<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T13:45:52" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:46:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:45:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="40">
      <ns:málsheiti>fjármögnun Fljótaganga</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður ætti að beina
    fyrirspurn sinni varðandi fjármögnun til hæstv. fjármálaráðherra. Þetta er
    gert með þessum hætti og félagið er sjálfstætt félag og ætti að geta sótt
    sér fé líka á markaði. Varðandi Hvalfjarðargöng þá fara þau inn í félagið,
    þ.e. Hvalfjarðargöng II og fjármögnun á þeim. Ég skrifaði undir
    viljayfirlýsingu við framkvæmdastjóra Ganga og brúar í síðustu viku um það
    að þessar framkvæmdir fari inn í innviðafélagið og þá verða
    Hvalfjarðargöng þar undir. <ns:frammíkall>… gömlu göngin?</ns:frammíkall>
    Það á eftir að koma í ljós hvernig það verður fjármagnað en sú
    vegaframkvæmd verður greidd með gjöldum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>