<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:51:21" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:52:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:51:21">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="41">
      <ns:málsheiti>hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir svarið og
    auðvitað skilja allir að það þarf að vera armslengdarsjónarmið í þessu og
    að ráðherra getur ekki handstýrt störfum nefndarinnar. En ég held að við
    hljótum öll að skilja að ráðherra fer líka með dagskrárvald málaflokksins
    og ég vildi bara fá að hvetja hann svolítið til að flýta þessari vinnu því
    að það er svolítið sérstakt að það sé verið að herja jafn hratt og hart og
    raun ber vitni á þennan skemmtilega vaxtarbrodd sem ég held að við getum
    öll verið sammála um að hafi verið skemmtileg gróska í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil líka halda því til haga hvernig við forgangsröðum því að ég
    heyri ekki betur en að starfsfólk nefndarinnar sé að eyða tíma í að hlusta
    á viðkomandi hlaðvarpsþætti til þess að reyna að greina þá og greina
    efnistök þeirra. Ég held að við hljótum að geta verið sammála um að það er
    eitthvað betra hægt að gera. Ég vil því fá að hvetja ráðherrann til dáða í
    þessu og til að vinna hratt að þessu leyti. Ég minni á að það eru ýmsar
    sektarákvarðanir o.fl. sem hafa komið fram og það er auðvitað miður að
    fólk sem er að færa okkur jafn skemmtilegt og gott efni sitji undir
    því.</ns:mgr>

    <ns:mgr/>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>