<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:08:51" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:23:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:08:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á
    lögum um útlendinga, nánar tiltekið nr. 80/2016, um tímabundna vernd vegna
    fjöldaflótta o.fl. Ég er að mæla fyrir þessu frumvarpi öðru sinni en það
    er nú komið fyrir þing aftur. Það náði ekki fram að ganga á síðasta þingi
    og er lagt fram með nokkrum smávægilegum breytingum með tilliti til
    þeirrar þróunar sem hefur orðið á regluverki Evrópusambandsins frá fyrri
    framlagningu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins um forsöguna, virðulegi forseti. Það var í mars 2022 sem
    íslensk stjórnvöld beittu, samhliða aðildarríkjum Evrópusambandsins og
    öðrum Evrópuríkjum, heimild í 44. gr. útlendingalaga um tímabundna vernd
    vegna fjöldaflótta í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Frá þessum tíma
    hefur þetta ákvæði verið framlengt og síðast var það gert til og með 2.
    mars 2027. Til að ramma það inn um hvað málið snýst þá er það svo að þeir
    einstaklingar sem falla undir þetta ákvæði fá dvalarleyfi samkvæmt lögum
    um útlendinga á grundvelli þessarar tímabundnu verndar. Tilgangur þessa
    ákvæðis og þessa úrræðis er annars konar en þegar við erum að horfa til
    þess að einstaklingar sæki um alþjóðlega vernd því að það er gert á
    einstaklingsgrundvelli. Tímabundinni vernd vegna fjöldaflótta er ætlað að
    virka með þeim hætti að stjórnvöld, eins og stjórnvöld á Íslandi, geti
    brugðist hratt við þegar neyðarástand skapast þar sem stór hópur fólks er
    að flýja afmarkað svæði og þarfnast verndar. Úkraínustríðið sem slíkt er
    auðvitað dæmi um það. Þetta úrræði og þetta ákvæði er undantekning frá
    þeirri meginreglu að umsókn um alþjóðlega vernd sé afgreidd á
    einstaklingsgrundvelli. Frá upphafi hefur íslensk framkvæmd tekið mið af
    þróun mála innan Evrópusambandsins. Með öðrum orðum: Evrópa hefur gengið í
    takti hvað varðar stuðning við Úkraínubúa í kjölfar stríðsins og íslensk
    framkvæmd hefur, og það leiðir auðvitað af sjálfu sér, tekið mið af
    framkvæmd í okkar nágrannaríkjum. Ísland er ekki bundið af tilskipun
    Evrópusambandsins um tímabundna vernd. Ísland er heldur ekki bundið af
    svokölluðum framkvæmdarákvörðunum sem eru teknar á grundvelli hennar en
    engu að síður er talið mikilvægt, og ég er þeirrar skoðunar, að Ísland
    taki í sínu gangvirki mið af þeirri samevrópsku nálgun sem mótast hefur á
    þessu sviði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Hinn 30. júlí síðastliðinn samþykkti ráð
    Evrópusambandsins svokallaða framkvæmdarákvörðun um að framlengja
    tímabundna vernd vegna fjöldaflótta frá Úkraínu um eitt ár til viðbótar,
    eða til mars 2028. Með þessari ákvörðun voru jafnframt gerðar breytingar á
    skilyrðum þessarar tímabundnu verndar að því er varðar hernaðarskyldur í
    Úkraínu. Í kjölfar ákvörðunarinnar voru leiðbeiningar um meðferð nýrra
    umsókna, skv. 44. gr. laga um útlendinga, uppfærðar. Leiðbeiningar voru
    uppfærðar þannig að íslensk framkvæmd taki áfram mið af því sem er að
    gerast í öðrum Evrópuríkjum og innan Evrópusambandsins. Þessi þróun hefur
    kallað á lítils háttar breytingar á því frumvarpi sem nú er endurflutt.
