<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:00:35" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:01:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:00:35">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="42">
      <ns:málsheiti>gjaldtaka í lagareldi</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það má til sanns vegar færa að sú sem hér stendur
    beri nú ábyrgð á ýmsu en hún getur ekki borið ábyrgð á því ef þingmenn
    taka ekki til máls í þeim málum sem hún leggur hér fyrir þingið
    <ns:frammíkall/> og þriggja klukkutíma umræða er ekki á ábyrgð ráðherra,
    svo það sé sagt. Hafeldið, eins og hv. þingmaður kemur inn á, er tekið út
    vegna þess að þar er um að ræða nýjung. Það er ekki að finna neitt um
    hafið í núgildandi lögum. Þetta er mikilvægt nýsköpunarmál fyrir okkur
    Íslendinga og ég tel mjög mikilvægt að það komi lagarammi um þetta
    skemmtilega tækifæri og að við sitjum ekki eftir vegna þess að
    nágrannalönd okkar, sem við erum alla jafna í samkeppni við þegar kemur að
    lagareldi, eru farin að hreyfa sig hratt í þessum málum og við þurfum
    lagaramma um þetta mál.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað varðar spurningu hv. þingmanns um það hvort ég sé til í að
    taka einhvern hluta — hann nefnir sérstaklega skattalækkun — út úr
    frumvarpinu, þá er svarið nei. Hugmyndin er að til þess að tryggja vöxt
    þessarar atvinnugreinar í sátt við umhverfið og í sátt við fyrirtækin,
    sátt við samfélagið, þurfi heildarramma. Um leið og við förum að tína út
    úr þá er sú hugmynd farin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>