<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-17T18:09:12" skst="ÁLÞ" tegflm="L" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-17 18:28:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="8" lgþ="158" tími="2026-09-17T18:09:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="83">
      <ns:málsheiti>fasteignalán til neytenda og nauðungarsala</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um
    fasteignalán til neytenda og lögum um nauðungarsölu. Meðflutningsmenn
    mínir eru hv. þingmenn Bragi Þór Thoroddsen, Jónína Björk Óskarsdóttir,
    Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Sigurður Helgi Pálmason og Sigurjón
    Þórðarson.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvörp sem stefna að sama markmiði og frumvarp þetta hafa verið
    lögð fram a.m.k. tíu sinnum áður, síðast á 157. löggjafarþingi. Með
    frumvarpinu er gerð tillaga um hófsamlega breytingu sem getur þó haft
    mikla þýðingu fyrir neytendur í greiðsluerfiðleikum sem leiða til þess að
    þeir missa húsnæði sitt í nauðungarsölu. Þetta er í raun og veru svokallað
    lyklafrumvarp. Frumvarpið er að stofni til sprottið að frumkvæði
    Hagsmunasamtaka heimilanna og byggist á sömu rökum og færð voru fyrir
    hinum fyrri frumvörpum sama efnis. Samkvæmt upplýsingum frá þeim ágætu
    samtökum eru mál sem varða eftirstöðvar fasteignalána í kjölfar
    nauðungarsölu meðal þeirra algengustu sem hafa komið inn á þeirra borð og
    eru jafnvel dæmi um að neytendur séu enn krafðir um meintar eftirstöðvar
    þótt þær hafi fengist að fullu greiddar við nauðungarsölu fyrir löngu.
    Jafnvel þó að það samræmist ekki lögum að krefja neytendur um eftirstöðvar
    sem markaðsverð fasteignar nægði fyrir að lokinni nauðungarsölu eru samt
    fjölmörg dæmi um slíkt. Þar standa neytendur illa að vígi, bæði vegna þess
    að þeir þekkja ekki rétt sinn og leita hans því augljóslega ekki en líka
    vegna þess að ekki er jafnræði milli þeirra og kröfuhafa. Neytendur hafa
    einfaldlega ekki efni á slagnum sem myndi fylgja í kjölfarið, enda á fólk
    sem misst hefur húsnæði sitt almennt ekkert fé handbært og er því auðveld
    fórnarlömb. Þar sem nú er gerð sú krafa í 38. gr. laga um fasteignalán til
    neytenda, nr. 118/2016, að bjóða verði önnur úrræði áður en krafist er
    nauðungarsölu er líklegt að allt annað sé fullreynt áður en til þess
    kemur. Þar af leiðandi hlýtur að liggja fyrir það mat lánveitanda að
    neytandi hafi ekki fyrirsjáanlega greiðslugetu til að standa undir þeim
    skuldbindingum sem á húsnæði hans hvíla. Það ætti því að vera augljóst að
    neytandinn á enga möguleika á að standa undir auknum kröfum hans þegar
    búið er að selja heimili hans á nauðungarsölu. Það liggur því í hlutarins
    eðli að skilyrði eru fyrir því að fella niður veðskuldir umfram verðmæti
    fasteignar, en það er einmitt það sem þetta frumvarp felur í sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Markmið frumvarpsins er að stuðla að vandaðri lánastarfsemi með
    því að færa skuldurum að fasteignalánum í hendur þann möguleika að láta af
    hendi veðandlag lána sinna, þ.e. viðkomandi fasteign, og ganga skuldlausir
    frá borði ef í harðbakkann slær. Frumvarpið er þannig mikilvægur liður í
    því að dreifa áhættutöku í fasteignalánum og færa innlenda lánastarfsemi
    úr því horfi að áhætta sé einhliða á hendi lántaka. Það er einnig markmið
    frumvarpsins að stuðla að skilvirkri innleiðingu og framkvæmd tilskipunar
    2014/17/ESB frá 4. febrúar 2014 um lánasamninga fyrir neytendur í tengslum
    við íbúðarhúsnæði o.fl. Efnisákvæði tilskipunarinnar hafa að mestu leyti
    verið lögfest hér á landi með lögum um fasteignalán til neytenda. Með
    hliðsjón af þeim ábendingum sem hafa borist um framkvæmd laganna er stefnt
    að því að skerpa enn frekar á þeim til að efla og skýra betur réttindi
    neytenda á þessu sviði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Með frumvarpi þessu er lagt til að lögfest verði nokkurs konar
    efndaígildi, datio in solutum, í fasteignalánum. Efndaígildi lýsir sér
    þannig að kröfuhafi viðurkennir aðra greiðslu sem fullnægjandi þannig að
    kröfusambandi kröfuhafa og skuldara ljúki með öðrum hætti en upphaflega
    var stefnt að. Þannig gerir frumvarp þetta ráð fyrir því að kröfuhafa,
    samkvæmt samningi um fasteignalán þar sem endurgreiðsla lánsins er tryggð
    með veði í hinni keyptu fasteign, verði gert að samþykkja að afhending
    umræddrar eignar í sínar hendur teljist fullnaðargreiðsla af hálfu
    skuldara sem jafngildi því að skuldbindingin hafi verið efnd að fullu.
