<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:46:52" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:48:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:46:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="41">
      <ns:málsheiti>hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að fá að beina fyrirspurn til hæstv.
    ráðherra varðandi fjölmiðlalög og fjölmiðlanefnd, nánar tiltekið þann þátt
    sem kemur að hlaðvörpum. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum upp á
    síðkastið þá virðast hlaðvarpsþættir hafa vakið mikinn áhuga hjá
    fjölmiðlanefnd sem hefur staðið í bréfaskriftum við ýmsa þáttastjórnendur
    og farið fram á að hlaðvörp verði skráð sem fjölmiðlar, sem við hljótum að
    geta verið sammála um að er í öllu falli umdeilanleg skoðun og varla í
    samræmi við tilgang laganna á sínum tíma. Þessu fylgir ýmislegt, það eru
    dagsektir boðaðar og sektarákvarðanir gagnvart þessum þáttum og þetta er
    svolítið þungt fyrir þau sem fyrir verða enda reksturinn í kringum þessa
    þáttagerð alla jafna ekki mikill að umfangi. Hlaðvörp eru, eins og flestir
    þingmenn þekkja vel, vinir eða vinkonur að tala um daginn og veginn, hvort
    sem það eru snyrtivörur, stjórnmál eða enski boltinn. Við getum ekki fellt
    þetta undir sama hatt og að reka fjölmiðil sem segir fréttir með
    skipulögðum hætti, með ritstjórnarstefnu o.s.frv. Það vekur líka upp
    ákveðnar spurningar um tilgang og forgangsröðun hins opinbera að heil
    ríkisstofnun sé að eltast við fólk úti í bæ fyrir það eitt að tala um
    daginn og veginn með það að markmiði að fá það til að skrá sig sem
    fjölmiðil. Þetta er auðvitað svolítið umhugsunarvert á tímum þar sem við
    erum öll að reyna að leggja áherslu á að ríkið sinni sínum kjarnaverkefnum
    og haldi þétt utan um budduna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra steig fram fyrr á þessu ári í fjölmiðlum og boðaði
    breytingar á lögunum að þessu leyti þannig að hlaðvörp yrðu undanskilin
    þessari skilgreiningu laganna. Og ég vil nú fá að nota tækifærið og hrósa
    hæstv. ráðherra fyrir það. Ef ég hef skilið rétt þá er málið komið á
    þingmálaskrá. Þrátt fyrir þetta berast nú fréttir af því að fjölmiðlanefnd
    sé að hóta því að leggja dagsektir á tiltekna þætti þar sem skráning hefur
    ekki farið fram. Því vil ég fá að spyrja ráðherrann: Hvenær er umrædd
    lagabreyting væntanleg? Telur hann eðlilegt að gengið sé jafn fast á eftir
    þessari skráningu og raun ber vitni þegar fyrir liggur að breytingin er
    yfirvofandi? Með öðrum orðum: Telur hæstv. ráðherra að unnt sé að veita
    einhvers konar svigrúm í ljósi aðstæðna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>