    Samkvæmt gildandi lögum er heimilt að endurnýja eða framlengja dvalarleyfi
    á grundvelli tímabundinnar verndar í allt að fimm ár og eftir 2. mars 2027
    verður þess vegna ekki lengur heimilt samkvæmt lögum að framlengja þetta
    tímabundna úrræði. Það er því nauðsynlegt að íslensk stjórnvöld hafi
    svigrúm til að framfylgja og fylgja þeim tímamörkum sem nú hafa verið
    ákveðin innan ESB og þess vegna er verið að leggja til að við bætum ári
    við þennan glugga, þ.e. að hámarkstími tímabundinnar verndar verði lengdur
    úr fimm árum upp í sex. Sama breyting er gerð á þeim tíma sem heimilt er
    að leggja umsókn um alþjóðlega vernd til hliðar. Með þessu verður hægt,
    þ.e. verði frumvarpið samþykkt, að framlengja þetta úrræði, hina
    tímabundnu vernd, fram til mars 2028. Mér finnst mikilvægt að undirstrika
    að þessi breyting felur ekki ein og sér í sér ákvörðun um að tímabundin
    vernd verði veitt til ársins 2028 en tryggir að lögin sjálf standi ekki í
    vegi fyrir því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Annað meginefni þessa frumvarps, ég er búin að fjalla um
    hið fyrra, um að framlengja þessa tímabundnu heimild um eitt ár, lýtur að
    því hvað gerist þegar þessari vernd lýkur. Samkvæmt gildandi lögum er
    sérstök heimild til að veita einstaklingi og einstaklingum dvalarleyfi á
    grundvelli mannúðarsjónarmiða að lokinni tímabundnu verndinni. Slíkt leyfi
    getur einu ári síðar, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, orðið grundvöllur
    ótímabundins dvalarleyfis. Í frumvarpinu er verið að leggja til að þessi
    sérstaka tenging tímabundinnar verndar við mannúðarleyfi falli brott.
    Ástæðan er sú að tímabundin vernd vegna fjöldaflótta er í eðli sínu
    tímabundið úrræði, tímabundið neyðarúrræði, og ekki þykir rétt að lögin
    ákveði þá fyrir fram hvaða réttarstaða taki við þegar þeim kafla lýkur. Sú
    ákvörðun þarf að taka mið af því hverjar aðstæður verða í Úkraínu, hver
    staða þeirra er sem njóta verndarinnar og af þeirri stefnu sem mótast í
    öðrum Evrópuríkjum. Þetta þýðir hins vegar ekki að þau sem hafa komið
    hingað frá Úkraínu og hafa fest rætur eigi ekki kost á áframhaldandi dvöl.
    Því fer víðs fjarri og það er mikilvægt að þetta komi skýrt fram.
    Einstaklingar sem hafa verið hér á þessum grundvelli, komu hér í kjölfar
    stríðsins og vegna stríðsins og fengu heimild til dvalar hér með þessari
    tímabundnu vernd geta áfram sótt um dvalarleyfi á öðrum grundvelli
    samkvæmt útlendingalögum. Það getur þá verið á þeim grundvelli að
    viðkomandi sé hér við vinnu, á grundvelli atvinnu. Það getur verið á
    grundvelli þess að viðkomandi sé hér við nám. Það getur verið á grundvelli
    sérstakra tengsla við landið. Ég vil leyfa mér að segja að þegar fólk
    hefur verið hér á landinu um árabil, starfað og aðlagast samfélaginu,
    tekið þátt í okkar samfélagi, horfi ég þannig á að sá grundvöllur að hér
    hafi myndast sérstök tengsl geti mjög líklega átt við. Slíkar umsóknir
    munu þá á einstaklingsgrundvelli fá sjálfstæða meðferð. Þeir sem uppfylla
    skilyrði fá þá leyfi undir mismunandi formerkjum eftir því hverjar
    forsendurnar að baki eru. Mér finnst þetta vera stórt og veigamikið
    atriði. Við erum þá að horfa til þess að eftir að tímabundnu verndinni
    lýkur þá kikkar inn hin hefðbundna leið, að menn sæki um dvalarleyfi á
    mismunandi forsendum eftir því sem við á í þeirra lífi og ég geri fastlega
    ráð fyrir því að það eigi við um langsamlega stærstan hóp þessa fólks ef
    ekki öll.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í frumvarpinu eru jafnframt lagðar til tvær
    nýjar málsgreinar við þetta ákvæði í 44. gr. Annars vegar er áréttað í
    lögunum að dvalarleyfi sem veitt er á grundvelli tímabundinnar verndar
    vegna fjöldaflótta geti sem slíkt ekki orðið grundvöllur ótímabundins
    dvalarleyfis. Hér er ekki verið að breyta réttarstöðu sem þegar er lögð
    til grundvallar heldur er verið að taka af allan vafa um að þetta er í
    eðli sínu tímabundið úrræði. Eins og ég segi: Sá sem vill öðlast
    ótímabundið dvalarleyfi hér á landi þarf því að öðlast dvalarleyfi á öðrum
    grundvelli sem getur þá samkvæmt öðrum forsendum leitt til sömu
