<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:02:00" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:04:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:02:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="43">
      <ns:málsheiti>skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að eiga orðastað við hæstv.
    atvinnuvegaráðherra er kemur að starfsskilyrðum dýralækna. Það er engin ný
    saga hvað það varðar að það hefur verið skortur á dýralæknum vítt og
    breitt um landið. Það einskorðast ekki bara við hinar dreifðu byggðir,
    þetta á sömuleiðis við um höfuðborgarsvæðið þegar kemur að hinni
    svokölluðu stórdýravakt. Í sumar sérstaklega held ég að steininn hafi
    tekið alveg úr hvað það varðar. Á þetta hefur verið bent undanfarið og
    sömuleiðis hafa dýralæknar og forystumenn dýralækna bent á að
    heildurendurskoðun á starfsskilyrðum dýralækna sé mjög mikilvæg. Það er
    ábyrgðarhluti að halda dýr. Það eru sömuleiðis miklar byrðar lagðar á
    dýralækna í hinum dreifðu byggðum. Við skulum segja að þeir séu kannski
    með einn fjórða af landinu undir þegar kemur að því að þjónusta dýr. Við
    þekkjum það sömuleiðis að t.d. á Austurlandi hefur verið starfandi
    dýralæknir á Suðurfjörðum, sem ætlaði að vísu að vera löngu hættur vegna
    aldurs en hefur ekki getað hætt, og sá dýralæknir hefur verið að þjónusta
    frá Egilsstöðum og alveg niður á Höfn í Hornafirði. Svona getum við talið
    áfram, þetta á við sömuleiðis um Vestfirði og fleiri svæði. Því beini ég
    spurningu, frú forseti, til hæstv. atvinnuvegaráðherra: Er
    heildarendurskoðun á vaktkerfi og starfsskilyrðum dýralækna til skoðunar í
    hennar ráðuneyti eða undirstofnunum ráðherra, þ.e. Matvælastofnun, sem
    heitir væntanlega núna Stofnun atvinnuveganna? <ns:bjalla/> Þetta er
    gríðarlega mikilvægt atriði upp á það að ná því fram sem við viljum þegar
    kemur að velferð dýra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>