<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:05:58" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:07:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:05:58">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="43">
      <ns:málsheiti>skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra kærlega fyrir
    gott svar. Ég vona að ráðherra hraði þeirri vinnu sem fram undan er og
    virðist eitthvað vera komin af stað. Þetta er svo sem ekki í fyrsta
    skipti, burt séð frá því hverjir eru í ríkisstjórn og hverjir stýra þessu
    ráðuneyti, að verið sé að skoða hlutina eða velta því fyrir sér hvað hægt
    sé að gera. En ég held að lausnin felist fyrst og fremst í því að horft
    verði til þess að tryggja góð starfsskilyrði fyrir dýralækna sem eru t.d.
    á svæðum þar sem lítið er um þjónustu, t.d. við gæludýr og annað, að þeir
    hafi þá aðgang að bakvakt, afleysingu, en fyrst og fremst þurfa þeir að
    hafa einhver ákveðin laun. Það er lykilatriði. Við vitum líka varðandi þá
    dýralækna sem eru á þeim svæðum þar sem ekki er um þetta að ræða, þ.e. fá
    dýr og annað, þá verða menn að hafa uppbót frá ríkinu til að hafa í sig og
    á.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>