    niðurstöðu, þ.e. ótímabundins dvalarleyfis. Hins vegar er lagt til að
    ráðherra setji í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd á þessari 44. gr.,
    um gildissvið hennar og undanþágur. Með hliðsjón af eðli og þýðingu þeirra
    atriða sem hér um ræðir er heppilegra að nánari reglur um framkvæmd
    ákvæðisins séu settar með reglugerð frekar en að framkvæmdin sé útfærð með
    sérstökum leiðbeiningum ráðherra. Þannig verður umgjörðin skýrari,
    aðgengilegri og fyrirsjáanlegri, sem er sjálfstæður þáttur að mínu viti og
    sjálfstæður þáttur til að eyða óvissu hjá því fólki sem hér um ræðir. Þá
    eru gerðar orðalagsbreytingar á 44. gr. þannig að framvegis verði talað um
    tímabundna vernd í stað sameiginlegrar verndar. Með þessu er hugtakanotkun
    í okkar lögum færð nær þeirri notkun hugtaka sem við sjáum í öðrum
    Evrópuríkjum. Þetta er ekki breyting sem hefur áhrif á réttarstöðu þeirra
    sem njóta verndar samkvæmt ákvæðinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Afstaða íslenskra stjórnvalda til Úkraínu hefur
    verið skýr frá fyrsta degi hins skelfilega innrásarstríðs Rússa og afstaða
    íslenskra stjórnvalda er að öllu leyti óbreytt hvað það varðar. Frumvarp
    þetta speglar að mínu viti áframhaldandi stuðning Íslands við þann hóp sem
    hingað hefur komið til dvalar frá Úkraínu. Íslensk stjórnvöld hafa frá
    upphafi staðið með Úkraínu og tekið á móti stórum hópi fólks sem hefur
    þurft að flýja sitt land vegna innrásarstríðsins. Sá stuðningur okkar er
    óhaggaður. Sú nálgun sem frumvarpið byggist á er jafnframt í samræmi við
    framkvæmd annarra Schengen-ríkja og í samræmi við sjónarmið úkraínskra
    stjórnvalda. Sendiherra Úkraínu í Osló hefur sérstaklega óskað eftir því á
    fundum hér á landi að íslensk stjórnvöld undanskilji einstaklinga sem hafa
    fengið vernd annars staðar og sem ekki hafa heimild samkvæmt úkraínsku
    regluverki til að yfirgefa landið. Frumvarpið snýst sem sagt um að tryggja
    að lagaumgjörð tímabundinnar verndar endurspegli eðli úrræðisins og þá
    þróun sem hefur orðið frá því að verndinni var fyrst komið á fyrir fjórum
    árum. Tímabundin vernd þarf að geta staðið á meðan hennar er þörf. Um leið
    þarf lagaumgjörðin að vera þannig úr garði gerð að hægt sé að taka næstu
    skref þegar aðstæður leyfa í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar
    Íslands og að teknu tilliti til aðstæðna hvers og eins einstaklings. Svo
    að það sé sagt þá breytir frumvarpið að sjálfsögðu engu um alþjóðlegar
    skuldbindingar Íslands eða nálgun okkar þar um, þar á meðal reglunni um
    bann við endursendingu, svokallaðri non-refoulement reglu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Að síðustu snýr frumvarpið að flóttamannanefnd
    og það er kannski eini þáttur þessa máls sem varðar ekki Úkraínu
    beinlínis. Ríkisstjórn Íslands ákvað í marsmánuði 2025 að málefni sem
    varða hlutverk og verkefni flóttamannanefndarinnar myndu flytjast frá
    félagsmálaráðuneyti til dómsmálaráðuneytis. Í samræmi við það eru gerðar
    nauðsynlegar breytingar á þessu frumvarpi, á 9. gr. laga um útlendinga,
    þannig að ábyrgð á nefndinni verði hjá þeim ráðherra sem fer með
    útlendingamál. Við gildistöku laganna mun skipan núverandi nefndarmanna
    því falla úr gildi og ný nefnd verða skipuð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Að lokum þetta: Með frumvarpinu er í öllum meginatriðum
    lagt til að lögin verði einfaldlega uppfærð til samræmis við þá þróun sem
    hefur orðið frá því að tímabundinni vernd vegna fjöldaflótta var komið á.
    Það var árið 2022. Hér er lagt til að lögbundinn hámarkstími þessarar
    verndar verði lengdur um ár, úr fimm árum í sex, þannig að við höfum
    svigrúm til að fylgja sameiginlegri evrópskri tímalínu og nálgun og að
    tímabundið eðli úrræðisins verði skýrt og nánari framkvæmd þess fái
    skýrari og fyrirsjáanlegri umgjörð. Ég hef að þessu sögðu farið yfir
    helstu efnisatriði frumvarpsins en vísa að öðru leyti til greinargerðar
    frumvarpsins og athugasemda við einstök ákvæði þess. Ég legg til að
    frumvarpinu verði, að lokinni þessari umræðu hér í dag, vísað til hv.
    allsherjar- og menntamálanefndar og til 2. umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>