<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:44:22" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:45:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:44:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="40">
      <ns:málsheiti>fjármögnun Fljótaganga</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið
    en verð bara að viðurkenna að ég er litlu nær. Ég veit ekki hvort það
    segir meira um mig eða flækjustigið vegna þess að við fórum mjög vel yfir
    þetta hér í umræðunni um innviðafélagið og þessi útfærsla hæstv. ráðherra
    núna er bara allt önnur en sú sem var rædd þar, bara allt önnur. Gott og
    vel, ef þetta er sú leið sem hæstv. innviðaráðherra ætlar að fara þá er
    það bara þannig. En ég sé ekki — vegna þess að ég veit að það hafa mjög
    margir lýst efasemdum sínum um lögmæti þess að gera þetta með þessum
    hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem mig langar að spyrja hins vegar um í restina, virðulegur
    forseti, af því að hæstv. ráðherra talar hér um Vaðlaheiðargöng,
    Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú, er: Hvað með Hvalfjarðargöng? Hvað hugsar
    hæstv. ráðherra sér að gera varðandi Hvalfjarðargöng? Á að setja þau inn í
    félagið og fara að rukka veggjöld af þeim?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>