    Gengið er út frá því að þetta reyni ekki á nema í neyð, t.d. þegar
    greiðslufall hefur orðið af hálfu skuldara og lögbundinn réttur kröfuhafa
    til að leita fullnustu á kröfum sínum er orðinn virkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í skýrslu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins London Economics frá
    árinu 2012 um úrræði til að halda neytendum í fjárhagserfiðleikum er
    ítarlega fjallað um efndaígildi á borð við það sem hér um ræðir. Þar kemur
    fram að sambærileg úrræði hafi lengi þekkst í mörgum ríkjum Bandaríkjanna
    og hafi frá fjármálahruni rutt sér til rúms í Evrópu, einkum á
    Spáni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Jafnframt komu fram í viðmiðunarreglum Evrópska bankaeftirlitsins
    frá 1. júní 2015 um vanskil og nauðungarsölu nánari leiðbeiningar um
    hvernig fara skuli með slík lán. Af þeim má ráða að gerðarbeiðandi eigi að
    gæta fyllsta meðalhófs í slíkum aðgerðum gagnvart neytanda. Sú hefur ekki
    verið raunin hér á landi. Fjölmörg dæmi eru um að meðalhófs hafi ekki
    verið gætt og farið með offorsi gegn neytendum í þágu kröfuhafa.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Brýn nauðsyn þess að lögfesta úrræði á borð við það sem frumvarp
    þetta felur í sér kom bersýnilega í ljós í kjölfar fjármálahrunsins 2008
    þegar gengi krónunnar hríðféll með þeim afleiðingum að gengistryggðir
    lánasamningar urðu skuldurum ofviða. Verðlagsáhrif gengisfallsins höfðu
    sambærilegar afleiðingar fyrir verðtryggða lánasamninga. Úrræðaleysið sem
    blasti við neytendum olli fordæmalausu uppþoti í samfélaginu sem dró dilk
    á eftir sér. Nauðsynlegt er að læra af reynslunni og innleiða úrræði til
    að fyrirbyggja að sagan endurtaki sig. Að fenginni þeirri reynslu yrði til
    mikilla bóta að styrkja stöðu skuldara fasteignaveðlána með þeim hætti sem
    frumvarpið kveður á um. Auk þess að færa skuldurum í hendur nauðsynlegt
    úrræði til að mæta ófyrirséðum fjárhagslegum örðugleikum myndi sú
    áhættudreifing sem í því felst hvetja lánastofnanir til að ástunda
    vandaðri lánastarfsemi en ella. Þannig er frumvarpið til þess fallið að
    gera að verkum að hagsmunir lánveitenda og neytenda fari saman umfram það
    sem nú er með því markmiði annars vegar að neytandi geti staðið undir
    afborgunum af fasteignaláni sínu og hins vegar að raunverulegt virði
    fasteignar verði ekki miklu minna en virði lánasamningsins heldur
    sambærilegt. Þannig yrði dregið úr líkum á myndun fasteignabólu í líkingu
    við þá sem myndaðist árin fyrir hrunið 2008 eða á tímabilinu 2019–2022.
