<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:37:14" skst="GHaf" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:38:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:37:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="39">
      <ns:málsheiti>hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í
      ríkisfjármálum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hér er, já, nokkuð frjálslega farið með
    staðreyndir og það gerir hæstv. fjármálaráðherra. Það er staðreynd að á
    kosningaárinu 2024 voru einmitt vextir farnir að lækka. Hann skautar
    frjálslega fram hjá þeirri staðreynd. En það er annað sem hlýtur að valda
    fjármálaráðherra verulegum áhyggjum þessa dagana. Í fjárlagafrumvarpinu er
    enn verið að auka álögur á ferðaþjónustuna, atvinnugrein sem skilar
    gríðarlegum verðmætum og skatttekjum í ríkissjóð. Á sama tíma vofir yfir
    ótímabundið verkfall flugvirkja hjá Icelandair frá og með næsta
    miðvikudegi. Samtök ferðaþjónustunnar segja áhrifin þegar farin að koma
    fram; fyrirtæki um allt land hafa fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um
    niðurfellingu og frestun ferða. Hér er undir ein stærsta útflutningsgrein
    þjóðarinnar, tekjur þúsunda fyrirtækja og þar með auðvitað tekjur
    ríkissjóðs sem stendur nú þegar tæpur. Því vil ég spyrja hæstv. fjármála-
    og efnahagsráðherra: Hvernig blasir þessi staða við ríkisstjórninni frá
    sjónarhóli ríkisfjármálanna? <ns:bjalla/> Hvaða sviðsmyndir hefur
    ráðuneytið dregið upp um áhrif verkfallsins á tekjur ríkissjóðs og afkomu
    næsta árs?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>