<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:27:03" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:28:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:27:03">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Aftur verð ég að árétta við þingmanninn að til
    að þessi breyting geti gengið í gegn þarf Alþingi að breyta lögum. Það er
    alveg skýrt um þetta frumvarp eins og öll önnur. Það er auðvitað þannig
    með greiðslu bóta að þær eiga að meginstefnu að fara í gegnum
    félagsmálaráðuneytið og að einhverju marki í gegnum heilbrigðisráðuneytið
    og ég benti á þetta hér í þingsal um daginn þegar ég var til svara um
    þessa þætti. Síðan tvinnast málin auðvitað saman, eins og það hvort menn
    sjái það sem lið í útlendingamálum hvernig þessar byrðar skiptast milli
    sveitarfélaga. Maður sér þá mynd nefnilega teiknast upp býsna skýrt að
    fyrir lítil og fámenn sveitarfélög skiptir engu máli hvort við erum að
    ræða málefni fatlaðra barna eða atvinnuþátttöku og þessi mál sem
    þingmaðurinn er að vísa til hafa auðvitað meiri áhrif á fámennari
    sveitarfélög. En öll erindi sem varða félagsmálaráðuneytið fara áfram til
    félagsmálaráðuneytisins þar til málefni flóttamannanefndar hafa flust
    annað með lögum frá Alþingi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>