    Til langs tíma litið myndi breytt umhverfi að þessu leyti leiða til
    vandaðri lánastarfsemi, samfélaginu öllu til bóta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í svari þáverandi dómsmálaráðherra við fyrirspurn um nauðungarsölu
    og gjaldþrotaskipti árið 2018, sem og svari félags- og
    jafnréttismálaráðherra við fyrirspurn um nauðungarsölu og greiðsluaðlögun
    sama ár, kom fram að á tíu árum þar á undan hefðu a.m.k. 9.195 fasteignir
    einstaklinga verið seldar nauðungarsölu eða vegna greiðsluaðlögunar. Án
    efa hafa fleiri fjölskyldur misst heimili sín eftir öðrum leiðum sem ekki
    liggja fyrir neinar opinberar tölur um þar sem allir gera allt sem þeir
    geta til að semja áður en til nauðungarsölu kemur. Er varlegt að áætla að
    þeir sem misstu heimili sín eftir öðrum leiðum, eins og t.d. eftir
    gjaldþrot eða nauðasamninga við bankann, hafi verið a.m.k. jafn margir.
    Hagsmunasamtök heimilanna hafa rætt um 15. 000 fjölskyldur sem hlýtur að
    teljast varlega áætlað. Það skýtur hins vegar verulega skökku við og er
    hreinlega til skammar að ekki skuli vera til nákvæmari tölur yfir þessar
    fjölskyldur, en það er önnur saga sem verður ekki rædd hér. Litlar varnir
    hafa verið reistar í þágu heimilanna þrátt fyrir þessa reynslu. Til vitnis
    um það segir í skýrslu dómsmálaráðherra um framkvæmd sýslumanna á lögum um
    aðför og lögum um nauðungarsölu frá 149. löggjafarþingi að ekki sé gætt
    sérstaklega að því hvort lánveitandi hafi fullnægt skilyrðum 38. gr. laga
    um fasteignalán til neytenda við framkvæmd nauðungarsölu. Með frumvarpinu
    er ætlunin að gera úrbætur á þessu neytendum til hagsbóta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Samkvæmt 38. gr. laga um fasteignalán til neytenda er lánveitendum
    skylt að gefa neytendum kost á úrræðum, svo sem endurfjármögnun eða
    skilmálabreytingum láns, sem gætu leyst úr greiðsluerfiðleikum neytanda
    áður en krafist er nauðungarsölu. En eins og kom fram í svari
    dómsmálaráðherra er sú ekki raunin. Þannig er sá vilji löggjafans ljós að
    skipa nauðungarsölu þann sess að verða úrræði til þrautavara í slíkum
    tilvikum þegar allar aðrar leiðir reynast ófærar, þar á meðal
    samningaleiðin. Þegar svo ber undir hlýtur fjárhagur neytenda jafnan að
    vera bágborinn með tilliti til skuldastöðu og er því málefnalegt að veita
    úrræði til að leysa neytanda í þeirri stöðu undan slíkum byrðum, líkt og
    hefur verið leitast við í seinni tíð, t.d. með lögum um greiðsluaðlögun
    einstaklinga, breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti og með lögum um
    fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna
    gjaldþrotaskipta. Í þeim tilvikum þegar allt annað hefur verið fullreynt
    áður en krafist er nauðungarsölu má jafnan telja óhætt að álykta að
    skilyrði greiðsluaðlögunar séu sjálfkrafa uppfyllt hvað varðar
    niðurfellingu veðskulda umfram verðmæti fasteignar. Er það því til þess
    fallið að auka mjög á skilvirkni úrlausnarmála í slíkum tilfellum að
    samkvæmt frumvarpinu verði tekin upp sú meginregla að eftirstandandi
    skuldir vegna fasteignalána falli niður í kjölfar nauðungarsölu á fasteign
    neytenda. Við útfærslu þessa frumvarps hefur verið tekið mið af
    athugasemdum sem hafa komið fram á fyrri stigum, þar á meðal frá embætti
    umboðsmanns skuldara með vísan til laga um nauðungarsölu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Samkvæmt núgildandi 57. grein laga um nauðungarsölu, nr. 90/1991,
