<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:24:43" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:25:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:24:43">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Eins og hv. þingmaður veit breytist auðvitað
    ekkert fyrr en Alþingi hefur samþykkt það og þess vegna er þetta frumvarp
    hér lagt fram um þessa breyttu skipan. Rökin, og það var kannski ónákvæmt
    orðalag hjá mér, voru hins vegar þau að í stefnuyfirlýsingu og við mótun
    þessarar ríkisstjórnar var um það rætt að reyna að hafa, og þá í nafni
    einföldunar, sem fæsta málaflokka dreifða á víð og dreif í Stjórnarráðinu.
    Það hefur verið farið í það að færa ákveðna málaflokka sem tengjast
    útlendingamálum úr félagsmálaráðuneytinu og yfir í dómsmálaráðuneytið og
    þetta er einfaldlega einn angi þess. En ekkert breytist auðvitað fyrr en
    þetta frumvarp hefur verið samþykkt og að uppfylltu því skilyrði að
    Alþingi taki þátt í því að breyta þessu. En þetta eru forsendurnar að baki
    frumvarpinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>