<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:29:51" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:31:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:29:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Helgasyni fyrir fyrirspurnina.
    Eftir því sem mér skilst, eða samkvæmt síðustu tölum sem ég hef undir
    höndum, hafa frá upphafi innrásarinnar rúmlega 6.000 einstaklingar fengið
    tímabundna vernd á Íslandi. Þegar við berum þetta saman við heildarfjölda
    fólks á Íslandi sjáum við að Ísland hefur sannarlega gert sitt til að
    leggja eitthvað af mörkum. Umsögnum hefur undanfarið fækkað dálítið, það
    hefur verið niðurtröppun í fjölda þeirra, en úkraínskir ríkisborgarar eru
    sem stendur langsamlega stærsti hópur umsækjenda á Íslandi. Almennt séð,
    og ég sé að tíminn er lítill, myndi ég segja að ég sé boðin og búin að
    leggja fram frekari gögn inn í allsherjarnefnd og tölur um þennan hóp.
    Stóra sagan er hins vegar þessi: Þessum hópi hefur vegnað býsna vel hvað
    varðar virka þátttöku í samfélaginu og ekki síst þegar maður ber hann
    saman við aðra hópa sem hingað koma til lands en ég er ekki með nákvæmar
    tölur í þeim efnum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>