<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:25:52" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:26:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:25:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en ég nefni þetta af
    ástæðu. Í síðustu viku birtist viðtal við sveitarstjóra Borgarbyggðar þar
    sem greint var frá erindi sveitarfélagsins til einmitt ráðherra félagsmála
    um þá stöðu sem upp er komin í sveitarfélaginu vegna fjölda úkraínskra
    flóttamanna sem eru komnir þar á sveitarstyrk í litlu samfélagi. Byrðarnar
    hlutfallslega eru orðnar mjög þungar og menn tala um 150–200 millj. kr. á
    ári. Ég nefni þetta allt af ástæðu, vegna þess að það er akkúrat
    flóttamannanefndin sem á að fara með heildarskipulag þegar kemur að
    móttöku flóttamannahóps. Það er kannski rétt að fá upplýsingar frá
    ráðherra hvað þetta varðar og þá eftir atvikum líka hvort erindi
    sveitarstjórnanna sé á röngum stað, sveitarstjórnin virðist hafa litið til
    laganna um að það sé ráðherra félagsmála sem eigi að fara með þennan
    málaflokk, en hvort það sé sem sagt ráðherra eða dómsmálaráðuneytið
    sjálft.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>