    getur veðkröfuhafi sem ekki fær kröfum sínum fullnægt við nauðungarsölu
    ekki krafið skuldara um greiðslu eftirstöðva krafna sinna nema að því
    leyti sem hann getur sýnt fram á að markaðsvirði eignar á þeim tíma hefði
    ekki nægt til greiðslu þeirra krafna. Þetta getur aðeins átt við í þeim
    tilvikum þegar söluverð eignar á nauðungarsölu er undir markaðsvirði
    hennar. Ef veðkröfurnar eru hærri en markaðsverð hinnar veðsettu eignar
    getur skuldari setið uppi með að skulda enn þann hluta þeirra sem var
    umfram markaðsverðið og hefur glatað veðtryggingu í eigninni vegna
    nauðungarsölunnar. Sú staða ætti reyndar aldrei að koma upp því kröfuhafa
    væri í lófa lagið að fara fram á sölu eignar á markaði til að forðast þá
    stöðu. Auk þess sem þar væri um skrítið fasteignalán að ræða ef það hækkar
    sjálfkrafa umfram verðmæti veðsins sem það var lánað út af. Séu
    veðkröfurnar hins vegar undir markaðsvirði eignarinnar leiðir ákvæðið til
    þess að skuldari verður laus allra mála. Þetta gildir óháð tegund kröfu og
    á jafnt við um alla skuldara, hvort sem þeir eru lögaðilar eða
    einstaklingar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér má frummælandi málsins til með að skjóta því inn að séu
    kröfurnar undir markaðsverði ætti skuldarinn að sjálfsögðu að fá mismuninn
    á því sem hann skuldar og virði eignarinnar í sinn vasa. En svo er ekki og
    því miður er ekki tekið á því í þessu frumvarpi, það bíður betri tíma.
    Staðfestar frásagnir af eignum sem kröfuhafinn, oftast banki, keypti á
    nauðungarsölu langt undir markaðsvirði en seldi svo aftur skömmu síðar á
    markaðsverði eru fjölmargar. Til að bæta gráu ofan á svart hefur það í
    mörgum tilfellum ekki verið nóg fyrir bankana heldur hafa þeir líka elt
    uppi skuldarann fyrir það sem þeir segja að vanti upp á. Sómi og heiður
    þeirra er því miður ekki meiri en svo. Það er ekki skrýtið að bankarnir
    hafi hagnast frá hruni. Meginákvæði þessa frumvarps miðast við að alveg
    sama hvort eign skuldara stendur undir kröfunum eða ekki sé skuldari laus
    allra mála að uppboði loknu. Eins og áður hefur komið fram hlýtur það að
    heyra til algjörra undantekninga að eign skuldara standi ekki undir kröfum
    kröfuhafa þannig að sé um að ræða kröfur sem upphaflega stofnuðust vegna
    fasteignalána til neytenda myndi meginákvæði frumvarpsins leiða til þess
    að skuldari yrði þá engu síður laus allra mála. Frumvarpið nær eingöngu
    til krafna sem hafa stofnast á grundvelli fasteignalána til neytenda en
    ekki annarra tegunda krafna, enda er það ekki markmið þess. Verði
    frumvarpið að lögum gengur það því framar ákvæði 57. gr. nauðungarsölulaga
    þegar kröfur byggðar á samningi um fasteignalán til neytenda eiga í hlut.
    Ákvæðið heldur hins vegar gildi sínu gagnvart öðrum kröfum, til að mynda
    kröfum sem byggjast á samningi um fasteignalán til lögaðila. Í 5. grein
    frumvarpsins er lagt til að málsgrein bætist við 57. gr. nauðungarsölulaga
    þessu til skýringar. Til að stuðla að skilvirkari framkvæmd 38. greinar
    laga um fasteignalán til neytenda eru enn fremur lagðar til ákveðnar
    breytingar á lögum um nauðungarsölu til að tryggja betur að skilyrði
    þeirrar greinar séu uppfyllt í 2.–6. gr. frumvarpsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varnir neytenda á fjármálamarkaði eru litlar sem engar.
