<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:23:31" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:24:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:23:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmálaráðherra
    fyrir framsögu sína í þessu máli. Það er mjög mikilvægt að lagaumgjörð um
    þennan viðkvæma og mikilvæga málaflokk sé sambærileg því sem gerist á
    Norðurlöndunum og innan Schengen-samstarfsins. Ég hef áhuga á því að ræða
    við hv. þingmann örlítið um flóttamannanefndina og breytingar á 9. gr.
    laganna því að það vakti athygli mína að ríkisstjórnin hafi á síðasta ári
    tekið ákvörðun um að dómsmálaráðuneytið færi hér eftir með
    flóttamannanefndina, en það er auðvitað lögbundið að það er sá ráðherra
    sem fer með félagsmál sem gegnir því hlutverki. Hér er sem sagt verið með,
    mætti skilja, afturvirkum hætti að breyta lögunum í samræmi við þennan
    vilja ríkisstjórnarinnar og ég hef áhuga á að fá skýringar ráðherrans á
    þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>