<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-21T13:49:12" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:51:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:49:12">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="41">
      <ns:málsheiti>hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Fyrst vil ég segja að það er ljóst að
    eftirlitsstjórnvaldi er falin eftirfylgni með lögum og ég sem ráðherra vil
    ekki, og það er ekki við hæfi, að ég sé að skipta mér af störfum
    eftirlitsstofnana. Það þurfa að vera armslengdarsjónarmið og þetta er mjög
    viðkvæmt, ekki síst þegar um er að ræða fjölmiðla. En þegar það er sagt þá
    átta ég mig á því að þetta er markaður í hraðri þróun og við þurfum
    auðvitað að hreyfa okkur hratt líka. Spurningin er: Hver er munurinn á
    hlaðvarpi og myndskeiði á Instagram t.d.? Svo ég svari nú einni af
    spurningunum þá eru Norðurlöndin ekki að eltast við skráningarskyldu
    hlaðvarpa og það eru auðvitað fleiri miðlunarleiðir innan lands, svo sem
    YouTube, sem er ekki verið að skrá sem fjölmiðil, þannig að þetta eru
    vangaveltur sem er alveg þess virði að skoða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Okkar fjölmiðlalög eru hins vegar víðtækari en víða annars staðar
    og eitt af því sem kemur til skoðunar er einmitt að endurskoða lögin
    þannig að þau taki mið af breyttum tíma og eftirliti með auglýsingum sem
    er allt of dreift eins og það er í dag. Það er vinna í gangi núna í
    nokkrum ráðuneytum, þar með talið mínu, um aukið samstarf og mögulega
    sameiningu eftirlitsstofnana sem undir þessi ráðuneyti fara, þannig að við
    getum vonandi sýnt á þau spil sem fyrst. Í tengslum við þetta hef ég
    einmitt boðað að núna sé góður tími til að staldra við og taka stöðuna á
    fjölmiðlalögunum í heild og hlaðvörp, skráning þeirra og mögulegt eftirlit
    verða einmitt meðal þess sem verður skoðað. Við erum núna að heyra í
    aðilum, bæði þeim sem halda úti hlaðvörpum og þeim sem eru hinum megin á
    endanum, og vonumst til þess að geta hraðað þessari vinnu af því að hún er
    skemmtileg. En ég held líka að umræðan um það í þingsal gæti orðið býsna
    fjörug og skemmtileg.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>