<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:28:28" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:29:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:28:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að leggja fram
    frumvarpið og útskýra það hérna fyrir okkur og vil auðvitað bara taka fram
    að mér þykir mjög mikilvægt að við sýnum áfram stuðning í verki við
    Úkraínu og það fólk sem á um sárt að binda vegna stríðsins. Þó að það sé
    ekki mikill tími hér til að fara út í stóru drættina þá er það kannski í
    samræmi við það hvernig þetta flóttamannakerfi okkar ætti að virka, þ.e.
    við förum og mætum þeim sem eru í neyð en ættum að draga úr því að vera
    hér að reka þetta stóra umfangsmikla kerfi sem tekur á móti hverjum sem
    hingað vill koma og sækja um hæli.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði aðeins að forvitnast hjá hæstv. ráðherra, af því að
    eins og hefur komið fram þá eru hingað búnir að streyma Úkraínumenn frá
    væntanlega árinu 2022 í kringum þetta mál. Þetta er orðið yfir fjögurra
    ára tímabil sem við erum að fara að lengja og ég held, ég sá það einhvers
    staðar, að heildarfjöldi verndar sem hefur verið veitt á grundvelli þessa
    úrræðis sé eitthvað í kringum 7.000. Það væri fróðlegt að fá frá
    ráðherranum hvað sé til af gögnum um þennan hóp og hvernig honum hafi
    vegnað hér. Er fólk að sækja í að leita sér að störfum hér eða námi? Það
    væri gagnlegt að heyra aðeins hvernig ráðherrann sér stöðu þessa
    hóps.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>