<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:33:09" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:35:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:33:09">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="39">
      <ns:málsheiti>hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í
      ríkisfjármálum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þegar talið berst að hinu bagalega
    efnahagsástandi sem nú ríkir hér á landi er það fyrsta og að jafnaði það
    eina sem hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar nefna að þetta sé nú allt
    saman einhverjum öðrum um að kenna. Þau benda yfirleitt á útgjöld síðustu
    ríkisstjórnar, sem voru reyndar mun minni en þau hefðu verið ef hlustað
    hefði verið á kröfur núverandi ríkisstjórnarflokka um enn meiri útgjöld á
    þeim tíma. Það vekur furðu að á sama tíma og núverandi ríkisstjórn fussar
    og sveiar yfir hallarekstri fyrri ríkisstjórnar í miðjum heimsfaraldri og
    náttúruhamförum ákveður hún að auka hallann í sinni stjórnartíð. Það hefði
    verið hægt að skila ríkissjóði réttum megin við núllið strax árið 2025 með
    styrkri efnahagsstjórn en ríkisstjórnin ákvað að bæta enn frekar á
    hallann. Áætlun ársins 2026 gerir svo ráð fyrir töluverðri framúrkeyrslu;
    það sem fyrst átti að verða 15 milljarða halli stefnir nú í 68 milljarða
    halla. Þá var ekkert Covid, þá voru engar náttúruhamfarir. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Því vil ég spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra: Hvers
    vegna var ekki strax hafist handa við aðhald í ríkisfjármálunum þannig að
    verðbólgan gæti haldið áfram að þokast nær markmiði og vextir haldið áfram
    að lækka? Hvers vegna lætur ríkisstjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu
    en klappar sér svo á bakið eins og enginn sé morgundagurinn þegar
    verðbólgan er aftur á uppleið og vextir hækka á ný?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>