<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennrh." frhr="0" id="r2026-09-21T13:52:34" skst="LE" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!--                                    2026-09-21 13:53:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:52:34">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="41">
      <ns:málsheiti>hlaðvörp og breyting á lögum um fjölmiðla</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Já, það er þetta með dagskrárvaldið og
    áhrifavaldið og hvað það nú heitir en á endanum erum við með lög. Ég tek
    undir með hv. þingmanni að hlaðvörpin eru sérstaklega góð nýjung. Þar
    gefst fólki oft tækifæri til að tjá sig í lengra máli og færa rök fyrir
    sínum skoðunum án þess að tíminn sé af skornum skammti. Þetta er
    sannarlega góð viðbót og sannarlega geta hlaðvörp verið fjölmiðill þótt
    þau séu það e.t.v. ekki alltaf. En ég hef verið að skoða í mínu ráðuneyti
    hvort og þá hvaða reglugerðarheimildir eru til staðar í fjölmiðlalögunum
    til að skýra betur þessi atriði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil að endingu segja að mér hefur alveg fundist mikilvægt að
    við höldum í heiðri hið almenna sjónarmið um að eftirlit sé ekki of
    íþyngjandi og megi ekki verða til þess að kæfa vaxtarbrodda í fæðingu.
    Þannig að ég mun horfa til þess líka þegar ég skoða þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>