    Aðstöðumunur neytenda og banka er svo gríðarlega mikill að líkingin við
    Davíð og Golíat nær engan veginn að lýsa stöðunni eins og hún er. Það er
    staðreynd að eftirlit með bankastarfsemi er og hefur verið í molum og að
    þeir fara sínu fram hvað sem tautar og raular. Neytanda sem upplifir að
    brotið sé á sér stendur til boða að leita réttar síns fyrir dómstólum. Það
    er kallað jafnræðisgrundvöllur; einn launamaður, kannski á meðallaunum,
    við það að missa eða búinn að missa heimili sitt og með galtóma vasa gegn
    fjársterkum banka. Það getur aldrei orðið jafn leikur. Þetta kallar
    réttarríkið Ísland samt jafnræði. Þegar svo bætist við að dómarar við
    íslenska dómstóla virðast líta á neytendarétt sem eitthvað ofan á brauð,
    álegg sem þeir hafa hálfgert ógeð á, þá er ekki von á góðu. Neytandinn má
    sín lítils gegn þessu valdi. Af því hef ég persónulega og ljóta reynslu
    sem er því miður ekki einsdæmi. Það er því okkar, löggjafans, að sjá til
    þess að réttindi neytenda séu svo skýr í lögum að það sé aldrei á færi
    lögfræðinga eða dómara að snúa út úr þeim á nokkurn hátt. Þetta frumvarp
    er aðeins einn liður í þeirri vegferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er réttlætismál. Þegar kröfuhafi hefur fengið eignina sem er
    að veði fyrir láninu er hann augljóslega búinn að fá það sem honum ber og
    hefur öll ráð í hendi sér um hvernig hann ráðstafar þeirri eign.
    Gerðarþolinn, sem í mörgum tilfellum hefur misst heimili sitt, situr hins
    vegar eftir í mjög slæmri stöðu. Þetta frumvarp snýst um að gefa honum
    tækifæri til að koma fótum undir sig á ný og það gerist ekki ef hann er
    með lánastofnun sem þegar hefur svipt hann öllu á bakinu um mörg ókomin
    ár. Ég treysti á stuðning ykkar allra til að svo megi verða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú væri hugsanlegt að halda því fram að ekki sé nauðsynlegt að
    setja lög af þessu tagi en reynsla þúsunda frá bankahruninu 2008 sýnir
    samt, svo ekki verður um villst, að full þörf er á því. Fjölmörg mál þar
    sem verið var að elta fólk fram í rauðan dauðann eftir að búið var að
    selja eign þeirra á uppboði hafa komið inn á borð Hagsmunasamtaka
    heimilanna. Einnig má vitna í opinberar tölur um árangurslaus fjárnám frá
    hruni, máli þessu til stuðnings, en þau voru orðin 163.386 talsins árið
    2023. Þessum málum halda bankarnir nefnilega vakandi og þetta er fólk sem
    hefur svo sannarlega verið jaðarsett í íslensku samfélagi með grófum
    hætti. Það á engin fjárhagsleg réttindi, getur ekki fengið kreditkort,
    ekki skrifað undir leigusamning, ekki keypt sér þvottavél á afborgunum eða
    gert nokkuð af því í lífinu sem kostar einhvers konar, þótt það sé bara
    smávægileg fjárhagsleg skuldbinding.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einnig má benda á að þó að vanskil húsnæðislána séu lítil um
    þessar mundir er rétt að ætla að mörg heimili standi tæpt í því
    vaxtaumhverfi sem hefur nú þegar staðið of lengi. Auk þess eru í dag yfir
    75% skuldugra heimila með verðtryggð lán þó að það hlutfall hafi einungis
    verið um 30% fyrir örfáum árum. Þessi aukning verðtryggðra lána hefur
    orðið í verðbólgu sem eru verstu aðstæður til að taka verðtryggð lán í.
    Það er því miður vel hugsanlegt að vegna snjóboltaáhrifa geti höfuðstóll
    þeirra vaxið heimilum yfir höfuð áður en langt um líður og þá þarf að
    verja þau gegn því að missa meira en þau skulda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svo gerðarþolar eigi möguleika á að koma undir sig fótum á ný
    þurfum við að bæta réttindi þeirra og tryggja að ekki sé hægt að ganga að
    þeim vegna meintra eftirstöðva fasteignalána í kjölfar nauðungarsölu, þótt
    þær hafi fengist að fullu greiddar við nauðungarsölu fyrir löngu. Það ætti
    að vera sjálfsagt og ég treysti á stuðning þingheims í þessu
    réttlætismáli.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>