<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T13:42:22" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:44:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:42:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="40">
      <ns:málsheiti>fjármögnun Fljótaganga</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina.
    Það er gert ráð fyrir því í 6. gr. frumvarps til fjárlaga fyrir næsta ár,
    í lið 5.8, „að auka við hlutafé innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. í því
    skyni að auka fjárfestingargetu félagsins til að standa undir fjármögnun
    og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja“, sbr. lög um innviðafélag,
    nr. 70/2026. Það stendur í greinargerðinni, á bls. 163, minnir mig, að
    þetta hlutafé geti verið í formi reiðufjár eða þá seljanlegra eigna. Það
    er þá komið eigið fé til að standa að framkvæmdum strax á næsta
    ári.</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0001.pdf-->

    <ns:mgr>Vaðlaheiðargöngin eru þegar komin inn í innviðafélagið sem
    tekjuberandi eign, þ.e. þegar fólk fer í gegnum Vaðlaheiðargöng þá borgar
    það og peningurinn rennur til innviðafélagsins. Við ætlum að setja
    Hornafjarðarfljót núna í haust inn í innviðafélagið líka og það er
    fyrirhugað að setja líka, það er reyndar síðar, 2028 eða fyrir þann tíma,
    Ölfusárbrú. Það eru tvær tekjuberandi eignir og svo eigið fé. Þá getur
    félagið tekið lán út á það eða farið að borga framkvæmdir á næsta ári. Við
    stefnum ótrauð að því að það verði byrjaðar framkvæmdir og innviðafélagið
    mun standa að útboði á Fljótagöngum, segjum í janúar, febrúar, mars. Þá
    verður það með heimildina og getur samið við verktakann um það þannig að
    við stefnum að því að það verði farið í framkvæmdir á haustmánuðum á næsta
    ári. Þetta er eigið fé.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>