brandari hjá mér en hann er sem betur fer
    fyrirmyndarpiltur, eins og öll mín börn. Ég hef notið góðs af því t.d.
    þegar hann tók þátt í maraþoninu í Róm í vor og náði þar ágætum tíma. Ég
    hef fengið hrós fyrir það og ég hef ekki séð ástæðu til að leiðrétta
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka getak annars möguleika sem þessi lagabreyting mun opna
    fyrir. Með breytingunni mun fjöldi fólks með framandi erlend nöfn sem það
    telur vera sér til trafala gefast þess kostur að taka sér nöfn sem hljóma
    íslenskar. Það getur þá bara sótt um að vera t.d. Guðmundsson án þess að
    eiga föður sem hét Guðmundur. Það bara fellur mjög vel að íslenskum
    hefðum. Fólki getur fundist nafnið sitt einhvern veginn standa sér fyrir
    þrifum á ýmsan hátt, t.d. verður fólk oft fyrir einhverri stríðni í æsku
    út af nafninu sínu og það er bara eitthvað sem situr gjarnan í fólki alla
    ævi. Og það má nefna aðrar persónulegar ástæður — það hafa komið upp
    tilfelli fólks t.d. sem hefur ekki alist upp hjá foreldrum sínum og hefur
    aldrei þekkt foreldra sína og er kannski ekkert sérstaklega hlýtt til
    þeirra en er neytt til að kenna sig við foreldra sína.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er flókið en fyrst og fremst persónulegt mál sem snertir
    sjálfsmynd okkar og hver við erum í innsta kjarna. Ef ég vil heita
    Sigríður, það bara kemur ekki nokkrum manni við. Ég legg til að málið fari
    til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd. Ég þakka þeim sem
    hlýddu. — Ég hef lokið máli mínu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>