<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:53:59" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 13:56:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:53:59">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="42">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka í lagareldi</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar mest til þess að halda áfram umræðu um
    hlaðvörpin og fjölmiðlanefndina óþörfu en ég ætla að halda aftur af mér.
    Mig langar til að eiga orðastað við hæstv. atvinnuvegaráðherra er varðar
    auðlindanýtingu og þá sérstaklega ætla ég að byrja á lagareldinu. Frumvarp
    hæstv. ráðherra var rætt hér í rúma þrjá klukkutíma á þinginu í fyrra við
    1. umræðu, engin umræða var við 2. umræðu og takmörkuð efnisleg umræða í
    hv. atvinnuveganefnd. Málið var lagt fram um miðjan mars og þótti mörgum
    sérstakt að svona umfangsmikið mál, heil bók, heildarlöggjöf um margþætt
    eldi, kæmi fram svo seint innan ársins. Nú háttar svo til að hæstv.
    ráðherra hefur upplýst, og það kom svo sem í ljós við framlagningu
    þingmálaskrár þessa þings, að hæstv. ráðherra hefði ekki uppi áform um að
    leggja fram frumvarp um lagareldi í heild sinni aftur og þá er kannski
    sérstaklega verið að horfa til sjókvíaeldisins í þessum vangaveltum mínum.
    Nú hefur eldið uppsafnað tapað gríðarlegum upphæðum á undanförnum árum,
    gríðarlega mikil fjárfesting sem þarna er undir og er nauðsynleg áfram til
    þess að sá árangur náist sem ríkisstjórnin flaggar í atvinnustefnu sinni
    og stjórnarsáttmálanum raunar, með tilliti til mikilvægis
    eldisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra, í ljósi þess að
    ráðherrann fór ekki í neinar grafgötur með að það væri mikilvægt að
    endurskoða gjaldtöku hluta eldisins með tilliti til rekstrarforsendna
    þeirra fyrirtækja sem þessa starfsemi stunda. Spurningin er einföld í
    ljósi þess að hæstv. ráðherra hefur nú tilkynnt að málið verði ekki lagt
    fram á þessu þingi: Telur hæstv. ráðherra að greinin ráði við að vera
    undirorpin þeirri skattlagningu sem núverandi löggjöf skammtar henni? Ég
    minni á tapið og fjárfestingarþörfina en telur hæstv. ráðherra að laxeldið
    í sjókvíum, lagareldið í sjó, ráði við óbreytta löggjöf hvað gjaldheimtu
    varðar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>