<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:07:28" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:08:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:07:28">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="ft" nr="43">
      <ns:málsheiti>skortur á dýralæknum og starfsskilyrði þeirra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Aftur tek ég undir með hv. þingmanni og þetta eru
    auðvitað málin sem við erum að skoða. Í einhverju stærra samhengi má bera
    þetta saman við þær áskoranir sem við búum við þegar kemur að
    heilbrigðisþjónustu við fólk á landsbyggðinni í hinum dreifðari byggðum.
    Ekki eingöngu eru það launin, sem auðvitað skipta máli; það eru líka
    starfsskilyrðin, þetta vaktafyrirkomulag og þessar eilífu bakvaktir. Menn
    og dýr eiga það til að veikjast og þurfa læknisþjónustu hvenær sem er
    sólarhringsins, hvaða dag ársins sem er. Þessu þarf bara að mæta á sama
    tíma og við finnum þessa tilhneigingu fólks til að staldra aðeins við og
    vera ekki tilbúin í þessa miklu viðveru. Við sem hér stöndum,
    framkvæmdarvaldið í dag en ekki síður löggjafinn, þurfum einhvern veginn
    að finna leiðir til að svara þessum áskorunum ef við ætlum að tryggja það
    sem við erum öll sammála um að við viljum gera, að tryggja hér byggð í
    landinu. Þá þarf að leysa þetta og ég treysti bara á áframhaldandi gott
    samstarf um þetta mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>