<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T13:58:49" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:00:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T13:58:49">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="42">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka í lagareldi</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Einhver hefði nú
    vafalaust tekið til sín þau skilaboð að það væri býsna margt í frumvarpinu
    eins og það lá fyrir á síðasta þingi sem væri athugavert og alvarlegt
    fyrir þá sem stunda þennan rekstur í ljósi þess að mál þróuðust með þeim
    hætti sem þau gerðu. En ég minni á að heildarumræða hér í þingsal, af því
    að hæstv. ráðherra segir að þetta hafi tekið mikið súrefni frá ráðuneytinu
    og Alþingi, var rúmar þrjár klukkustundir. Það tekur ekki mikið súrefni
    frá Alþingi. En mig langar til þess, í ljósi þess að nú hefur hæstv.
    ráðherra ákveðið að taka hafeldið út fyrir þann ramma sem lagður var fram
    í fyrra. Mér heyrist vera kallað eftir því að landeldið fái sambærilega
    meðferð. Sér hæstv. ráðherra fyrir sér að mögulega skipta upp þeim hluta
    er varðar sjókvíaeldið þannig að gjaldtakan, skattheimtan, verði hanteruð
    sérstaklega og síðan allt hitt mjög svo flókna, sannarlega flókna,
    <ns:bjalla/> regluverk skoðað þannig að við í þinginu, þingnefnd,
    ráðherra, ráðuneyti, hagaðilar, eldisfyrirtæki, sveitarfélög og aðrir hafi
    tíma til að glöggva sig á því, því ég bara minni á tímalínuna: Málið kom
    fram hér um miðjan mars <ns:bjalla/> á síðasta þingi. Það virtust engin
    raunveruleg áform hafa verið uppi um að þetta mál yrði klárað á síðasta
    þingi miðað við framlagningardag málsins. En er hæstv. ráðherra tilbúinn
    til að skoða það að skipta upp skattalega hlutanum og síðan hinum
    tæknilega?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti minnir hv. þingmenn á að gæta að
    ræðutímanum.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>