<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T13:38:45" skst="DMK" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:39:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:38:45">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="39">
      <ns:málsheiti>hallarekstur ríkissjóðs og aðhald í ríkisfjármálum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir síðari
    spurninguna. Það er vissulega rétt að verkfall flugvirkja mun hafa veruleg
    áhrif á ekki bara ferðaþjónustuna heldur fjölda atvinnugreina og einnig
    ferðafrelsi íslensku þjóðarinnar. Fylgjast þarf mjög nákvæmlega með
    hvernig því vindur fram. Aðilar eru enn þá við samningaborðið og það er
    þeirra að takast á við það verkefni að finna hljómgrunn og ná niðurstöðu.
    Ég bind enn þá vonir við að það takist. Það er hins vegar alveg rétt að
    þarna er um þjóðhagslega mikilvæga lífæð Íslands að ræða, ekki bara hvað
    varðar ferðaþjónustu heldur öll okkar tengsl við umheiminn sem og
    verulegan hluta af flutningum á t.d. ferskum fiski þannig að með þessari
    stöðu fylgist ríkisstjórnin nákvæmlega og grípur til þeirra aðgerða sem
    nauðsynlegar eru á hverjum tíma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>