<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T13:35:17" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:37:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:35:17">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="39">
      <ns:málsheiti>hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í
      ríkisfjármálum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir
    spurninguna. Nú er það svo að hér er nokkuð frjálslega farið með
    staðreyndir vegna þess að hv. þingmaður, sem var ráðherra í síðustu
    ríkisstjórn, veit að síðasta fjármálaáætlun þeirrar ríkisstjórnar gerði
    ráð fyrir hallarekstri fram til ársins 2028. Þessi ríkisstjórn hefur
    endurskoðað þær áætlanir og flýtt því að ná jafnvægi í útgjöldum ríkisins
    um eitt ár. Það er mjög áhugavert að hv. þingmaður geri framúrkeyrslu að
    umræðuefni í þessum ræðustól. Hv. þingmanni láðist hins vegar að taka fram
    að framúrkeyrsla á kostnaði ríkisins var mun meiri og hefur farið
    minnkandi. Hún nefnir einungis nettóniðurstöðuna, þ.e. halla að frádregnum
    ófyrirséðum tekjum. Ófyrirséðar tekjur eru hins vegar ekki eitthvað sem
    reikna má með að séu að jafnaði og tilfellið er að það er einmitt á tíma
    þessarar ríkisstjórnar sem tekist hefur verið á við t.d. framkvæmd
    fjárlaga þannig að framúrkeyrsla ríkisins er mun minni hjá þessari
    ríkisstjórn en hún var að jafnaði hjá síðustu ríkisstjórn. Það er mjög
    athyglisvert með eftiráskýringar eins og þessar að kvartað sé yfir
    framkvæmd sem var umfram áætlanir á kosningaári hjá síðustu ríkisstjórn og
    ætlast til þess að fólk taki slíka gagnrýni trúanlega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>