<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:04:24" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:05:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:04:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="43">
      <ns:málsheiti>skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurn um mikilvægt
    málefni. Við erum meðvituð um þessa stöðu. Við höfum fundað með
    Dýralæknafélagi Íslands og það hefur haldið okkur upplýstum um þennan
    alvarleika. Ég tek undir með hv. þingmanni, þetta er auðvitað gríðarlega
    mikilvægt mál hvað varðar dýravelferðina, dýraheilbrigðið og ekki síður
    hvað varðar starfsskilyrði bænda eins og hv. þingmaður þekkir. Það er í
    raun og veru, svo hægt sé að súmmera þetta upp, illa búið við þetta áfram.
    En þetta er staðan.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við erum að skoða núna, af því að við erum að fara í
    heildarendurskoðun á löggjöf um dýralækna, uppfærslu á henni sem varðar
    ýmsa þætti. Þar á meðal erum við að skoða þetta og síðan auðvitað það sem
    hv. þingmaður nefnir sem er vaktafyrirkomulagið. Lausnin liggur ekkert
    endilega í loftinu. Þetta er flókið mál. Þetta snýst líka um fjölda þeirra
    sem mennta sig í þessu, að fá þá til starfa víðs vegar um land eins og
    þörf er á. Við erum að skipa starfshóp um endurskoðun á lögunum og
    hlutverk þessa starfshóps sem verður settur á laggirnar núna á næstu vikum
    er einmitt að fara ofan í þær breytingar sem þarf að gera á þessu öllu,
    hvort sem þær munu ná í gegn með breytingum á lögum um dýralækna,
    vaktafyrirkomulagi eða á annan slíkan hátt. Við erum meðvituð um þetta og
    ég vænti þess að það verði gott samstarf við þá sem best þekkja til þegar
    kemur að því. Við deilum öll áhyggjum, deilum öll þeirri sýn að þetta
    þurfi að laga.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>